25.10.1984
Sameinað þing: 10. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 512 í B-deild Alþingistíðinda. (320)

100. mál, þingnefnd vegna rekstrarvanda í sjávarútvegi

Flm. (Steingrímur J. Sigfússon):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir till. til þál. um kosningu nefndar vegna rekstrarvanda í íslenskum sjávarútvegi. Þetta er 100. mál og prentað á þskj. 104. Flm. ásamt mér eru allir þm. Alþb. Till. hljóðar svo, með leyfi forseta.

„Alþingi ályktar að kjósa nefnd sjö þingmanna er skilgreini rekstrarvanda íslensks sjávarútvegs, safni saman upplýsingum og bendi á leiðir til úrbóta. Í starfi sínu geri nefndin m.a. samanburð á rekstrarskilyrðum útgerðar og fiskvinnslu hér á landi og í samkeppnislöndum okkar. Í því sambandi athugi nefndin sérstaklega eftirfarandi.

1. olíuverð til fiskiskipa.

2. orkuverð til fiskvinnslu, svo sem frystingar og bræðslu.

3. viðhalds- og þjónustukostnað, svo sem verð á tækjum, vélum og varahlutum.

4. fjármagnskostnað og fjárfestingar.

5. flutningskostnað útflutningsafurða.

6. söluverðmæti afurða á erlendum mörkuðum.

7. launakostnað í veiðum og vinnslu.

8. ríkisstyrki.

Nefndin skal jafnframt taka til athugunar skipulag veiða og vinnslu og gera tillögu um ráðstafanir sem tryggi að eðlilegt samræmi verði milli afkastagetu skipa og fiskvinnslustöðva.

Nefndin hefji störf nú þegar, og um næstu áramót skal hún skila sérstökum tillögum um úrlausn á vanda togaraútgerðarinnar. Í þeim tillögum skal nefndin leggja áherslu á:

a. að skapaður verði rekstrargrundvöllur fyrir togara sem ná meðalaflaverðmæti eða meira á ári miðað við venjulegar aðstæður og að treyst verði sérstaklega útgerð þar sem hún er meginforsenda atvinnulífs.

b. að benda á hvernig farið skuli með þann kostnað og þær skuldir sem útgerðin getur ekki staðið undir með eðlilegum hætti.

Nefndin skal strax í upphafi fara þess á leit við sjútvrh. að hann beiti sér fyrir því að opinberir sjóðir grípi ekki til aðgerða sem leiða mundu til stöðvunar fiskiskipa meðan unnið er að fyrsta áfanga nál.

Nefndin skili af sér með skýrslu til Alþingis eigi síðar en við upphaf þings haustið 1985.

Nefndin hafi samvinnu við hagsmunaaðila í sjávarútvegi svo sem þurfa þykir og fái sérfræðiaðstoð ef með þarf.

Kostnaður við störf nefndarinnar greiðist úr ríkissjóði.“

Sú málsmeðferð, herra forseti, sem hér er gerð tillaga um er til komin vegna þess, eins og segir í grg., að stjórnvöld hafa ekki bent á neinar leiðir út úr þeim alvarlegu erfiðleikum sem að íslenskum sjávarútvegi steðja. Því teljum við eðlilegt að Alþingi taki með þessum hætti málin í sínar hendur.

Till. á sér þá forsögu að á síðasta þingi flutti Svanfríður Jónasdóttir till. um kosningu milliþinganefndar vegna rekstrarvanda í íslenskum sjávarútvegi. Fyrri hluti þeirrar till. sem hér er flutt er efnislega samhljóða till. Svanfríðar. Sú till. náði því miður ekki fram að ganga — því miður segi ég vegna þess að enginn vafi er á því að gagnlegt hefði verið fyrir hv. Alþingi að hafa nú þær upplýsingar og tillögur sem væntanlega hefðu fengist í framhaldi af samþykkt till. Engu að síður er nú hliðstæð till. flutt að nýju, enda þörfin síst minni nú. Því til viðbótar er sérstaklega fjallað um vanda togaraútgerðar og gert ráð fyrir sérstakri tillögugerð, sem mjög verði hraðað, í þeim efnum.

