28.03.1985
Sameinað þing: 66. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3946 í B-deild Alþingistíðinda. (3289)

199. mál, sparnaður í fjármálakerfinu

Flm. (Eyjólfur Konráð Jónsson):

Herra forseti. Mig langar að þakka þeim hv. þm. sem hér tóku til máls undirtektirnar.

Það er alveg rétt, sem hv. þm. Guðrún Helgadóttir sagði, að auðvitað hafa að ýmsu leyti komið ný störf í bankana, meiri greiðslur og fjölþættari, og ég er henni þakklátur fyrir að nefna það hér. Ég gerði það ekki beint. Og þó. Í grg. er tekið fram að tillögumenn gera sér grein fyrir því að það stjórna þessum stofnunum hæfir menn sem vilja allt hið besta. En það er kerfið sjálft sem hefur tekið völdin. Ég held að menn viti hvað ég á við þegar talað er um kerfið sem hlekkjar okkur meira og minna, það er þessi ofstjórn sem er svo rík víða. Menn hyllast til þess að þenja út stofnanir sínar að óþörfu. Síst situr á mér að vera að lasta starfsfólk bankanna, það eru allir menn vinnandi þarna, en ég er hræddur um að það sé oft tvíverknaður og kannske þríverknaður eða verkleysa í öllu þessu kerfi. Það er mjög mikil þróun að verða í bankastarfsemi víða um heim og við erum þar á eftir, eins og einmitt kom fram í viðtalinu, sem ég las upp úr, við Jónas Haralz. Það eru gífurlegar framfarir í bankamálum. Tölvutæknin er þar að ryðja sér mjög til rúms og þess vegna miklu fljótgerðara að annast ýmiss konar starfsemi en áður var.

Strax þegar við fluttum þessa till., við hv. þm. Pétur Sigurðsson, fyrir sjálfsagt sjö árum, gerðum við okkur alveg grein fyrir því að það yrðu engin stór skref þarna stigin. En við vildum koma þessari aðvörun þá á framfæri um að hugsa málið og reyna a. m. k. að hægja eitthvað á þeirri þróun sem fyrirsjáanleg var og reyndar hafin þar sem bankakerfið var að vefja upp á sig alla tíð samhliða því sem sparifé þjóðarinnar var að ganga til þurrðar. Bankastarfsemi og peningamálapólitík var með þeim hætti að raunverulega var um eignaupptöku að ræða oft og tíðum frá sparifjáreigendum. Það var ekki bara það að menn lánuðu peninga sína til að þenja ríkisbáknið og bankabáknið út, heldur lánuðu þeir þá á neikvæðum vöxtum og þar með segi ég að í rauninni hafi verið um eignaupptöku að ræða, fjármagnsflutninga frá alþýðu landsins, því það er einmitt alþýðan og oft kannske fátækara fólkið sem á einhverja aura sem varasjóð til að grípa til ef á móti blæs eða óhöpp verða. Þetta fé vitum við að hefur meira og minna gengið til þurrðar. Hið sama er raunar að segja um lífeyrissjóðina sem eru lítils eða nánast einskis megnugir vegna þeirrar verðbólguþróunar sem hér hefur verið. Þetta er einn þátturinn í því að bregðast við þeirri óheillaþróun, sem lengst af hefur verið hér síðasta áratuginn og rúmlega það, og endurskipuleggja einnig á þessu sviðinu, og þetta er kannske ekki það sísta, ekki það sem minnst er um vert, heldur þvert á móti, að það mundi vera mjög mikils virði ef þarna tækist að stinga við fótum.

En ég endurtek þakkir mínar fyrir góðar undirtektir undir þetta mál.