28.03.1985
Sameinað þing: 66. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3938 í B-deild Alþingistíðinda. (3280)

100. mál, þingnefnd vegna rekstrarvanda í sjávarútvegi

Frsm. minni hl. (Garðar Sigurðsson):

Herra forseti. Þá hefur frsm. meiri hl. lokið máli sínu og hefur greint frá niðurstöðu meiri hl. n. sem er fólgin í því að vísa þessari till. til ríkisstj. Miðað við frammistöðu ríkisstj. í þessum efnum og raunar fyrri ríkisstjórna einnig er ríkisstj. ósköp einfaldlega ekki treystandi til að fara með þessa hluti. Það eru stór orð en því miður byggjast þau á reynslu.

Hvað hefði verið að því að samþykkja þessa till.? Hún er fólgin í því að kjósa nefnd til að kanna gaumgæfilega rekstrarvanda í íslenskum sjávarútvegi. Við lifum jú allir á honum. Hvað getur verið því til fyrirstöðu að skoða nú þessa hluti alla saman í einu og sundurgreina þennan vanda, draga saman allar upplýsingar á einn stað og ráðast síðan á þá þætti sem gætu orðið sjávarútveginum til framdráttar?

Við í minni hl. skilum nál. á þskj. 628 sem er á þessa leið, með leyfi forseta:

„Minni hl. nefndarinnar telur fulla þörf á að skipa nefnd til að athuga rekstrarvanda sjávarútvegsins þó að miklar upplýsingar liggi þegar fyrir um marga þætti hans. Fyrst þarf að draga saman þessar upplýsingar, síðan auka verulega við þær, skoða þær síðan og skilgreina jafnframt hina margvíslegu og margþættu erfiðleika í rekstri sjávarútvegsins og leita loks leiða til að leysa hann á skipulegan og markvissan hátt — og hrinda því í framkvæmd.

Farmanna- og fiskimannasamband Íslands leggur til að till. verði samþykkt og gamalgróin upplýsingastofnun í sjávarútvegi, Fiskifélag Íslands, gerir það einnig. Ýmis önnur samtök í sjávarútvegi eru hlynnt sjónarmiðum sem koma fram í till., þ. á m. eru Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna, Samband ísl. fiskframleiðenda og Félag sambandsfiskframleiðenda. Minni hl. n. leggur til að till. verði samþykkt.“

Herra forseti. Það kemur fram í þessu nál. að nokkur veigamikil samtök og stofnanir senda jákvæðar umsagnir. Að mínu mati er meiri hl. umsagna jákvæður. Þess vegna get ég ekki skilið það af hverju má ekki samþykkja þessa till. Mér er nær að halda að það sé aðeins ein ástæða fyrir því að hún fæst ekki samþykkt, einfaldlega sú að hún er ekki borin fram af stjórnarliðum. Ég tel það afar slæmt ef það á að vera regla að ekki megi samþykkja nokkra minnstu till. frá stjórnarandstöðunni, jafnvel þótt málið sé gott og hafi meðmæli mjög ábyrgra aðila í atvinnuveginum. En þetta er eins og oftar áður, að það er eins og að berja höfðinu við steininn að ætlast til þess að einhver till. frá stjórnarandstöðunni sé samþykkt.

Herra forseti og hv. alþm. Ég legg það til að þið samþykkið þessa till. hvað svo sem meiri hl. hefur borið á borð fyrir ykkur.