Alþb. hefur nú sem endranær látið sig málefni sjávarútvegs miklu skipta. Haldnar hafa verið ráðstefnur á vegum flokksins um sjávarútvegsmál og gerðar sérstakar samþykktir og ályktanir og er ein slík frá s.l. sumri prentuð sem fskj. með till. þessari. Þar er sundurliðað hvernig Alþb. vildi bregðast við þeim vandamálum sem þá voru mest aðkallandi og eru reyndar flest óleyst enn þá. Í þessum tillögum þingflokks og framkvæmdastjórnar Alþb., sem samþykktar voru 24. júlí í sumar, segir m.a. eftirfarandi, með leyfi hæstv. forseta:

„Alþb. telur að grípa verði strax til aðgerða til þess að koma í veg fyrir stöðvun og þar með stórfellt atvinnuleysi. Alþb. telur að eftirfarandi ráðstafanir eigi að gera til þess að koma í veg fyrir stöðvun í sjávarútveginum:

1. Afurðalán verði hækkuð í það hlutfall birgða sem áður var.

2. Vextir af afurðalánum verði lækkaðir.

3. Lausaskuldum í sjávarútvegi verði breytt í lengri lán og tryggt að skuldbreytingin verði framkvæmd undanbragðalaust. Staðið verði við fyrirheit frá síðustu áramótum um skuldbreytingu og feldir niður dráttarvextir frá áramótum af lánum sem átti að skuldbreyta þegar fiskverð var ákveðið.

4. Gerðar verði ráðstafanir til þess að tryggja útgerðinni olíu á lægra verði en nú er um að ræða. M.a. verði útvegsmönnum veittur möguleiki á því að kanna sérstaklega hvort unnt er að flytja inn ódýrari olíu en nú er til fiskiskipaflotans svo tryggt verði að olían sé jafnan á bestu fáanlegum kjörum. Gera verður gangskör að því að spara olíu í fiskiskipaflotanum enn frekar en gert hefur verið og orku í fiskvinnslunni.

5. Orkuverð til fiskvinnslunnar verði endurskoðað. Fiskvinnslan — íslenska stóriðjan — greiðir nú 10–12 sinnum hærra verð fyrir orkuna en erlenda stóriðjan.

6. Gagngert verði unnið að því að tryggja ódýrari þjónustu við sjávarútveginn en nú er um að ræða. Verði sérstaklega tekið á bönkum, olíufélögum og skipafélögum í þessu sambandi sem græða nú hundruð millj. króna á ári. Ekki er vafi á því að uppistaðan í hagnaði þessara fyrirtækja er sótt í sjávarútveginn.

7. Ekki verði tekinn gengismunur af skreiðarbirgðum og endurgreiddur sá gengismunur sem tekinn hefur verið af skreið að undanförnu.

Með þeim aðgerðum sem hér hefur verið lýst væri komið í veg fyrir stöðvun sjávarútvegsins á næstunni. Jafnframt þarf að gera skipulagsbreytingar í sjávarútveginum sem skapa forsendur fyrir mannsæmandi lífskjörum verkafólks og sjómanna sem hafa orðið fyrir sérstökum árásum á kaup sitt og kjör“, segir enn fremur í þessari tillögu Alþb. frá því í sumar.

Aðgerðaleysi núverandi stjórnvalda í málefnum sjávarútvegsins og það hirðuleysi, sem ég vil kalla svo, sem ríkt hefur um þennan höfuðatvinnuveg landsmanna, er ámælisvert og illskiljanlegt að mínum dómi, herra forseti. Það blasir nú við rekstrarstöðvun í fiskvinnslunni víða um land og uppboð á skipum sem mörg hver eru höfuðatvinnutæki í sínu byggðarlagi. Þessi uppboð standa nú fyrir dyrum. Hin kalda hönd fjármagnsins skal ein öllu ráða og ekkert hefur komið frá ríkisstj. landsins um það hvernig hún hyggist leysa vandamál þeirra byggðarlaga sem nú horfa fram á hrun atvinnulífsins af þessum sökum. Í þeim byggðarlögum, sem þannig er ástatt um, ríkir nú kvíði og óvissa, sem er óviðunandi ástand. Ef Alþingi hv. og ríkisstj. legðust á eitt og nefnd þingmanna hæfi störf af krafti til að leysa þessi brýnu mál, m.a. með atvinnuöryggi við sjávarsíðuna í huga, þá veit ég að það þættu góðar fréttir í mörgum stað. Því legg ég og áherslu á að sú nefnd, sem væntanlega fær till. til meðferðar hér í þinginu að lokinni þessari umr., taki þegar til starfa og skili af sér hið fyrsta því hér liggur mikið við að rösklega verði tekið til hendi.

Herra forseti. Ég ætla ekki að eyða dýrmætum tíma hv. Sþ. í að lýsa ástandinu eins og það blasir nú við í sjávarútveginum. Allir geta, að ég held, orðið sammála um að þar eru alvörumál á ferðinni, svo mikil alvörumál, að mati okkar flm., að ástæða er til þess að hv. Alþingi sjálft taki með ákveðnum hætti, eins og hér er gerð tillaga um, beinan þátt í lausn þessa máls.

Að lokinni þessari umr., herra forseti, legg ég til að till. verði vísað til hv. atvmn.