26.03.1985
Sameinað þing: 64. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3846 í B-deild Alþingistíðinda. (3200)

374. mál, vatnstaka Íslandslax hf. í Grindavík

Eiður Guðnason:

Herra forseti. Þessar umr. verða æ athyglisverðari. Hér hefur verið vikið að því, sem hæstv. dómsmrh. sagði áðan, að málið hafi verið kynnt í ríkisstj. og spurt var hvort þar hefðu tilgreindir hæstv. ráðh. hreyft andmælum. Engin svör. Þeir segja hins vegar frá því hvernig þeim hefði borist til eyrna að þessi mál væru á döfinni.

Annað þykir mér þó langtum athyglisverðara í þessu máli og það er það sem hæstv. iðnrh. sagði áðan. Hann sagði: Ég er með í undirbúningi löggjöf um þjóðareign á orkunni í iðrum jarðar. — Lætur hann það þá viðgangast átölulaust og þykir honum það þá eðlilegt, meðan hann er með slíka löggjöf í undirbúningi, hún er í ritun og hún er á hans vinnuborði, ef svo má segja: á döfinni, að verðmæt réttindi af þessu tagi séu afhent með þeim hætti til Sambands ísl. samvinnufélaga eins og hér er komið í ljós að gert hefur verið? Þetta þykja mér tíðindi nokkur og þetta þykja mér fullkomlega óeðlileg vinnubrögð. Meðan einn ráðh. er með í undirbúningi löggjöf um að gera ákveðin verðmæti skilyrðislaust með lögum að þjóðareign afhendir annar ráðh. slík verðmæti til Sambands ísl. samvinnufélaga. Þetta finnast mér vera afar alvarlegar yfirlýsingar.

Þess vegna held ég að Alþingi Íslendinga hljóti og verði, eftir það sem fram er komið í þessu máli í dag, að láta þetta mál til sín taka.