26.03.1985
Sameinað þing: 65. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3866 í B-deild Alþingistíðinda. (3218)

365. mál, vegáætlun 1985--1988

Helgi Seljan:

Herra forseti. Ég hlýt nú að þakka hæstv. ráðh. fyrir fróðlega og um margt mjög ágæta framsögu þar sem vissulega er unnt að taka undir fjölmargt í hans máli. Ég vil sannarlega láta hæstv. samgrh. njóta sannmælis um það að hann er áhugamaður um þennan málaflokk og vill örugglega gera betur en hér er gert ráð fyrir. En enginn má við margnum, eins og þar stendur. Ég vil því taka það skýrt fram að þau orð sem ég segi hér til gagnrýni eiga við alla hæstv. ríkisstj. og stuðningsmenn hennar, sem hafa greinilega borið hæstv. ráðh. ofurliði að hann mætti ná vopnum sínum, svo að notað sé orðalag annars hæstv. ráðh.

Við þessa framlagningu vegáætlunar skal ekki haft uppi langt mál þó að ærin séu tilefnin. Samgöngumál á landi snerta menn að vísu misjafnlega. Fyrir ýmsa er það spurning um byggð og búsetu, fyrir aðra spurning um einangrun margra mánaða, þó að um nokkurt þéttbýli sé að ræða.

Eins og hæstv. ráðh. kom inn á þá höfum við lifað blessunarlega mildan vetur. Lengi mun hann í minnum hafður af þeim sökum, bæði hér í þéttbýlinu í samanburði við veturinn í fyrra og ekki síður úti á landsbyggðinni þar sem óvenjulega greiðar og eðlilegar samgöngur hafa verið vetrarlangt. Sparnaður af þessum sökum er mikill og hlýtur að koma ýmsum verkefnum þessa árs til góða á ýmsan veg enda mun ekki af veita að almættið komi til aðstoðar stjórnvöldum og bæti stöðu þeirra eitthvað, ekki síst í ljósi ýmissa stóryrða og glæstra gylliloforða ýmissa þeirra sem nú ganga hoknir til niðurskurðarverka.

Af eðlilegum ástæðum staðnæmast menn fyrst við heildarfjármagnið, sem á þessu ári er áætlað til framkvæmda í vegamálum í heild, en óþægileg hlýtur mörgum að verða sú upprifjun, sem unnt væri að hafa uppi um markmið og efndir langtímaáætlunar, því að vitanlega er árið í ár það eina marktæka í þessari áætlun, eina áreiðanlega stærðin, sú sem sýnir raunverulegan hug stjórnvalda til þessa málaflokks.

Hlutfallið af þjóðarframleiðslu átti nú að vera komið upp í 2.4% en er skv. því sem hér segir 1.9%. En vel að merkja, sú prósenta er ekki rétt, hún er of há, því að skv. nýjustu spám Þjóðhagsstofnunar um þjóðarframleiðslu í kjölfar reynslunnar frá s. l. ári einnig, þá fer þessi prósenta sennilega niður undir 1.8%. Á þessa miður þægilegu staðreynd er óhjákvæmilegt að benda og ekki er unnt að beita neinum brellum eða talnaleikjum þar sem langtímaáætlunin mælir fyrir um prósentu af þjóðarframleiðslu. Samdráttarhjalinu margumtalaða er því ekki unnt að beita í þessu tilfelli, eins og stjórnvöld núverandi hafa haft svo mikið yndi af, þó að Þjóðhagsstofnun hafi reyndar sagt allt annað núna um síðasta ár og árið í ár, og verður gaman að vita til hvaða afsakana verður gripið næst þegar skera á niður verklegar framkvæmdir sem fyrst og fremst snerta landsbyggðina.

Það væri freistandi að rifja upp ýmis ummæli frá dögum síðustu ríkisstj. um efndir þá og mikla kokhreysti manna þá sem hugðust kippa öllu í liðinn um leið og þeir fengju til þess aðstöðu. Þeirra á meðal, af því að hæstv. ráðh. furðaði sig á fsp. frá mér eða frammígripi hér áðan, var einn af þeim sem ekki hefur viljað fallast á þá áætlun sem hæstv. ráðh. lagði fram í fyrra. (Gripið fram í: Hvar er hann?) Hann er nú að vísu ekki hér, en hann var einn af þeim alkokhraustustu, hv. 11. landsk. þm., sem blöskraði svo niðurskurður hæstv. samgrh. í fyrra að hann vildi ekki standa með okkur hinum, jafnvel ekki stjórnarandstöðunni, að skiptingu vegafjár. Hins vegar heyrist mér á hæstv. ráðh. að hann ætti að kenna honum betri siði nú og fer vel á því að svo verði.

