26.03.1985
Sameinað þing: 64. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3828 í B-deild Alþingistíðinda. (3178)

303. mál, reglur um byggingar framhaldsskóla

Menntmrh. (Ragnhildur Helgadóttir):

Hæstv. forseti. Ég vil af þessu tilefni skýra frá því, sem ég held mér hafi láðst í fyrri ræðu minni, að það liggja raunar fyrir tillögur frá árinu 1982. En þær tillögur eru líka í endurskoðun. Þær fjalla um nokkur atriði sem grunnskóla varða og eru að vísu mjög mikilvægar, en sumt hefur þótt þurfa endurskoðunar við, m. a. þau atriði sem hv. fyrirspyrjandi benti hér á. En það er fullur vilji til þess í rn. að fyrir liggi fljótlega nýjar tillögur um þetta efni.