02.04.1985
Sameinað þing: 67. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4053 í B-deild Alþingistíðinda. (3367)

321. mál, löggjöf um fiskeldi

Stefán Valgeirsson:

Herra forseti. Þessi fsp. og raunar umr. um þessi mál eru áreiðanlega af hinu góða. Ég lít a. m. k. þannig á að þessum málum hafi alls ekki verið sinnt á þann hátt sem þörf er á. Það er ágætt og nauðsynlegt að setja löggjöf um þetta mál, en sú nefnd sem er að starfa að þessum málum þarf að vita, um leið og hún er að semja frv. að lögum, hvaða stefna á að ríkja í þessum málum. Mér er ekki kunnugt um að það hafi verið gert upp á nokkurn hátt. Á t. d. að kanna hvaða möguleikar eru á fiskirækt hjá þeim sem búa nú í hinum strjálu byggðum? Á að halda þannig á málum að þetta verði til þess að styrkja byggðirnar, eins og t. d. Norðmenn halda á þessum málum? Á að takmarka á einhvern hátt að erlendir aðilar fari inn í þennan rekstur og hafa hönd í bagga með því að þessar stöðvar séu ekki of stórar eða fari fram úr einhverju ákveðnu marki, eins og Norðmenn hafa gert?

Það er ekki nóg að setja einhverja nefnd til að semja frv. ef stjórnvöld eru ekki búin að taka áður afstöðu til hinna ýmsu atriða. Ég held að það sé mörgum spurningum ósvarað. Mér er a. m. k. ekki kunnugt um að þessi mál hafi verið gerð upp. Ég hef aðstæður til þess að fylgjast með hvað er að gerast í Noregi í þessum málum. Maður hrekkur við þegar fréttist af því að t. d. er boðið í þá Íslendinga sem eru að læra núna þessi fræði. Þeir fá atvinnutilboð þrátt fyrir þá þekkingu sem þar er. Það er vandséð að við getum fengið þá til þess að koma heim vegna þess að þeir hafa mikla möguleika til að komast áfram þar í landi.