26.03.1985
Sameinað þing: 65. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3883 í B-deild Alþingistíðinda. (3224)

365. mál, vegáætlun 1985--1988

Magnús Reynir Guðmundsson:

Herra forseti. Maður hefur á tilfinningunni að maður sé að fremja einhvern glæp með því að lengja þessa umr. umfram það sem orðið er, en það verður þá bara að hafa það. Það er kannske dæmigert að hér sitji eftir í salnum með örfáum undantekningum þm. landsbyggðarinnar, þm. þeirra kjördæma sem búa við samgöngur sem ekki eru fullnægjandi. Aðrir þm. eru víðs fjarri, þm. höfuðborgarinnar, með örfáum undantekningum, ég ítreka það, og þm. nærliggjandi kjördæma. En þetta sýnir okkur að þannig er nú komið að vegamál, samgöngumálin, snerta ekki alla íbúa landsins jafnt, þau gera það ekki, engan veginn. Þess vegna sitja menn ekki við sama borð þegar verið er að ræða um mikilvægi samgangna.

Í ágætum texta segir: „Vegir liggja til allra átta.“ Það er vissulega rétt að vegir liggja til allra átta frá höfuðborginni, frá höfuðborg okkar, Reykjavík, sem við eigum öll og þurfum öll að sækja svo mikið til. Við höfum ekki efni á því að eiga margar höfuðborgir. Við þurfum að sækja gífurlega mikla og margvíslega þjónustu til höfuðborgarinnar. Þess vegna er okkur nauðsynlegt að komast til hennar á öruggan og fljótlegan hátt ef því er að skipta.

Ég vil að samgöngumálin séu rædd í samhengi, að menn ræði um vegamál, ferðalög á sjó og í lofti í sömu andránni. Nauðsynlegt er að menn átti sig á því hvaða samgönguþættir það eru sem þjóna best hverju byggðarlagi. Við vitum að Herjólfur þjónar Vestmannaeyjum og það er hægt að komast með Akraborginni upp á Akranes. Þetta á við í þessum tilfellum, að nota sjóleiðina. Við vitum líka að ýmsir staðir búa við öruggar eða öruggari flugsamgöngur en aðrir. En ýmis byggðarlög og ýmsir landshlutar búa við lakastar samgöngur, m. a. Vestfirðir. Ég geri ráð fyrir að svipað eigi við um Austfirði og Norðurland. (Gripið fram í.) Já, kannske fleiri kjördæmi.

Hér er til umfjöllunar vegáætlun fyrir árin 1985–1988. Menn hafa nú hver um annan þveran þakkað samgrh. fyrir ágæta ræðu hér áðan. Ég held að ég fari ekkert að þakka honum sérstaklega fyrir þetta. Ræða hans kom mér ekki á óvart. Hann hefur verið ötull fulltrúi landsbyggðarinnar allt frá því að ég man eftir og verður það vonandi áfram. Ég held að hann skilji betur en margir aðrir þau vandamál sem við er að etja í erfiðum kjördæmum.

Ég harma það að sjálfsögðu að ekki hefur tekist að standa við þá áætlun, sem samþykkt var og upp hefur verið sett, að verja 2.4% af þjóðarframleiðslu árlega til þessara mála. Hitt er svo á að benda að það er samdráttur í þjóðfélaginu á þessu ári og það hefur verið samdráttarskeið sem við höfum verið að sigla í gegnum núna. Þess vegna er ekki við því að búast að samgöngumálin fái það sem þau hefðu ella fengið af þjóðarkökunni.

Mig langar aðeins að fjalla hér um örfáa þætti og skal ekki vera mjög langorður, herra forseti. Ég vil í fyrsta lagi lýsa því yfir að ég tel að Vegagerðin verði að fá tækifæri til að fylgjast með framvindu mála í sambandi við jarðgangagerð. Það er framtíðin, það er ekki hægt að tengja ákveðin byggðarlög saman á fullnægjandi hátt nema með jarðgöngum. Þess vegna vil ég leggja áherslu á að unnið verði að þessum málum, þau verði ekki látin liggja í láginni, heldur verði unnið markvisst að því að þegar kemur betri tíð með blóm í haga og þegar Íslendingar verða betur í stakk búnir til að leggja meira fé til vegamála verði unnið að vegamálum þannig að þar sé um nokkuð varanlega lausn að ræða. Þess vegna legg ég til að á meðan ekki eru til peningar til þess að ráðast í sjálfa framkvæmdina verði þessi mál undirbúin þannig að hægt verði að hefjast handa strax og aðstæður leyfa. Við hljótum að búa yfir þeirri tækniþekkingu sem þarf nú þegar. Sérstaklega vitna ég þar í framkvæmdir við virkjanir. Við getum því ráðist í jarðgangagerð þegar aðstæður leyfa.

