01.04.1985
Neðri deild: 53. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4024 í B-deild Alþingistíðinda. (3340)
210. mál, selveiðar við Ísland
Sjútvrh. (Halldór Ásgrímsson):
Herra forseti. Ég vil byrja á því að fagna því að þetta frv. er komið hér til umr., en það kom einnig til 2. umr. á síðasta þingi og þá var ekki hægt að ná um það samstöðu að frv. fengi hér fram að ganga skv. vilja meiri hl. sjútvn. En það er út af fyrir sig ánægjulegt ef nú kemur að því að lög séu sett um selveiðar. Nú má að sjálfsögðu alltaf um það deila hvernig málum skuli fyrir komið. En um það verður ekki deilt að hringormur er gífurlegt vandamál í íslenskum sjávarútvegi og íslenskum fiskiðnaði. Það er öllum þeim, sem vilja auka okkar þjóðartekjur í reynd og skapa meiri verðmæti í landinu, mikið umhugsunarefni hvernig skuli ráðist gegn þessu vandamáll. Það er alveg rétt að um það eru deildar vísindalegar meiningar hvað hefur gerst í þessu máli. En því verður ekki á móti mælt að þetta vandamál hefur stórvaxið og er að vaxa. Allt bendir til þess að fyrst og fremst megi rekja þetta vandamál til fjölgunar selsins. Þegar slíkt liggur fyrir er mjög erfitt að taka frekari áhættu í þessu máli.
Vegna þeirrar spurningar sem hér hefur komið fram varðandi 3. gr. vil ég vitna til þess sem ég sagði við framsögu í þessu máli, en ég sagði eftirfarandi, með leyfi hæstv. forseta:
„Um það hafa verið nokkuð deildar meiningar hvaða form skyldi haft á því samráði sem hér er fjallað um í 3. gr., hverjir teljist hagsmunaaðilar í þessu sambandi. Það má segja að það sé einnig fiskvinnslan og þeir aðilar sem berjast við hringorm á mörkuðum. Ég tel eðlilegt að fara bil beggja varðandi þessa grein en vil leggja á það áherslu að mjög nauðsynlegt er að hafa um þessi mál náið samráð og samvinnu og leysa þau í tengslum við þau samtök sem hér eru nefnd, þ. e. þau samtök sem nefnd eru í 3. gr. Ég fel hins vegar eðlilegt að sú nefnd, sem þetta mál fær til umfjöllunar, fjalli nánar um þessa grein og kynni sér sjónarmið aðila í þessu sambandi og sjálfsagt að nefndin taki það til íhugunar hvort rétt sé að gera einhverjar breytingar á þessari grein eftir að hafa kynnt sér sjónarmið aðila í þessu sambandi. Ég tel út af fyrir sig eðlilegt að nefndin og þingið taki til gaumgæfilegrar athugunar og breyti þá þessari grein ef sú niðurstaða verður.“
Sú breyting, sem gerð er á þessari grein, er ekki eins ógnvekjandi og t. d. Náttúruverndarráð vill vera láta. Þeir segja að hér sé um grundvallarbreytingu á málinu að ræða. Það stendur enn þá skilmerkilega í 3. gr.: „Sjútvrn. skal hafa samráð við eftirtalda aðila um stjórn og skipulagningu selveiða eftir því sem við á hverju sinni.“ Það verður að sjálfsögðu að vera alveg skýrt í þessu máli að það er og verður viðkomandi rn. sem verður að taka ábyrgð í málum sem þessum en ekki stjórnskipuð nefnd.
Það er alveg rétt hjá hv. þm. Guðmundi Einarssyni að sjútvrn. hefur haft mjög gott samstarf við þá nefnd sem fjallað hefur um fiskveiðistefnuna. En það liggur alveg fyrir hver það er sem ber hina endanlegu ábyrgð í því máli. Ég held að það sé öllum fyrir bestu að það liggi alveg ljóst fyrir að það er viðkomandi rn. sem ber hér ábyrgð en ekki einhver nefnd sem skipuð er, hversu góð sem hún er, þ. á m. hringormanefnd. Það kemur mér því nokkuð á óvart hvað menn gera mikið mál úr þessu.
Hins vegar er nauðsynlegt að það sé alveg opið að það þarf að hafa samráð við fleiri aðila um þessi mál. Það vill svo til að það snertir fiskvinnsluna í landinu, það snertir sjómannastéttina, það snertir það verkafólk sem vinnur við fiskinn í landinu. Það er einnig nauðsynlegt að hafa góð samskipti við þessa aðila. En að hér sé um grundvallarbreytingu að ræða á öllu frv. er hreinn útúrsnúningur.
Ég ætla ekki að hafa um þetta fleiri orð. Ég vitna til þess sem ég hef áður sagt í þessu máli. Um það urðu verulegar umræður á síðasta þingi. Því miður náði málið ekki fram að ganga en ég vænti þess að svo verði nú þannig að hægt sé að koma betri skipan á stjórn þessara mála. Ég vil mótmæla því að þessi breyting, sem gerð er á 3. gr., sé grundvallarbreyting á þessu máli, það stenst engan veginn.