01.04.1985
Neðri deild: 53. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4031 í B-deild Alþingistíðinda. (3345)
398. mál, grunnskólar
Hjörleifur Guttormsson:
Herra forseti. Ég sé ástæðu til að segja nokkur orð um þetta frv. sem hér var mælt fyrir um lækkun skólaskyldu um eitt ár frá gildandi lögum og raunar um tvö ár miðað við texta grunnskólalaga, en sem frestað hefur verið ár frá ári, eins og hv. flm. gat um, að tæki gildi. Á síðasta þingi hygg ég að smeygt hafi verið inn í lánsfjárlög sérstakri heimild til ríkisstj. að framlengja ákvæði grunnskólalaga, undantekningarákvæði, um átta ára skólaskyldu í stað níu ára sem lögin gera ráð fyrir að verði meginregla.
Ég vil að fram komi að ég er algerlega andvígur þeirri stefnu sem hv. flm. mælir hér fyrir og tel að þvert á móti þurfi Alþingi að taka af skarið um níu ára skólaskyldu eins og gert var ráð fyrir að yrði upp tekin sex árum eftir setningu grunnskólalaganna. Ég tel að það sé margt sem mælir með því að sú stefna verði nú upp tekin. Ég tel þá hugsun sem fram kemur í frv. um lækkun skólaskyldunnar og fræðsluskyldu í staðinn vera fráleita og setja hagsmuni nemenda, ungs fólks, og ekki síst í dreifbýli í verulega hættu frá því sem nú er. Ég þekki þau sjónarmið ýmissa kennara, bæði frá þeim tíma sem ég starfaði sem kennari og tók þátt í þingum kennara og einnig frá því sem síðar hefur komið fram, að þeim er ekkert um það að þurfa að beita þrýstingi gagnvart nemendum sem gætu vel hugsað sér að vera starfandi við eitthvað annað en nám á síðustu árum grunnskóla. Það er ekkert óeðlilegt viðhorf hjá kennurum og vissulega eru kennarar og skólastarf í nokkurn vanda sett, m. a. á framleiðslustöðum úti um landið, útgerðarstöðum þar sem kallað er eftir ungu fólki í vinnu, þegar þörf er á vinnuafli í aflahrotum t. d. og nemendur venjast því að geta haft uppgripatekjur í skamman tíma. Þetta setur nemendurna auðvitað einnig í ákveðinn vanda, skapar þær freistingar sem mjög eðlilegt er að ýmsir falli fyrir og vilji heldur fara út í atvinnulífið fyrr en ella af þeim sökum.
Ég hygg að hagfræðitölur og yfirlit um skólasókn í efstu bekkjum grunnskóla sýni og sanni að hér á Reykjavíkursvæðinu eru það langflestir sem ljúka grunnskólaprófi, þ. e. 9. bekk. Úti um landið eru þeir hins vegar nokkrir sem ekki notfæra sér síðasta ár grunnskólans sem ekki er skylda að lögum nú. Það er ekki síst af þeim ástæðum sem ég áðan nefndi. Ég þekki ýmsa sem hafa iðrast þess sárlega nokkrum árum seinna að hafa staðið upp að loknum 8. bekk grunnskóla og hafa ekki nein réttindi til framhaldsnáms og þurfa að fitja upp á nýtt til þess að geta t. d. farið í iðnnám svo að dæmi sé tekið. Það er ekki góð aðstaða sem fólki er þannig búin. Ég tel sem sagt að það beri að fara hina leiðina til þess að leysa þann vanda sem hluti nemenda og kennara þeirra stendur frammi fyrir í skólastarfi í síðasta bekk grunnskóla, þ. e. að standa við lagafyrirmæli um það að búa skólana með þeim hætti að þar sé hægt að hafa þá fjölbreytilegu kennslu sem grunnskólalögin gera ráð fyrir, t. d. hvað snertir hið svonefnda verknám, sem er enn þá hornreka, alveg hornreka víðast hvar á landinu, miðað við bóknám. Fleiri þætti skólastarfs þarf að efla þar sem ekki hefur verið staðið við lagafyrirmæli og tryggð sú aðstaða sem þarf til þess að gera sem flestum skólavistina bærilega þannig að grunnskólinn skili sínu ætlunarverki.
Það er undir núv. ríkisstj. í rauninni sem orðið hefur þróun í öfuga átt í sambandi við skólastarfið og möguleika á auknum sveigjanleika í efsta hluta grunnskólans með þeim niðurskurði og þeirri þrengingu á heimildum fyrir skólana til þess að starfa nokkuð eftir aðstæðum. Þar hefur verið þrengt að með boði ráðuneytis á undanförnum árum, sérstaklega í fyrra þegar fyrirskipaður var niðurskurður um 2.5%, niðurskurður sem bitnaði fyrst og fremst á landsbyggðinni, en kom hvergi við Reykjavík eins og kemur fram í skriflegu svari, sem ég fékk frá hæstv. ráðh. fyrir ekki löngu, að hafði ekki verið tekinn neitt á dagskrá í Reykjavík og ekkert komið til framkvæmda. Hæstv. ráðh. bauð hins vegar að niðurskurðurinn snerti ekki heimilisfræði eins og frægt var. Í nefndu skriflegu svari, sem hér var útbýtt ekki fyrir löngu, kemur fram það, sem ráðh. mátti vita og flestum var kunnugt, að aðstaða til heimilisfræðikennslu er mjög óvíða í skólum, hvað þá svo að fullnægjandi sé.
Ég held sem sagt að hv. flm. ætti að líta til hinnar áttarinnar og ég hefði tekið undir hans mál ef hann hefði hvatt til þess að lögboðin yrði níu ára skólaskylda.