28.03.1985
Sameinað þing: 66. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3936 í B-deild Alþingistíðinda. (3275)
13. mál, athvarf fyrir unga fíkniefnaneytendur
Guðrún Agnarsdóttir:
Virðulegi forseti. Ég fagna því að þessi þáltill. hefur fengið afgreiðslu úr hv. allshn. Sþ. Sömuleiðis fagna ég því að n. er einhuga um að mikil nauðsyn sé á athvarfi fyrir unga fíkniefnaneytendur. Flm. þessarar þáttill. hafa reyndar hitt að máli þann hóp stjórnskipuðu nefndarinnar sem fjallar sérstaklega um geðheilbrigðismál barna og unglinga og komist að raun um að hugmyndir okkar um úrlausn þessa vanda ungra fíkniefnaneytenda falla mjög vel að hugmyndum nefndarinnar. Þegar við þm. Kvennalistans fluttum þessa till. var okkur ekki kunnugt um störf þessarar nefndar eða hve langt þau væru komin.
Það er að sjálfsögðu rétt að spara nefndarstörf þar sem þeirra er ekki þörf og mestu varðar að farsæl úrlausn fáist. Það hygg ég að gerist þegar þessi stjórnskipaða nefnd skilar tillögum sínum þann 1. apríl n. k. sem er jafnvel fyrr en tillaga Kvennalista gerði ráð fyrir. Þá varðar mestu að framkvæmdavaldið bregði skjótt við og láti af hendi rakna það fjármagn sem nauðsynlegt er til að leysa þennan vanda. Ég vil undirstrika hér og leggja ríka áherslu á það að þennan vanda má leysa án þess að til komi húsbyggingarframkvæmdir eða önnur dýr meðferðarúrræði.
Það er enginn vafi á því að miklar áhyggjur búa meðal alls almennings vegna vaxandi fíkniefnaneyslu barna og unglinga. Sem dæmi um það má nefna stofnun áhugasamtaka um athvarf fyrir unga fíkniefnaneytendur nýlega þar sem saman voru komin meira en 100 manns.
Í lok nál., sem vitnað var til hér áðan, stendur, með leyfi forseta:
„Allshn. telur því ekki ástæðu til að skipa nýja nefnd til að vinna þetta verk þar sem að því er unnið af færustu sérfræðingum og tillagna að vænta fyrir 1. apríl n. k. samkvæmt einróma ályktun Alþingis. Því er lagt til að till. verði vísað til ríkisstj. í trausti þess að framkvæmdir verði í samræmi við vilja alþm., þegar tillögur til úrbóta liggja fyrir, og til þeirra verði veitt fé.“
Flm. þessarar till. sætta sig vel við þessa afgreiðslu málsins með því skilyrði þó að framkvæmdir verði í samræmi við vilja alþm. þegar tillögur umræddrar nefndar liggja fyrir.