27.03.1985
Efri deild: 53. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3908 í B-deild Alþingistíðinda. (3234)

382. mál, Sementsverksmiðja ríkisins

Iðnrh. (Sverrir Hermannsson):

Virðulegi forseti. Að sjálfsögðu mun hv. n. gefa sér þann tíma sem henni þykir þurfa til þess að kynna sér málið og afla gagna og annars þess sem til þarf að hún megi komast að sem skynsamlegastri niðurstöðu um þær tillögur sem hún leggur síðan fyrir hv. deild. — Mér þykir miður að hv. 5. landsk. þm. er fjarri, af því sem mál mitt, þó ég reyni að stytta það eftir föngum, kemur við ræðu hans sem hann hélt hér áðan.

Menn spyrja, hv. 4. þm. Vesturl. og hv. 5. landsk. þm., hvað valdi breytingunni frá því sem hér var lagt fyrir kynningarfrv. á síðustu dögum þingsins í fyrra og fram til þess að nú kemur þetta nýja frv. í gerbreyttu formi fram. Ég vil taka það fram að strax í upphafi hafði ég áhuga á að setja þessu félagi ný lög af því sem það bjó við lög sem kalla mátti bráðabirgðalög eða heimildalög einvörðungu til byggingar verksmiðjunni og þótti mér það ekki eðlilegt. Í þeirri nefnd lögfræðinga sem ég tilnefndi til að gera frv. úr garði um Sementsverksmiðjuna kom fram áhugi í þessa átt. Og við nánari athugun brá ég á þetta ráð, að biðja um samsetningu frv. sem gengi í þessa átt.

Ég ætla að taka fram, sem ég raunar hélt að hefði spurst, að ég er ekki þeirrar skoðunar að ríkið eigi að selja meiri hluta í fyrirtæki sem er þess eðlis eins og Sementsverksmiðja ríkisins er. Þetta er nokkurs konar einokunarfyrirtæki. Þetta er fyrirtæki sem hefur einhæfa framleiðslu. Það er enginn sem við það keppir. Ég held að ríkið þurfi að hafa meirihlutatök á slíku fyrirtæki. Ég er þeirrar skoðunar. Það kann að breytast þegar fram líða stundir.

Ég tek mjög skýrt fram að það er undir engum þrýstingi, síst mundi hafa verið við því tekið af minni hálfu að þrýstingur hefði verið gerður af hálfu steypustöðva, að ég bregð á þessa tillögu um að leita eftir heimild á sölu á 1/5 af fyrirtækinu. Og alveg er það ljóst að aldrei mun ég standa að því að neitt verði af þessu gefið. Nú kann vel að vera að áhugi verði ekki á að kaupa hlut í þessu fyrirtæki af hálfu fyrirtækja í byggingariðnaði t. a. m. Það kann vel að vera og verður þá við það að sitja. En ég tók fram í framsögu minni að aðild byggingariðnaðarins að fyrirtækinu gæti orðið því til góðs. Þeir geta aldrei, aðilarnir, orðið drottnandi þar, vegna þess, eins og ég segi, að ég trúi ekki að það sé eða verði í náinni framtíð vilji fyrir því að selja meiri hlutann í slíku fyrirtæki. Það er ekki t. a. m. sú skoðun uppi innan míns flokks, svo ég taki það alveg skýrt fram.