Það væri sannarlega freistandi að rifja upp ýmislegt af því sem þá var sagt því að svona prósentuniðurskurður var þó ekki á borðum manna þá og enn síður svo rækileg undanbrögð frá áætlun. Hins vegar þjónar karp um fortíðina í þessu efni ekki tilgangi, þó að á sé minnt í þessu sambandi hve menn ætluðu sér að eigin sögn stóran hlut og ótvíræðar efndir þegar í andstöðu var barist.

Vissulega þýðir lækkun úr 2.4% í 1.9%, eða réttara sagt 1.8%, gífurlega minnkun heildarframkvæmda frá því sem vera hefði átt og kemur þá harðast niður á nýframkvæmdum sem og á viðhaldi að nokkru. Því er það miklu athyglisverðast við framlagningu þessarar áætlunar að þegar á næsta ári á aldeilis að breyta og bæta. Þá er sem sé allt í einu orðið svigrúm til þess að auka fjármagn til vegagerðar um 50% í krónum talið frá því sem er raunveruleiki ársins í ár, sem er hið raunhæfa í dag og þykir hæfilegt fjármagn í þeirri einu áætlun sem hér er marktæk, þ. e. ársins í ár, og hægt er að miða við. Hitt eru nánast fyrirheitin ein á móti staðreynd veruleikans. Það þykir sem sé við hæfi að hampa heildartölunni 2430 millj. á næsta ári, það er nú bara til að hafa þetta nógu myndarlegt, á móti 1650 millj. nú. Fyrr mega nú vera umskiptin, fyrr mega nú stjórnarliðar ætla að bæta ráð sitt. Eða búast þeir máske ekki við að þurfa að baksa í sameiningu við efndir á þessu? Ýmislegt bendir í þá átt, því að reimleikar eru áberandi hjá báðum aðilum þrátt fyrir nýlega ástarjátningu framsóknar sem á að mýkja íhaldið fyrir landsfundinn. En best er að eyða ekki dýrmætum tíma þingsins í þá gullnu stjórnarrevíu, sem báðir leika af lífi og sál, en víkja aftur að vegáætlun og frá nýframkvæmdunum horfið til viðhaldsframkvæmdanna.

Því er ekki að neita, sem greinilega kemur fram og við þekkjum mætavel, að viðhald vega hefur um langan tíma verið alls ófullnægjandi til mikils tjóns og skaða. Brýn þörf er á að koma því sem allra fyrst upp í það að vera svo sem þarf og áætlanir Vegagerðar ríkisins kveða á um að sé nauðsyn, svo að vandræði hljótist ekki af, varanlegt tjón fyrir marga vegarkafla sem verða hart úti í þessum niðurskurði, þjóðbrautarkaflar alveg sér í lagi. Án þess að standa að fullu við áættaða þörf, sem áreiðanlega er aðeins sú brýnasta, verður margur þokkalegur vegarkafli að hálfgerðum troðningi á ótrúlega skömmum tíma. Inn á þetta kom hæstv. ráðh. hér áðan rækilega. Áætlun nú stendur til þess að bæta hér nokkuð úr og ber að fagna því. Rétt er hins vegar að leggja mikla áherslu á þennan þátt sem er svo veigamikill fyrir vegakerfið í heild og tekur bæði til malarvega og í vaxandi mæli til vega með bundnu slitlagi.

Þegar til nýframkvæmda er litið er augljós sú skerðing framkvæmdafjár sem áður var minnst á. Ég ætla ekki að fara nánar út í það, það kemur niður á okkur sem þurfum að skipta þessu, og að sjálfsögðu munum við í stjórnarandstöðunni gera tilraun til þess að skipta þessu vegafé svo sem verið hefur. A. m. k. höfum við í Alþb. ekki skorast undan því að taka þar ábyrgð á málum þó að það hafi á skort hjá ýmsum öðrum þegar þeir hafa í stjórnarandstöðu verið. Það hefur oft verið tekist á um þessa áherslu hins vegar í nýframkvæmdunum, bæði í fjvn. og á þingi og eins úti í kjördæmunum þar sem aðstaða og aðstæður eru misjafnar. (Gripið fram í: Við hverja er átt?) Ja, úr því að 3. þm. Vestf., sem fylgist nú manna best með þingstörfum hér, er þetta ekki alveg ljóst, þá er óhætt að nefna þá sjálfstæðismenn í stjórnarandstöðu í stjórnartíð síðustu ríkisstj. sem iðkuðu ýmsa leikfimi þar af ótrúlegri kúnst og sérstöku ábyrgðarleysi. (KP: Það var rétt að fá það bara fram.) Já, það er rétt að rifja þetta upp fyrir hv. þm. úr því að hann hefur gleymt því. (KP: Nei, það var ekki meiningin.)

