28.03.1985
Sameinað þing: 66. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3937 í B-deild Alþingistíðinda. (3279)
100. mál, þingnefnd vegna rekstrarvanda í sjávarútvegi
Frsm. meiri hl. (Björn Dagbjartsson):
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nál. meiri hluta atvmn. á þskj. 618. N. ræddi till. og fékk umsagnir frá eftirtöldum aðilum: Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands, Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna, Fiskifélagi Íslands, Þjóðhagsstofnun, Landssambandi íslenskra útvegsmanna, Félagi Sambandsfiskframleiðenda, Sölusambandi íslenskra fiskframleiðenda, viðskiptaráðuneyti og sjávarútvegsráðuneyti.
Þótt flestar umsagnir hvetji til aðgerða af hálfu stjórnvalda til að bæta hag sjávarútvegs er jafnframt ljóst að niðurstöður liggja fyrir um mörg þau atriði sem lagt er til í þál. að athuguð séu. Ríkisstj. hefur vanda sjávarútvegs til athugunar og meðferðar og hefur reyndar frá því að till. var flutt þegar gert ráðstafanir í þágu sjávarútvegsins. Meiri hluti n. leggur því til að till. verði vísað til ríkisstj.
Ég vil leyfa mér að vitna nokkrum orðum í þær umsagnir sem bárust, með leyfi forseta. Frá Sölusambandi íslenskra fiskframleiðenda barst umsögn og þar segir m. a.: „Nú þegar liggja fyrir ítarlegar upplýsingar um flest ef ekki öll þau atriði sem þessari nefnd er ætlað að kanna. Hætt er við að störf fjölmennrar nefndar taki langan tíma og tefji ákvörðunartöku sem í raun má ekki dragast lengur.“
Í bréfi Félags Sambandsfiskframleiðenda segir m. a., með leyfi forseta: „Það er að sjálfsögðu guðsþakkarvert ef einhver hefur áhuga á að leysa rekstrarvanda sjávarútvegsins. Það mætti hins vegar gera hraðar en gert er ráð fyrir í þessari þáltill. Hún gerir t. d. ráð fyrir að þm. athugi átta tölusetta liði. Þessari athugun mætti sleppa þar sem niðurstöður liggja allar fyrir nú þegar.“ Enn fremur segir þar: „Það hefur nefnilega ekki skort á úttektir á vandamálunum.“
Í bréfi Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna segir: „Vér leggjum því áherslu á að af hálfu hæstv. Alþingis verði hið skjótasta gripið til viðeigandi ráðstafana. Ljóst er að í þessum efnum er ekki um einfaldar lausnir að ræða. Treystum vér því að hæstv. Alþingi fjalli um málefni sjávarútvegsins með raunsæjum hætti og vekjum athygli á því að nú þegar liggja fyrir gögn um hina slæmu stöðu sjávarútvegsins.“
Frá stjórn LÍÚ segir að samþykkt hafi verið að lýsa þeirri afstöðu að ástæðulaust sé að skipa sérstaka nefnd til athugungar á rekstrarvanda sjávarútvegsins.
Þá barst löng og ítarleg umsögn frá Þjóðhagsstofnun þar sem töluliðunum átta, sem rætt er um í till., er öllum svarað lið fyrir lið og bent á hvar upplýsingar um þá liði sé að fá.
Í bréfi sjútvrn. segir: „Sjútvrh. hefur falið Þjóðhagsstofnun í samvinnu við utanrrn. og Landssamband íslenskra útvegsmanna að safna upplýsingum um opinberan stuðning við sjávarútveg í helstu viðskipta- og samkeppnislöndum Íslendinga. Þá tekur rn. fram að þau viðfangsefni, sem eru tilgreind í till., eru verkefni stjórnvalda og hagsmunaaðila og er unnið að þeim nú sem fyrr. Rn. telur ekki ráðlegt að flytja svo mikilvægt mál inn á starfsvettvang nefndar og mælir því ekki með kosningu hennar. Hins vegar hafa verið skipaðar nefndir til að fjalla um afmörkuð mál sjávarútvegsins og er nauðsynlegt að halda því áfram.“
Í bréfi frá Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands segir: „Farmanna- og fiskimannasamband Íslands vill fyrir sitt leyti lýsa stuðningi við till. um kosningu þingnefndar vegna rekstrarvanda í íslenskum sjávarútvegi sem og allar kannanir og úttektir á sjávarútveginum sem leitt geta til aukins og almennari skilnings á vandanum.“ Þá lýsir stjórn Fiskifélags Íslands einnig yfir stuðningi við efnisatriði till. og hvetur til þess að Alþingi samþykki hana hið fyrsta með tilliti til mikilvægis þess að starfi fyrirhugaðrar nefndar verði lokið í síðasta lagi við upphaf þings á hausti 1985.
Að metnum þessum umsögnum og þrátt fyrir það að tvær umsagnir, frá Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands og Fiskifélagi Íslands, mæltu með samþykkt till. þótti meiri hluta rétt að vísa till. til ríkisstj. Eins og segir í grg. hefur ríkisstj. vanda sjávarútvegs sífellt til meðferðar og hefur bæði betri aðstöðu og betri hjálpartæki til að meta aðstæður sjávarútvegs en þingnefnd. Ég hef tekið þátt í einni slíkri nefnd sem skipuð var af þáverandi hæstv. ráðherrum viðskipta og sjávarútvegs árið 1979. Ég viðurkenni að ég var nokkru fróðari eftir þau nefndarstörf, en út úr þeim kom að mínu viti nákvæmlega ekkert. Meiri hluti nefndarinnar leggur sem sagt til að till. verði vísað til ríkisstj.