Ég minni hins vegar á að það er ákaflega áhugavert að starfsfólk geti eignast hlut að rekstri slíks fyrirtækis. Mér dettur þetta í hug af því sem hv. 5. landsk. þm. nefndi að mýmörg dæmi eru um að sænska ríkið hafi rekið fyrirtæki sín í þessu formi. Það er líka áhugavert að verkalýðsfélög kaupi sér aðild að ríkisreknum fyrirtækjum. Þetta ástunduðu sænsk verkalýðsfélög og ég kynntist því um 1960, þegar ég átti samstarf á sviði launþega í verslunarstétt við samtök norrænna verkalýðsfélaga. Þá varð ég satt að segja undrandi á því hvað mjög hin öflugu verkalýðssamtök tíðkuðu að kaupa hlut í ýmsum ríkisreknum fyrirtækjum og raunar einkafyrirtækjum líka. Skýringin var afar einföld. Þau vildu fá að kynnast út í hörgul rekstri fyrirtækjanna þannig að þau gætu fremur skapað sér skoðun á rekstrinum og þá með hvaða hætti reksturinn færi best úr hendi og gæfi sem mestan arð, gefandi þeim líka röksemdir fyrir því að krefjast aukinnar hlutdeildar í þeim arði. Þetta eru ákaflega forvitnilegar aðferðir að , mínum dómi og ég vil alveg sérstaklega, ef þetta nær fram að ganga, sem ég mælist eindregið til, að menn sameinist þá um að svona aðferðir verði athugaðar. (EG: Þá var um að ræða fyrirtæki sem skiluðu arði.) Já. Ég verð að segja að mér finnst menn of íhaldssamir í þessum sökum þegar menn eru að ræða um ríkisreksturinn og það er ekki að spyrja að því að þessa íhaldsmennsku er nú fyrst og fremst að finna í Alþb., en ég hélt nú satt að segja að íshúsforstjórar og framkvæmdastjórar á Snæfellsnesi væru í frjálslyndari armi flokksins, var að vona það, þannig að maður ætti ekki að mæta þessari kergju og kreddu líka hjá mönnum sem hafa svo ríkan skilning á rekstri fyrirtækja. (EG: Og gildi einkareksturs.) Og gildi einkareksturs. — Ég tek það fram og skýt því hér inn í að það er misskilningur að hið opinbera hafi haft einhverja hönd í bagga með byggingu nýrrar steypustöðvar. Ég trúi að það sé sú sem reis í Garðabæ. Það var hinu opinbera alveg ókunnugt um þangað til að fulltrúa ríkisstj. var boðið að vera viðstaddur vígslu. Það kann vel að vera að þetta sé of mikil fjárfesting. Ekki kann ég að fara með lánveitingar úr opinberum sjóði eins og Iðnlánasjóði, en ég held að þar hafi verið um 30 millj. kr. ef ég man það rétt. En hið opinbera gildraði ekki til þess og stýrði engum fjármunum. Þó að segja megi auðvitað að Iðnlánasjóður sé að nokkru leyti opinber sjóður, þá er hann þó í eigu stéttarinnar að kalla en að því leyti hefur hið opinbera aðild að það að forminu til setur sjóðnum stjórn þó að stjórnarmenn séu tilnefndir af hagsmunaðilum. Þetta var nú innskot.

Úttekt á rekstri fyrirtækisins hefur farið fram og það þarf ekki til lengdar að verða neinn leyndardómur hvílandi yfir þeirri úttekt. Í fyrsta lagi gaf ég stjórninni færi á að ræða málið ítarlega við Kaupþing sem er ráðgjafarfyrirtæki sem tók út fyrirtækið Sementsverksmiðjuna. Næsta skref er það sem ég þarf að gefa mér tíma til. Það varð niðurstaða mín og stjórnarformanns að ég leiddi saman ráðgjafarfyrirtækið og stjórnina því að þessa aðila greinir á í nokkrum atriðum um hvernig að skuli búið verksmiðjunni, stjórnun hennar og rekstri í framtíðinni. Ég tek þó fram að þessi skýrsla varð mér að mestu fagnaðarefni og get ég þó ekki sagt að þær hafi allar orðið það skýrslurnar um rekstur og stöðu hinna ýmsu fyrirtækja sem til mín eru skrifaðar. En ég verð að segja það eins og er og sem ég raunar hafði haft nokkur kynni af rekstri þessa fyrirtækis að fyrirtækið er á góðum vegi og rekstur þess í góðu lagi, að mínum dómi. Ég hafði nefnilega kynnst þessu fyrirtæki og rekstri þess allverulega vegna þess að ég átti að heita einu sinni stjórnandi Framkvæmdasjóðs sem var aðallánasjóður þessa fyrirtækis og einkum og sér í lagi á kreppuárum fyrirtækisins. Framkvæmdasjóður átti með sinni fyrirgreiðslu einna drýgstan þátt í að reisa þetta fyrirtæki við fjárhagslega þegar mest knúðu á vandræðin vegna verðlagsstefnu hins opinbera. Þess vegna þekkti ég þar til innandyra. Framkvæmdasjóður hafði margsinnis gert aðsjón í rekstri fyrirtækisins og eins og ég segi, það á mitt traust þótt auðvitað megi ýmislegt betur fara, eins og fram kemur í skýrslu Kaupþings, og tek ég þó fram að þar er ýmislegt líka sem ég fyrir mitt leyti get ekki samþykkt.

Læt ég þá lokið þessum atriðum sem ég vildi að kæmu fram, en það voru aðalrökin fyrir þessu sem menn spyrja um. Þá vísa ég til þess að hið háa Alþingi hefur, og þæfði það lengi með sér, sett lög um hlutafélög sem kölluð hafa verið hið fullkomnasta form um félagsskap í rekstri fyrirtækja. Þar er að finna, með því að fletta þeim lögum, meginástæðurnar fyrir þeirri tillögu sem hér er gerð, að hlutafélagaformið hlýtur að teljast það eðlilegasta þegar um slíkt fyrirtæki er að ræða og enda þótt ríkið væri 100% eigandi að hlutabréfunum. Það á ekki við Sementsverksmiðjuna sérstaklega. Ég bið menn sérstaklega að athuga það. Það á ekki við hana þegar ég rifja upp hvernig aðstæður hafa oft verið hjá ríkisreknum fyrirtækjum í því formi sem Sementsverksmiðjan er.

