27.03.1985
Neðri deild: 52. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3934 í B-deild Alþingistíðinda. (3270)
Umræður utan dagskrár
Steingrímur J. Sigfússon:
Herra forseti. Örfá orð. Ég vil gera orð síðasta ræðumanns að mínum og skora á aðila þessa máls að reyna að ná saman um að bjarga því sem bjargað verður þó auðvitað sé ómælt tjón búið að hljótast af þeim leiðindum sem hér hafa orðið.
Ég ætla svo sannarlega að vona að það sé ekki málefnið sem valdi þessum furðulegu vinnubrögðum. Ég vil trúa því í lengstu lög að svo sé. En fyrirgefst manni að hafa efasemdir í þeim efnum þegar maður er búinn að kynnast málsatvikum? Fyrirgefst manni það? — Ég spyr.
Ræða hæstv. menntmrh. hér var svo sem eftir vonum. Ég átti ekki von á mikið öðruvísi viðbrögðum en þar komu fram. Það rak hver mótsögnin aðra. Ýmist höfðu nemendur auðvitað átt að drífa í þessu 21. mars eins og til stóð eða þá að menntmrh. sagði í næstu setningu að hún hefði ekki talið það koma til greina að heimila að þetta yrði framkvæmt á þeim degi. Hæstv. menntmrh. verður að fara að skilja það, það er ekki seinna vænna, að einungis var beðið um frí fyrir þá nemendur sem ætluðu að taka þátt í verkefninu og ætluðu að skila inn til sinna skólayfirvalda fylgiskjölum um það að þeir hefðu gert svo. Búið var að prenta sérstök eyðublöð til þess að hægt væri að fylgjast með því, þannig að það má liggja hér alveg ljóst fyrir að það átti að standa þannig að því að ekkert misferli yrði í því sambandi.
Ýmist vissi menntmrh. ekki betur en að þetta hefði farið fram eða hann vissi alls ekkert um málið og í næstu setningu varð hann nú þó nokkuð kunnugur einstökum atriðum, þannig að þetta var allt mjög sérkennilegt og að vonum. Auðvitað var það spurningin um þátttökuna sem mestu máli skipti, að viðbrögð rn. yrðu jákvæð í þessu máli. Það gefur auga leið að besta leiðin til að tryggja þátttöku var að menntmrn. gæfi mjög tímanlega út velvilja sinn í þessu máli og styddi þetta verkefni með þeim hætti að skólastjórar og skólayfirvöld alls staðar vissu að það nyti velvilja rn. og þeim væri heimilt að gefa þeim nemendum frí sem þess óskuðu í þessum efnum.
Ég ætla ekki að svara dylgjum hæstv. menntmrh. um það hvernig þessum fjármunum hefur verið varið. Það hefur mikið starf verið innt af höndum og það hefur ekki verið greitt fyrir það allt, hæstv. menntmrh. Þetta er einungis hluti af þeim störfum sem þarna hefur verið unnið. Og í þessu felst m. a. samstarf við hin Norðurlöndin, þar hefur þetta verkefni notið stuðnings Norðurlandaráðs svo dæmi séu tekin.
Ég tek undir það að það var heldur nöturlegt að heyra þann ræðustúf hæstv. menntmrh. að skólanemendur hefðu ekki efni á einum degi vegna þess að þeir hefðu misst þrjár vikur úr kennslu, rétt eins og það hefði verið eitthvert náttúrulögmál. Auðvitað var það stífni og óbilgirni hæstv. ríkisstj. sem var orsökin að því að nemendurnir misstu þessar þrjár vikur en síðan á allt í einu allur heimurinn að ráðast á einum degi.
Herra forseti, fyrirgefist mér orðbragðið, ég lýsi frati á þessa ákvörðun hæstv. menntmrh.