27.03.1985
Neðri deild: 52. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3932 í B-deild Alþingistíðinda. (3267)

Umræður utan dagskrár

Maríanna Friðjónsdóttir:

Herra forseti, virðulegi þingheimur. Það sem kom fram í máli hæstv. menntmrh. hér á undan var náttúrlega margt og mikið. Vissulega munar um hvern skóladag. En það er ekki það kannske sem hér er verið að ræða um. Og er það nú von manns að fleiri framhaldsskólanemar en „nokkrir“ muni taka þátt í þessu verkefni ef það verður framkvæmt. En það sem kannske er hér til umræðu er það að íslenskt æskufólk á sér draum. Það á sér draum, að með samvinnu og samhjálp sé unnt að færa þjóðir heims hverja nær annarri, þann draum að ef allir leggja sitt af mörkum þá verði okkur unnt að búa þessum heimi bjartari framtíð.

Við unga fólkið eigum eftir að byggja þessa jörð um ókomin ár og við viljum leggja okkar af mörkum til þess að slíkt sé unnt. Um það ber þetta framtak æskunnar vitni sem hér hefur verið til umr. Hér eru ungmennin að leggja sitt lóð á vogarskálarnar til þess að gefa fótum troðinni svartri æsku Suður-Afríku von um betra líf. Hér er verið að vinna að því að gera drauminn að veruleika. Því er neitun þessi ámælisverð og það læðist að manni sá grunur að eldri kynslóðin hafi hreinlega gefist upp og deili ekki lengur með okkur draumnum um að unnt sé að efla samvinnu þjóðanna og búa ókomnum kynslóðum betri heim.