Án þess að draga úr mikilvægi þess að sjá vel fyrir framhaldi bundins slitlags á þá vegarkafla sem tilbúnir bíða þess þá hljótum við, sem eigum lökustu vegina í okkar kjördæmum, sveitavegina máske alveg sér í lagi, að leggja ekki minna vægi á uppbyggingu þeirra þann veg að þeir þoli venjuleg snjóalög sem best, séu byggðir upp úr snjó, eins og það er gjarnan orðað. Raunar gildir þetta um miklu fleiri vegi en svokallaða sveitavegi í mínu kjördæmi þar sem ástand margra vega er alls óviðunandi. Þá sögu geta auðvitað margir fleiri sagt.

Ég nefni aðeins sem dæmi veginn til helsta þéttbýlisstaðarins, Neskaupstaðar, sem enn er að miklum hluta gamall ruðningur einn og er tvímælalaust versti vegarkafli á Austurlandi og þó langtum víðar væri leitað. Viðhald er þar erfitt við þessar aðstæður, enda hefur ekki verið eytt þar miklum fúlgum, þó að í haust hafi verið gerð bragarbót þó í tæpasta lagi hafi verið. Þannig er auðvitað unnt að rekja og tína til vegarkafla hvarvetna um land allt og skal ekki tafinn tími hér í að tíunda Austurlandið þar. En án þess að fara nánar út í þá sálma einu sinni enn þá hlýtur hinn stöðugi kjördæmasamanburður að vera býsna hvimleiður og e. t. v. ekki vænlegastur til árangurs. Þó hlýtur enn að vera minnt á þær reglur sem fjvn. og síðan Alþingi í raun samþykkti um skiptingu vegafjár milli kjördæma. Ég hef aldrei verið sáttur við forsendur þeirra reglna og tel að mat á ástandi vega m. a. hafi ekki verið nógu samræmt og mjög vafasamt að leggja þetta til grundvallar til langs tíma. Vægi hinna einstöku fjögurra þátta í þeirri formúlu sem notuð er til skiptingar hefur ævinlega komið illa út fyrir Austurland að mínum dómi. En þær reglur blífa og tjáir ekki um að tala og eins og kom fram í máli hæstv. ráðh. þá er enn langt í að þær reglur verði endurskoðaðar.

Hitt er svo augljóst að þar sem umferð er hvað minnst og ástand vega hvað lakast hlýtur þessi skiptingarregla að koma illa við þá landshluta sem þetta gildir um. Ég skal ekki fjölyrða um þetta hér, því að til síðari umr. skal beðið með endurskoðun á skiptingu, enda sjást þá enn betur ýmis þau einstök atriði sem sköpum skipta fyrir hvert kjördæmi.

Ég skal ekki heldur víkja nú nema lítillega að þeim mikla samdrætti sem orðið hefur hjá Vegagerð ríkisins í starfsmannahaldi, og er kallað hagræðingaráform, en er auðvitað bein afleiðing og kemur beint í kjölfar útboðsstefnunnar sem þar er nú í öndvegi illu heilli. Ég hef ásamt öðrum hv. þm. flutt till. til þál. um úttekt á hagkvæmni úfboða og setningu reglna um útboð smærri verka sem tryggi heimaaðilum ákveðinn forgang. Ég kýs að ræða þá till. í heild sinni, þegar þar að kemur, en get þó ekki stillt mig um að minna á það hér, svo sem ég hef raunar áður gert, við vegáætlunarumræðu. Ég get hins vegar ekki stillt mig, eftir lofsöng hæstv. ráðh. hér áðan um þetta mál, að minna á þetta hér og nú, ekki síst í ljósi þess þegar þessum fjárhagslega ávinningi er stöðugt hampað og jafnvel talað um auknar framkvæmdir í kjölfar þessara útboða. Þetta vil ég að verði kannað og komið á hreint, hvort það á í raun og veru við raunveruleikann að styðjast. Ég dreg það sem sagt stórlega í efa. Og heildarhagkvæmnina í sambandi við þetta mál allt vil ég skoða, m. a. með tilliti til byggðaþróunar og þróunar hinna ýmsu þjónustuaðila á landsbyggðinni og atvinnutækifæranna þar, þannig að menn komi þar ekki í stórum stíl, hinir stóru og sterku verktakar, og hrifsi til sín verk í æ ríkara mæli, drepi hina minni af sér smám saman og sitji svo einir uppi, kannske fáeinir stórir verktakar, sem verða svona svipaðir og einhver olíufélög í lokin með samtrygginguna eina að leiðarljósi.