Samgöngurnar eru forsenda framgangs annarra mikilsverðra mála, þau eru grunnurinn að svo mörgu. Við skulum taka heilbrigðismálin. Heilbrigðismál verða ekki í góðu horfi nema samgöngumálin séu það líka. Atvinnumál og félags- og menningarmál ýmiss konar verða heldur ekki í góðu horfi nema samgöngumálin séu í góðu horfi. Þessi óvenju mildi og góði vetur, sem við höfum upplifað núna, hefur fært okkur heim sanninn um það hversu mikilvægt það er að menn komist á milli staða, hversu mikilvægt það er að menn geti blandað geði og hist og hvað það er mikils virði að hafa öruggar og góðar samgöngur á milli staða.

Það hefur verið rætt hér um útboð verka. Það er mín persónulega skoðun að þegar um stór verkefni er að ræða sé rétt að huga að þessari leið. Við sáum að þegar vegargerðin undir Ólafsvíkurenni var boðin út kom fram mjög hagstætt tilboð sem sparaði geysilega mikið fé miðað við þær kostnaðaráætlanir sem Vegagerðin hafði gert í sambandi við þetta verk. Nú skal ég ekki um það segja hversu áreiðanlegar kostnaðaráætlanir Vegagerðarinnar hafa verið í þessu sambandi, hvort þær hafa m. a. tekið mið af því ástandi sem ríkti í framboði á verkefnum á þeim tíma sem útboðið fór fram. En mér sýnist að það sé augljóst mál að þarna hafi sparast verulegir fjármunir. En ég vil lýsa þeirri skoðun minni að ég tel að bjóða þurfi verkin út í smærri einingum þannig að heimamönnum, sem mikið hafa verið hér til umræðu í sambandi við útboðin, gefist kostur á með sínum takmarkaða tækjakosti að bjóða í þessi verk.

Ég get ekki látið hjá líða að minnast örfáum orðum á áætlun sem gerð var í samgöngumálum Vestfjarða fyrir þó nokkuð mörgum árum, svokallaða Vestfjarðaáætlun. Það er gaman að vitna í það að hæstv. forseti, Þorv. Garðar Kristjánsson, átti þar stóran hlut að máli. Þessi áætlun, sem hrundið var í framkvæmd, skipti sköpum á þeim tíma í samgöngumálum Vestfjarða. Mér er spurn og beini því til hæstv. samgrh. hvort ekki sé tilhlýðilegt að huga að slíkri áætlanagerð í sambandi við samgöngumál okkar Íslendinga almennt. Eigum við ekki aðgang að einhverri aðstoð, einhverri erlendri aðstoð, t. d. frá vinum okkar og frændum á Norðurlöndum sem ekki vita aura sinna tal, t. d. Norðmönnum, í sambandi við þessi mál? Ég tel það mjög athugandi að ráðast í slík stórverkefni sem skipt geta sköpum í sambandi við framtíð byggðar í landinu öllu.

Nú veit ég það mætavel og held að þeirri skoðun vaxi nokkuð fylgi að það séu ýmsir landshlutar sem ekki sé arðandi upp á í þessum efnum, m. a. Vestfirðir, þar sé mannlíf á þann veg að það sé aumkunarvert að búa á því landsvæði. Það kann að vera að það sé ekki meiri hluti þjóðarinnar sem hefur þessa skoðun. Eitt er víst að á Vestfjörðum býr fólk sem unir hag sínum býsna vel og vill búa þar. En að sjálfsögðu má betrumbæta aðstæður þessa fólks þar og annars staðar vítt og breitt um landið. En það þarf að hugsa stórt í þessum efnum, það þarf að leggja drög að því að tengja byggðirnar saman, eins og ég gat um hér fyrr í ræðu minni, þannig að fólkið geti betur unað þar saman. Fjöllin aðskilja fólkið í þessum landshluta eins og fleirum og það þarf að koma fólki í samband hverju við annað. Ég vildi aðeins gera þetta að umræðuefni hér og beina því til ráðamanna þjóðarinnar að þeir hugsi nú stórt í þessum efnum og reyni að leggja drög að því að ráðist verði í verkefni sem skipt geta sköpum í sambandi við byggð fólksins í landinu öllu.