27.03.1985
Neðri deild: 52. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3913 í B-deild Alþingistíðinda. (3244)
209. mál, Verðlagsráð sjávarútvegsins
Kristín S. Kvaran:
Virðulegi forseti. Hv. þm. Guðmundur Einarsson hafði samband við mig og bað mig að mæla hér fyrir minnihlutaáliti sínu ásamt brtt. sem við flytjum við þetta frv. um það að 10. gr. frv. falli niður. Þessi brtt. er á þskj. 631. Nál., sem hv. þm. Guðmundur Einarsson skrifar undir, er á þessa leið:
„Þm. BJ hafa þrisvar sinnum flutt frv. til l. um breytingu á lögum nr. 81 frá 23. júlí 1974, um Verðlagsráð sjávarútvegsins, þar sem lagt er til að sú skipulagsbreyting verði gerð á ákvörðun Verðlagsráðs um verð á sjávarafla að lágmarksverð verði ákveðið í frjálsum samningum af fulltrúum fiskkaupenda og fiskseljenda í Verðlagsráði sjálfu. Frv. gera ráð fyrir að niður verði felld 10. gr. laganna þar sem fjallað er um sérstaka yfirnefnd Verðlagsráðs þar sem sæti á m. a. oddamaður frá Þjóðhagsstofnun. Breytingin felur það í sér fyrst og fremst að tekið er fyrir bein afskipti ríkisvaldsins af verðákvörðunum á sjávarafla og ábyrgð þess á þeim.
Hlutdeild ríkisvaldsins hefur á undanförnum árum leitt til gengisfellinga, upptöku gengismunar, dreifingar uppsafnaðs söluskatts og þess háttar meðaltalsæfinga í kringum núllpunktinn. Slík stjórnlist kann einhverjum að þykja „pólitískt skynsamleg“ á hverjum tíma en á ekkert skylt við skynsamlega stefnu í efnahags- og atvinnumálum.
Í frv. því um Verðlagsráð sjávarútvegsins, sem hér er fjallað um, er enn þá að finna óbreytt ákvæði um yfirnefnd eins og er í 10. gr. laganna frá 1974. Undirritaður flytur brtt. á sérstöku þskj. um að þessi grein verði felld niður úr frv. Ef sú brtt. nær ekki fram að ganga mun hann greiða atkvæði gegn frv.“ — Hann er nú að vísu ekki hér til þess.
„Í 6. gr. frv. er ákvæði um að Verðlagsráði sé heimilt að gefa verðlagningu á tilteknum fisktegundum frjálsa ef sérstaklega standi á að mati ráðsins enda sé einróma samkomulag um það í ráðinu. Í 8. gr. frv. er nýtt ákvæði um að Verðlagsráð skuli haga verðákvörðunum sínum þannig að það stuðli að bættri meðferð afla, þ. e. að tekið verði mið af gæðum sjávaraflans eftir því sem markaðsaðstæður bjóða upp á. Undirritaður telur bæði þessi ákvæði til bóta og væntir þess að þau móti starfsemi nýs Verðlagsráðs verði frv. þetta að lögum.
Alþingi, 25. mars 1985.
Guðmundur Einarsson.“
Við teljum að með þessari breytingu verði samningsaðilar ábyrgari í samningsgerðinni og lausn óábyrgra og óraunhæfra samninga verði ekki eins og nú að ávísa á ríkiskassann. Menn þurfa að læra að sniða sér stakk eftir vexti og á ég þá við útgerðarmenn og fiskvinnslumenn. Við viljum með þessari till. leggja af þau beinu afskipti sem ríkið hefur af ákvörðun um fiskverð.