Ég er auðvitað þingræðissinni og hef ekkert við það að athuga að fyrirtæki sé valin stjórn eftir hlutfallskosningu á Alþingi. En löngum og löngum og oft og tíðum hafa viðkomandi aðilar, sem valdir hafa verið af hálfu ríkisins, ekki litið á sig sem sérstaka ábyrgðaraðila, kosna í stjórn til þess að veita fyrirtækinu aðhald og forstöðu og forsjón, heldur til þess að þiggja bitling. (Gripið fram í.) Þeir hafa kannske setið áratugum saman í stjórn án þess að vera sér meðvitandi um það nokkru sinni að á þeim hvíldi þung ábyrgð, að ég tali ekki um þegar stórfyrirtæki eiga í hlut. Hér gegnir allt öðru máli — og þyrftu nú aðaleigendur í hlutafélagi að fara að kynna sér lögin sem gilda um hlutafélög, íshúsforstjórar frá Snæfellsnesi, og gá að því að þar er kveðið á um hin þýðingarmestu atriði sem gæta skal í rekstri fyrirtækja og sem hafa annaðhvort ekki eða að mjög litlu leyti verið í framkvæmd og þeirra lítt gætt í stjórn hinna ýmsu alríkisreknu fyrirtækja.

Ég hleyp á þessu, virðulegi forseti, eftir því sem tíminn er runninn. Þar er að finna upphaflega sérákvæði um þegar fyrirtæki er stofnað og við stofnun þess yfirtekur það eða kaupir annað fyrirtæki í reksturinn. Það er alveg nauðsynlegt í þessu falli þar sem við erum að tala um að nýtt fyrirtæki yfirtæki Sementsverksmiðju ríkisins í núverandi mynd. Ítarleg ákvæði eru um hvernig kosning stjórnar fer fram á hluthafafundum. Hæfnisskilyrði stjórnarmanna eru fram tekin. Ætli það sé nú víst að þess hafi alltaf verið gætt þegar menn hafa verið að kjósa hlutfallskosningu á Alþingi menn til hinna ýmsu hluta? Ég er ekki að vísa á einn eða neinn eða nefna einstök dæmi og síst Sementsverksmiðjuna, (EG: Það er rétt að taka það skýrt fram.) heldur er ég að tala almennt um málin. — Hver veit, ef væru krufin til mergjar öll mál, nema í ljós kæmi að ég hefði nokkuð til míns máls.

Það eru ítarleg ákvæði um starfssvið stjórnar og um starfssvið framkvæmdastjóra. Skyldi nú ekki mega ætla að þetta sé hvort tveggja nauðsynlegt? Það er kveðið á um vanhæfni stjórnarmanna, alveg sérstök grein, 56. gr. Það er kveðið á skýrum stöfum um hagsmunaárekstra eins og t. a. m. segir í 60. gr., með leyfi virðulegs forseta:

Félagsstjórn, framkvæmdastjóri og aðrir þeir, er hafa heimild til að koma fram fyrir hönd félagsins, mega ekki gera neinar þær ráðstafanir, sem bersýnilega eru fallnar til þess að afla ákveðnum hluthöfum eða öðrum ótilhlýðilegra hagsmuna á kostnað annarra hluthafa eða félagsins.“

Hér eru ítarleg ákvæði um valdsvið hluthafafundar. Hér er kveðið á um árlega aðalfundi. Hvernig fara uppgjör fram eða hafa farið fram hjá ýmsum ríkisfyrirtækjum og hvernig er ársreikningum skilað og hvar eru þeir krufnir til mergjar? Ég get um þetta dæmt og um þetta borið að því sem til þessara kasta hefur komið af minni hálfu vegna fyrirtækja sem eru í umsjá iðnrn. En nú er þetta breytt. Hér er kveðið á, sem mjög mikilsvert er, um rétt minni hlutans. Og skýr ákvæði eru um upplýsingaflæði til hluthafa. Ég get haldið svo lengi áfram. Hér er ákvæði um réttarvernd minni hluta. Hér eru ítarleg ákvæði um endurskoðun og sérstakar rannsóknir og um hæfnisskilyrði endurskoðenda. Ég get haldið lengi svo áfram um ársskýrslur út í þann hörgul að kveðið er á um reglur um uppsetningu, þannig að menn geti lesið eins úr þeim niðurstöðum sem fást við ársuppgjör.

Virðulegi forseti. Ég lýk máli mínu, enda fundartími hv. deildar runninn út. Ég held að þegar menn skoða þetta af rósemi hugans niður í kjölinn og ef þeir leggja á sig að líta fram hjá gamla íhaldinu sem í þeim býr og kreddusjónarmiðunum, þá muni þetta njóta góðs byrs hérna í hv. deild.