02.04.1985
Sameinað þing: 67. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4049 í B-deild Alþingistíðinda. (3363)

375. mál, íhlutun stjórnvalda í kjarasamninga

Fyrirspyrjandi (Karvel Pálmason):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. forsrh. fyrir hans svör. Það var ekki mín meining að gera þetta sérstaklega að umræðuefni. Ég taldi mjög nauðsynlegt að reyna að fá um það upplýsingar sem menn geta síðan skoðað. En það er eigi að síður fljótt á litið mjög athyglisvert sem fram kemur í þessum upplýsingum.

Nú skal ég ekkert um segja hvaða mat Þjóðhagsstofnun leggur á þegar hún segir „helstu aðgerðir sem máli skipta“. Það gefur verið teygjanlegt orð „sem máli skipta“. Eigi að síður er hér um að ræða að á s. l. 15 árum hefur ríkisvaldið gripið 12 sinnum inn í gerða kjarasamninga. Það nálgast það að vera á hverju einasta ári sem stjórnvöld grípa til þess ráðs með einhverjum hætti að ógilda gerða kjarasamninga aðila vinnumarkaðarins. Slík þróun er auðvitað alveg með eindæmum og er til þess eins fallin að egna til ófriðar á vinnumarkaðnum. Nú náði ég ekki nákvæmlega hvort þetta er mjög breytilegt eftir ríkisstjórnum. Ég hygg að allar ríkisstjórnir eigi þátt í þessu, kannske eitthvað mismunandi mikið, en allar eigi þær það sameiginlegt að hafa gripið inn í gerða kjarasamninga.

Ég hef hér fyrir framan mig ljósrit úr grein sem út mun hafa komið hjá Almenna bókafélaginu og heitir Íslensk haglýsing. Það eru greinar um íslensk efnahagsmál og ekki ómerkari einstaklingur en Þórður Friðjónsson er ritstjóri ásamt fleirum góðum mönnum. Þar kemur í ljós að á árunum 1956 til 1983 hafa stjórnvöld gripið 34 sinnum inn í gerða kjarasamninga aðila vinnumarkaðarins. Það er orðið meira en á hverju einasta ári þetta tímabil, í 29 ár, sem ríkisstjórnir hafa gripið inn í eða ógilt með einhverjum hætti gerða kjarasamninga verkalýðshreyfingar og vinnuveitenda. Ætli slíkt sé nú ekki einsdæmi í heiminum að á hverju einasta ári og meira en það skuli stjórnvöld grípa þannig inn í hjá aðilum vinnumarkaðarins samninga um kaup og kjör? Ég er að vísu ekki víðförull maður, þekki lítið til úti í heimi, það gera aðrir hér betur en ég, en ég hugsa að það megi víða leita til þess að finna samanburð við þetta. En eins og ég sagði, ég ætla ekki að orðlengja frekar um þetta, það var ekki mín ætlan. En ég tel að það sé gagnlegt að fá slíkar upplýsingar sem menn geta síðan skoðað og borið saman og ítreka þakkir til hæstv. forsrh. fyrir svörin.