26.03.1985
Sameinað þing: 64. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3853 í B-deild Alþingistíðinda. (3211)

377. mál, skortur á hjúkrunarfræðingum

Steingrímur J. Sigfússon:

Herra forseti. Ég vil aftur þakka fyrirspyrjanda. En ég verð nú að segja það að ég er ekki jafnbjartsýnn og hæstv. ráðh. um það að hér sé eingöngu um tímabundin vandamál að ræða. Færi betur að satt væri, en því miður benda þær upplýsingar sem ég hef innan úr þessu kerfi, af ríkisspítölum og reyndar víðar að, þvert á móti til þess að það halli nú heldur á ógæfuhliðina í þessum málum. Það kann að vísu að vera að staða kvennadeildar sé nokkuð sérstök vegna meiri sérmenntunar þeirra hjúkrunarfræðinga sem þar eiga að starfa. (Heilbr.- og trmrh.: Það var eingöngu rætt um þá deild.) Það er eingöngu rætt um þá deild, já. Ég geri mér grein fyrir því, hæstv. ráðh., en mér leyfist væntanlega að fjalla almennt um málefni hjúkrunarfræðinga og Landspítalans í þeim örfáu orðum sem ég hef tíma til að segja hér. Og ég vil benda hæstv. ráðh. á það, skyldi hann ekki hafa hugleitt það nú þegar, að það hefur sýnt sig að ekki er nóg að auka framboð á plássum í skólum ef kjör þess fólks sem út úr þeim kemur og á að starfa í viðkomandi greinum eru þannig að það treystist ekki til að vinna við þau störf. Staðreyndin er sú að fullmenntaðir hjúkrunarfræðingar flýja út af spítölunum í stórum stíl. Það má telja á fingrum annarrar handar þær sjúkrastofnanir í landinu sem hafa nú fullskipaðar allar sínar stöður af hjúkrunarfræðingum. Og það er þá venjulega vegna þess að þeir hafa ókeypis húsnæði og eitthvað annað upp á að bjóða til viðbótar við launin. Fullmenntaðir hjúkrunarfræðingar sækja nú um störf hjá Flugleiðum sem flugfreyjur eða einhver önnur alls óskyld störf til þess að reyna að þokast upp um launaflokka. Ég er því sannfærður um það að hvað sem líður sérstökum vanda kvennadeildar í þessum efnum, þá er þetta almenna vandamál, sem hér er við að stríða, ekki tímabundið, því miður, ef ekkert verður að gert til að leysa það. Þvert á móti stefnir í gífurlega erfiðleika með rekstur heilbrigðiskerfisins í landinu ef svo heldur sem horfir. Og ég hef lítið komið auga á í afstöðu hæstv. ríkisstj. í kjaramálum sem bendir til þess að breytinga sé að vænta af hennar hálfu í þessum efnum.