28.03.1985
Sameinað þing: 66. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3940 í B-deild Alþingistíðinda. (3283)
358. mál, þjóðgarður við Gullfoss og Geysi
Hjörleifur Guttormsson:
Herra forseti. Sú till. sem hér liggur fyrir til umr. um að fela ríkisstj. að hefja nú þegar undirbúning að stofnun þjóðgarðs umhverfis Gullfoss og Geysi er góðra gjalda verð. Með flutningi hennar kemur fram áhugi hjá hv. flm. á að tryggja betur en nú er verndun þeirra staða sem þar eru nefndir og sem er tilefni flutnings till. og þeirrar hugmyndar að stofna þjóðgarð á þessu svæði. Fáir staðir hérlendis eru jafnfjölsóttir og þessar perlur í íslenskri náttúru, sem þar eru nefndar, eru jafnvel tilefni heimsóknar útlendinga hingað til lands fremur en margt annað sem vissulega er kannske ekki síður skoðunarvert en Gullfoss og Geysir þó að nöfn þeirra rísi hærra en flest önnur hérlendis í sambandi við íslenska náttúru og kynningu á henni gagnvart erlendum ferðamönnum. Mér finnst því möguleikar á því að fella þessi stórbrotnu náttúrufyrirbæri innan þjóðgarðs í framtíðinni vera góðra gjalda verðir. En ég geri ráð fyrir að málið sé býsna flókið viðfangs vegna þeirra mörgu hagsmuna sem þarna eru fyrir og mismunandi eignarhalds á landi því sem eðlilegt væri að félli innan þjóðgarðsmarka, og þyrfti a. m. k. að sameina þessa tvo staði, Gullfoss og Geysi, en einnig að verða að taka til mun víðara svæðis því að eitt megineinkenni þjóðgarðs til að rísa undir nafni er víðfeðmi eins og á þau mál hefur verið litið hérlendis skv. skilgreiningu laga og ekki síður erlendis þar sem þjóðgarðar hafa verið stofnaðir.
Ég get hins vegar ekki neitað því, þegar litið er á þessa till. og það sem henni fylgdi frá hv. 1. flm. Eiði Guðnasyni, að mér finnst málið ekki vera vel undirbúið af hálfu flm. hvað snertir hvernig það er lagt fyrir þingið. Það fylgir í rauninni engin leiðsögn um hversu víðfeðmt það svæði er sem flm. hafa í huga að þarna verði litið til í sambandi við þjóðgarð né heldur hvernig eignarhaldi og umráðarétti er háttað á þeim lendum sem liggja t. d. milli þessara tveggja staða, Geysis og Gullfoss.
Náttúruverndarráð hefur um árabil látið sig varða Gullfoss og nágrenni hans og þar er nú friðland, að ég best veit, reist á sérstakri gjöf til Náttúruverndarráðs eða a. m. k. umráðarétti sem framseldur var til ráðsins á landspildu meðfram Hvítárgljúfri upp að Gullfossi og hygg ég að það land hafi nú verið afmarkað með sérstakri girðingu þó að ég vilji ekki um það fullyrða. Einnig hefur verið bætt aðstaða við Gullfoss frá því sem áður var að tilstuðlan Náttúruverndarráðs og ferðamálaráðs sem hefur stutt það verkefni með fjárframlögum, enda ekki vanþörf á að bæta úr því ástandi sem þar ríkti hér á árum áður, og Alþingi heimilaði sérstaka lántöku í þessu skyni, ég hygg vorið 1979.
Geysir hefur hins vegar lengi verið undir svokallaðri Geysisnefnd sem farið hefur með verndarsvæðið umhverfis Geysi á vegum menntmrn. og sá staður ekki verið í umsjá Náttúruverndarráðs, eins og ég hefði þó talið eðlilegt og sjálfsagt að gert hefði verið í rauninni strax eftir að lög voru sett hér um náttúruvernd 1956. En þetta er söguleg arfleifð fyrri tíðar þegar tekið var á þessu málefni sérstaklega, þ. e. Geysi og næsta umhverfi. Það var gert áður en sett voru lög um náttúruvernd og sérstakri nefnd falin umsjá þessa svæðis og hún hefur sem sagt það verkefni enn í dag.
Hv. flm. nefndi hér að æskilegt væri að strax fyrir næsta Alþingi lægi fyrir frv. til l. um þjóðgarð á þessu svæði. Ég átta mig ekki alveg á þeirri hugsun sem þarna er að baki, hvort flm. telja nauðsynlegt að taka á verndun þessa svæðis með öðrum hætti en gert hefur verið varðandi aðra þjóðgarða í landinu sem reistir eru skv. ákvæðum í lögum um náttúruvernd. Þau ákvæði gera ráð fyrir því að veita heimild til þess að stofna til þjóðgarða á svæðum í ríkiseign sem hafi tiltekna eiginleika varðandi náttúrufar og einnig sagnhelgi, sem getur ein út af fyrir sig réttlætt stofnun þjóðgarðs þó að eðlilegt sé að þar sé einnig horft til náttúruverndar og kannske númer eitt til náttúruverndar. Slíkur staður, sem sameinar hvort tveggja, er Þingvellir, þar sem fyrsti þjóðgarður var stofnaður hérlendis, og um þá gilda vissulega sérlög sett 1928. Það svæði er í sérstakri umsjá Alþingis og Þingvallanefndar sem starfar í umboði Alþingis. Ástæðan fyrir því að um þá voru sett sérstök lög var sú að þá höfðu ekki verið sett lög um náttúruvernd, en þeir þjóðgarðar sem síðan hafa verið stofnaðir, þjóðgarðurinn í skaftafelli og þjóðgarðurinn í Jökulsárgljúfrum, eru báðir stofnaðir fyrir tilstuðlan Náttúruverndarráðs á grundvelli náttúruverndarlaga.
Ég tek sem sagt undir þá góðu hugsun sem fram kemur í till. og tel verðugt verkefni að athugaðir séu möguleikarnir á að stofna þjóðgarða á þessu svæði. Ég hygg, án þess að hafa athugað það sérstaklega, að ýmsar hindranir séu í vegi og þurfi talsvert fram að leggja til landakaupa til að gera þetta kleift, en ekki mun standa á mér að stuðla að því að svo geti orðið þó það sé auðvitað alltaf álitamál hvernig ráðstafa eigi fjármagni sem til reiðu er í því skyni. Í því sambandi vil ég nefna að önnur svæði ættu kannske að koma á undan. Ég nefni jarðir í Þingvallasveit og Grafningi umhverfis Þingvallavatn sem eru í einkaeigu sumar hverjar og æskilegt gæti verið að hið opinbera eignaðist til að tryggja verndun þessa verðmæta svæðis umhverfis Þingvallavatn fyrir óbornar kynslóðir. Ég hefði einnig kosið, eins og fram hefur komið, að málið lægi skýrar fyrir hér, þegar till. af þessu tagi er fram reidd, þannig að auðveldara væri fyrir þm. að átta sig á þeim hindrunum sem geta verið í vegi til þess að stofna umræddan þjóðgarð, og einnig að flm. hefðu gefið vísbendingu um hversu vítt þeir hugsuðu í sambandi við stærð slíks þjóðgarðs.