28.03.1985
Sameinað þing: 66. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3942 í B-deild Alþingistíðinda. (3284)

358. mál, þjóðgarður við Gullfoss og Geysi

Flm. (Eiður Guðnason):

Herra forseti. Ég þakka hv. 5. þm. Austurl. mestmegnis jákvæðar undirtektir undir þessa till. Okkur greinir kannske á um hvernig till. til þál. eiga að vera. Ég lít svo á að till. til þál. séu viljayfirlýsingar Alþingis.

Þessi till. felur í sér að Alþingi lýsir þeim vilja sínum að stofnaður verði þjóðgarður við Gullfoss og Geysi og að það sé gert með löggjöf. Þetta er alveg skýrt. Ég játa hins vegar að þessari till. fylgja ekki 30 fskj. og hún er ekki upp á 300 prentaðar síður, eins og mjög er til siðs hjá sumum sem leggja fram slík plögg hér á Alþingi. Ég held að þannig eigi þáltill. yfirleitt ekki að vera. Ég held að það komi alveg skýrt fram í þessari till. hver tilgangurinn með henni er.

Það má sjálfsagt um það deila hvort þetta eigi að gera með löggjöf. Ég skal játa það. En þar sem um er að ræða land sem er að hluta til ekki í eigu ríkisins heldur einstaklinga, þá er ekkert ósennilegt að til þess geti komið að atbeina löggjafans þurfi til að þessi hugmynd geti orðið að veruleika.

Ég ætla ekki að hafa um þetta fleiri orð, en ítreka þakkir mínar fyrir heldur jákvæðar undirtektir. Þá gagnrýni sem fram var sett tel ég heldur léttvæga, en sjálfsagt er hægt að finna henni rök og einhverjar stoðir.