28.03.1985
Sameinað þing: 66. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3974 í B-deild Alþingistíðinda. (3305)

330. mál, útboð á neyslu- og fjárfestingarvörum

Flm. (Ragnar Arnalds):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Maríönnu Friðjónsdóttur fyrir ábendingar hennar. Ég vil taka það fram að vissulega yrði að hugleiða það mjög vandlega af þeim aðilum sem tækju að sér framkvæmd þessa máls hvaða vörur yrðu boðnar út. Þær vörur sem nefndar eru hér í grg. eru reyndar ekki þær vörur sem ég persónulega er að leggja til að komi fyrst og fremst til álita, heldur birti ég einfaldlega svolítinn kafla úr kynningarbæklingi Sambands ísl. samvinnufélaga um þær vörur sem þeir telja vera grunnvörur, því að mér finnst að skilgreining þeirra á hugtakinu grunnvara falli ákaflega nærri þeirri skilgreiningu sem ég er með í þessari till. um algengar neysluvörur almennings, vörur sem eru notaðar og keyptar í svo miklu magni að hugsanlegt er að viðhafa útboð í sambandi við framleiðslu og innkaup á viðkomandi vöru. En auðvitað yrði að skoða það vandlega hvort það yrði framkvæmanlegt í raun og veru varðandi allar þær vörur sem Sambandið kallar grunnvörur og notar sem sameiginlegar innkaupavörur með þessum sérstaka hætti sem þeir tíðka.

Ég nefndi líka ýmsar fjárfestingarvörur sem ég tel að komi ekki síður til greina, en þar er þá aðallega um að ræða innfluttar vörur. Það er hárrétt sem hv. þm. nefndi áðan, að till. fjallar alls ekki eingöngu um innfluttar vörur. Hún getur líka náð yfir vörutegundir sem eru framleiddar hér á Íslandi. Og þá var hennar spurning sú hvernig íslenskir framleiðendur kæmu út úr þessu fyrirkomulagi. Ef þeir væru ekki samkeppnisfærir og verðlag þeirra væri hærra en á innfluttum vörum, þá gætu þeir ekki verið með í þessu útboði o. s. frv.

Ég hygg að þarna gildi bara þessi almennu sjónarmið. Ef vörur þeirra eru í dag á hærra verði en innfluttar vörur, þá hljóta þeir að eiga undir högg að sækja í þeirri samkeppni sem á sér stað. Ég held hins vegar að margar af þessum vörum sem ég nefni þarna séu almennt framleiddar á lægra verði hér á landi en ef þær eru innfluttar. Ég hygg að þetta gildi um allar þær vörur sem ég nefni hér og eru framleiddar á Íslandi jafnframt því sem þær eru innfluttar. Ég hef tekið eftir því og kannað það um nokkrar vörutegundir að íslenskir framleiðendur virðast hafa aðstöðu til að framleiða þær á lægra verði en gert er í nálægum löndum. Þar kemur þá margt þeim til góða, eins og t. d. að flutningskostnaður verður miklu minni. Og svo hjálpar sjálfsagt eitthvað að launakjör hér á Íslandi eru svo miklu lakari en í nálægum löndum. Ég sé m. ö. o. ekki að íslenskum framleiðendum sé neitt meiri hætta búin í því kerfi sem hér er verið að gera till. um en í núverandi kerfi. Ég geri ráð fyrir því að þegar vörur þeirra eru dýrari en innfluttar vörur, þá hljóti framleiðendur að eiga verulega undir högg að sækja og eiga í ýmsum erfiðleikum með að selja sínar vörur. En séu vörurnar hins vegar samkeppnisfærar, sem ég hygg að sé í flestum tilvikum varðandi þær vörutegundir sem á annað borð eru hér framleiddar, get ég ekki annað séð en að þessi tilhögun ætti að geta orðið þeim til verulegra hagsbóta, því að mér segir svo hugur að þeir ættu að njóta þess með ýmsum hætti að þetta fyrirkomulag yrði tekið upp, m. a. ef ríkið beindi alfarið viðskiptum sínum og allra sinna stofnana að kaupum á þeirra framleiðslu. Þá stæðu þeir væntanlega sterkar að vígi en áður.