26.03.1985
Sameinað þing: 64. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3853 í B-deild Alþingistíðinda. (3212)
377. mál, skortur á hjúkrunarfræðingum
Heilbr.- og trmrh. (Matthías Bjarnason):
Herra forseti. Út af þessari síðustu ræðu vil ég taka fram að hér var borin fram fsp. eingöngu um þessa einu deild, kvensjúkdómadeild, og þar er ég bjartsýnn á úrbætur. Hins vegar frábið ég mig því að ræða um launamál. Ég fer ekki með launamál í ríkisstj. og mér heyrist á þeim ráðh. sem með launamál fer að hann vilji gjarnan fá frið fyrir öðrum í sambandi við umræður um launamál. Ég ætla því ekki að hætta mér inn á þá braut því að ef það yrði til að spilla fyrir friði vil ég ekki vera bendlaður við það. Ég vil gjarnan að sem bestur friður ríki um kjaramál í þjóðfélaginu og skilningur á milli aðila.
Menntunarmál hjúkrunarfræðinga almennt eru ekki í höndum heilbrmrh. heldur eru þau nú komin á háskólastig. Þar hefði ég ýmislegt getað sagt, sem ég hef ekki tíma til hér, því að ég er mjög ósammála þeirri þróun sem þar hefur átt sér stað.