Ég held að full ástæða sé að minnsta kosti til að staldra við og athuga þetta mál og að inn í þessa mynd þurfi meira að koma heildarhagkvæmnin í þessu efni, m. a. fyrir landsbyggðina, en verið hefur. En ég læt hér útrætt um þetta nú en endurtekin viðvörun gagnvart blindri útboðsstefnu í vegagerð kemur nú fram í bergmáli æ fleiri og fagna ég því og þeirri umræðu á landsbyggðinni sem af þessu hefur skapast.

Ótal atriði koma upp í hugann við framlagningu þessarar áætlunar. Allgóð skemmtan gæti t. d. orðið að því að rifja upp stóryrði ýmissa um markaða tekjustofna, bensíngjaldið, þungaskattinn og aðra bensínskatta, sem og hlut ríkisins í því efni og hlut Vegagerðarinnar í því efni, sem hétu nú á máli sumra aðstandenda þessarar áætlunar, og nú sakna ég hæstv. fjmrh., sem oft situr nú hér og reyndar annars staðar í húsinu einnig, og kannske frekar þegar áliðið er funda, sem gjarnan hafði á orði hræðilega óafsakanlega skattpíningu í þessum efnum, en nú hefur verið tekinn, m. a. undir forustu þessa hæstv. ráðh. ríflegri tollur af bifreiðaeigendum en nokkru sinni. Í þessu efni segi ég nú raunar aðeins: Batnandi mönnum er best að lifa, og gott að þeir hafa áttað sig á því að hér er um nauðsynlega og eðlilega skattheimtu að ræða ef menn eiga að komast eitthvað áfram í vegaframkvæmdum.

Þannig gæti verið fróðlegt að líta yfir málasvið í heild og skoða það í ljósi fyrri svigurmæla um framkvæmdir, um skattpíningu og um áherslur, en það er framtíðin sem gildir. Til að gefa mönnum kost á því að efna að nokkru góð glæsiloforð þá höfum við þm. Alþb. flutt brtt. á þskj. 635 við þessa vegáætlun. Við viljum þannig standa að okkar hluta við bakið á hæstv. samgrh., sem hefur orðið að heyja harða glímu í ríkisstj. til þess að verða ekki enn verr úti í slagnum um fjármunina. Sú till. miðast við hækkun upp á 0.3% af þjóðarframleiðslu, þannig að talan verði 2.1 miðað við raunveruleikann samkvæmt þjóðhagsspá, eða 2.2 miðað við forsendur þessa plaggs sem hér er. Skipting þessa fjár er í sömu hlutföllum varðandi einstaka þætti framkvæmda og er í vegáætlun ríkisstj.

Á það verður að reyna hversu menn vilja nú sýna inn í framtíðina í virkileikanum varðandi það eina ár sem hér er markað, en ekki með loftköstulum næstu ára eingöngu, eins og gert er í þessari áætlun. En ég sagði að það er framtíðin sem gildir og í tengslum við það legg ég að lokum áherslu á það, að Vegagerð ríkisins sem stofnun á vegum hins opinbera er um flest til fyrirmyndar, m. a. í því að færa verkefni út í byggðirnar, færa þangað vald — verkfræðilegt og tæknilegt — til ótvíræðra hagsbóta fyrir alla aðila. Útboðsstefnan er ekki þeirra sök. Þar koma fyrirmæli ofan frá, m. a. frá Alþingi í formi ályktunar, og geri ég Vegagerð ríkisins ekki ábyrga fyrir því. Ég legg hins vegar áherslu á sjálfstæði og visst frumkvæði í höndum þessarar stofnunar áfram og alveg sér í lagi nægilegt fjármagn til undirbúnings og rannsókna vegna vegagerðar og ýmissa framtíðarverkefna, sem Vegagerðin þarf að geta farið að snúa sér að, rækilega og vel í ljósi nýrrar tækni, aukinna möguleika á öðrum leiðum en þeim sem áður hafa verið farnar. Þessu verkefni þarf Vegagerð ríkisins að geta sinnt og aðilum þar treysti ég best til að vinna að þessum málum. Ég vara við tilhneigingum til að fela misgóðum einkaaðilum með takmarkaða þekkingu og yfirsýn þau verk. Það geta verið mín lokaorð.