26.03.1985
Sameinað þing: 64. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3849 í B-deild Alþingistíðinda. (3204)
376. mál, réttarstaða fólks í óvígðri sambúð
Fyrirspyrjandi (Maríanna Friðjónsdóttir):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. dómsmrh. svör hans og þykir leitt að ekki skuli mega vænta úrbóta fljótlega í þessum málum. Það er náttúrlega ljóst að hafa verður samráð við önnur Norðurlönd vegna mikilla samskipta í þessari framkvæmd. En í því sambandi vil ég benda hæstv. dómsmrh. á að í Svíþjóð liggur nú fyrir sænska þinginu frv. til l. um réttarstöðu þessa fólks, þar sem m. a. er kveðið á um rétt til húsnæðis og þeirra fjármuna sem í innbúi liggja, þannig að það ætti ekki að þurfa að leita langt til fyrirmyndarinnar.
Það sem gerist hins vegar á meðan hæstv. Alþingi liggur undir feldi og íhugar þetta mál er að þúsundir kvenna og karla þurfa að búa við þá óvissu að vera í raun utan laga og réttar. Nú segja kannske sumir, jafnvel einhverjir af þeim sem hér eru inni, að þetta fólk geti bara gift sig eða a. m. k. tryggt rétt sinn með lögfestum samningum. En það er bara ekki svo einfalt þetta mál. Sumt fólk vill hreinlega ekki gifta sig eða stofna til hjúskapar og því á að vera heimilt að framfylgja þeirri löngun sinni. Og það er svo um samninga sambúðarfólks að þótt það hafi frelsi til samninga er ekki þar með sagt að dómstólarnir viðurkenni alla þeirra samninga. Vil ég í því sambandi vitna til orða Guðrúnar Erlendsdóttur dósents, sem er í margumræddri sifjalaganefnd er fram koma í erindi sem flutt var hjá Dómarafélagi Íslands 25. október, með leyfi forseta:
„Ekki getur sambúðarfólk heldur gert almennan samning þess efnis að allar reglur um fjármál hjóna skuli gilda um sambúðina.“ Þetta byggist á því grundvallarsjónarmiði í sifjarétti að samningar um efni, sem ekki er hægt að hafa yfirsýn yfir við samningagerð, séu yfirleitt ógildir. Að mínu mati ætti löggjafinn nú þegar að taka á þessu máli af einhverri alvöru, þannig að framtíðin bjóði því fólki sem kýs að búa í óvígðri sambúð betri kosti en fyrri kynslóðir hafa mátt þola.