26.03.1985
Sameinað þing: 64. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3827 í B-deild Alþingistíðinda. (3174)
325. mál, samfelldur skólatími
Fyrirspyrjandi (Guðrún Helgadóttir):
Herra forseti. Ég hirði ekki um að karpa við hæstv. ráðh. um hvert verkefni áðurnefnds starfshóps var. Ég vil hins vegar leggja á það áherslu að ef fjárlaga- og hagsýslustofnun hefði verið falið þetta verkefni hefði hún ekki leitað til fræðslustjóra um hvort verkefnið skyldi verða framkvæmt. Hún hefði einfaldlega gert það. Hér hefur komið fram að það stendur til og það kom líka fram í ræðu hæstv. forseta Ed. að það muni verða ráðgast við fræðslustjórana um hvort þessi könnun verði gerð. Ég mótmæli þessu. (Gripið fram í: Með hvaða hætti?) Það kom einnig fram í máli hæstv. ráðh. efasemd um hvort könnuninni skyldi haldið áfram. Þetta er auðvitað fyrir neðan allar hellur. Hér er viljayfirlýsing Alþingis höfð að engu og það er mergurinn málsins.