02.04.1985
Sameinað þing: 67. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4045 í B-deild Alþingistíðinda. (3359)

369. mál, sauðfé á sunnanverðum Vestfjörðum

Ólafur Þ. Þórðarson:

Herra forseti. Um það verður ekki deilt að sé fé í ógöngum sé nauðsyn að beita skotvopnum til að aflífa viðkomandi kindur. Hins vegar bið ég ráðh. að hugleiða hvort ekki muni vera nokkuð rúmar hvað haglendi snertir þær ógöngur sem sauðfé er í ef það helst lifandi frá haustdögum og fram á þann tíma sem farið var í þennan leiðangur. Hér er ekki verið að tala um að kindur séu fastar á klettasyllu og séu búnar með þá beit sem um er að ræða. Hér er verið að tala um að sauðfé hafi haft það landrými til að vera á að það sé búið að hafast þar við megnið af vetrinum — og hin spurningin hlýtur þá jafnframt að vakna hvort viðkomandi sveitarstjórnir hafi brotið lög á undanförnum árum þegar sauðfé hefur gengið úti á þessum stöðum.

Mér er ljóst að í fjalllendi vestra getur verið spauglaust að eiga við sauðfé þegar frost er komið í jörðu og illt að ferðast þar um. En það er spurning hvort það á að sýkna þær sveitarstjórnir sem standa þannig að málum að þær svíkjast um á haustdögum að framkvæma smalamennskur með eðlilegum hætti, en kalla svo á víkingasveit lögreglunnar til að skjóta niður útigöngukindur þegar komið er fram undir vor. Ég vil taka það fram að ég tel þetta alveg forkostuleg vinnubrögð. Mér er til efs að t. d. hv. 2. þm. Norðurl. v. hefði verið svona brosleitur ef kölluð hefði verið til víkingasveit lögreglunnar til að skjóta niður hrossin fyrir norðan þegar þau voru á heiðum uppi og tilkynnt að ekki væri hægt að reka þau til byggða vegna þess að árnar tefðu för. Ég er ekki búinn að sjá það að hann hefði verið jafnbrosleitur ef hann hefði fengið fréttir af slíku.

Ég vil beina því til dómsmrh. að hann afli sér fullnægjandi upplýsinga hjá landbrh. um þetta mál og meti það að því búnu hvort ekki sé rétt að fram fari lögreglurannsókn á því hvort umrætt fé hafi verið í ógöngum eða ekki því að því aðeins ber að beita þessum lögum að féð hafi verið í ógöngum. En með því að nota það brjóstvit sem mönnum er gefið hlýtur hver og einn að spyrja sjálfan: Fær það staðist að það sauðfé sé í ógöngum sem búið er að lifa af megnið af vetrinum? Hlýtur það ekki að hafa haft það rúmt svæði til yfirferðar að túlka verði það fyrst og fremst á þann veg að hafi verið í hagagöngu á viðkomandi stöðum?

Ég tel að það hljóti að vera umhugsunarefni hvort verjandi sé, miðað við lög um dýravernd o. fl., að sýslumenn gangi fram fyrir skjöldu og fyrirskipi vinnubrögð sem þessi. Mér er til efs að það sé réttlætanlegt, herra forseti, að þeir haldi sinni stöðu ef þeir standa þannig að verkum.