27.03.1985
Neðri deild: 52. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3919 í B-deild Alþingistíðinda. (3252)

209. mál, Verðlagsráð sjávarútvegsins

Garðar Sigurðsson:

Herra forseti. Ég nenni satt að segja ekki að vera að elta ólar við skæting úr öllum áttum, mér finnst hann leiðinlegur, heimskulegur og óþarfur. Hvað á það að þýða þegar menn eru að bera það á eina hv. þingnefnd að hún skoði ekki mál, vinni illa? Ég kann ekki við þetta. Ég hef verið í sjútvn. síðan ég kom hér á þing fyrir 14 árum og ég veit ekki til þess að þeirri n. hafi hingað til verið borið það á brýn að hún ynni illa og kynnti sér ekki mál. Menn gera það auðvitað misjafnlega. Í svona nefndum eru sjö manns og þeir eru misjafnir og þekkja misjafnlega vel til. Ég hef verið hér í ýmsum öðrum þingnefndum. Ekki hef ég verið í neinni nefnd sem ævinlega hefur klárað hvert mál á hverju einasta ári eins og þessi nefnd hefur gert, hreint borð.

Það er líka dálítið einkennilegt að mínum dómi þegar virðulegir hv. þm., eins og Kristín Kvaran 1. landsk. þm., eru að láta liggja að því að ákvarðanir um fiskverð í Verðlagsráði hafi verið einhverjar ávísanir handa ríkinu til að borga. Sjávarútvegurinn á Íslandi er ekki ómagi, hvorki á ríkinu né öðrum. Hann stendur fyrir sínu. Þeir fjármunir, sem notaðir hafa verið til að bjarga ýmsum vandræðamálum í sjávarútveginum, hafa komið frá honum sjálfum. Það hefur verið um millifærslur að ræða. Ég vil ekki heyra það hér á hinu háa Alþingi að sjávarútvegurinn sé ómagi á þessari þjóð. Það er hann sem heldur enn í henni lífinu þrátt fyrir alls konar vitleysur sem hafa verið gerðar í öðrum atvinnugreinum af öllum ríkisstjórnum.

Ég vil aðeins segja það við hv. þm. Karvel Pálmason í virðingarskyni — að maður skuli yfirleitt ansa þeim manni — að ég tek ekki afstöðu eftir því hvort mínar skoðanir falla saman við einhvern og einhvern hæstv. sjútvrh. hverju sinni. Ég slæst ekki hér í málum bara til þess eins að vera á móti ríkisstj. Hún getur haft rétt fyrir sér.