02.04.1985
Sameinað þing: 68. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4091 í B-deild Alþingistíðinda. (3400)

378. mál, Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda

Fyrirspurnin ásamt greinargerð með henni hljóðar svo:

Hve margir þeirra, sem stunda atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi, greiða nú til Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda og hvernig er háttað eftirliti með því að þeir fylgi reglum sem gilda um skil á lífeyrissjóðsiðgjöldum?

Greinargerð.

Skv. lögum nr. 95/1980, um Söfnunarsjóð lífeyrisréttinda, segir m. a. í 7. gr. að skylda til greiðslu iðgjalda nái til þeirra sem stunda atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi og skylt er að reikna sér endurgjald fyrir starf við eigin rekstur skv. nánar tilvitnuðum ákvæðum laga um tekju- og eignarskatt, enda séu þeir ekki aðilar að öðrum sjóðum sem lögbundnir eru eða viðurkenndir af fjármálaráðuneytinu. Spurt er hve margir greiði til sjóðsins skv. þessari grein.

Í 8. gr. laganna segir m. a. í 3. mgr. að þeir sjóðfélagar, sem stunda atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi, sbr. 7. gr., skuli standa skil á iðgjaldi sínu mánaðarlega. Spurt er hvernig eftirliti með iðgjaldagreiðslum þeirra sé háttað.

Svar:

Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda starfar skv. lögum nr. 95/1980. Sjóðurinn er ekki ríkisstofnun. Fyrirspurn um greiðslur atvinnurekenda í Söfnunarsjóð var send sjóðnum og óskað upplýsinga svo unnt yrði að svara fyrirspurninni. Svofellt svar barst frá sjóðnum 28. mars 1984.

„Til Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda greiða lífeyrissjóðsiðgjöld einungis þeir atvinnurekendur og aðilar með sjálfstæða starfsemi, sem ekki eiga lögbundinn rétt til að greiða iðgjöld til annarra lífeyrissjóða, sbr. 3. gr. laga nr. 194/1981, um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda, þar sem segir að allir þeir er stundi atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi sé rétt og skylt að greiða iðgjöld í lífeyrissjóð viðkomandi starfsstéttar eða starfshóps.

Um innheimtu á iðgjöldum ofangreindra aðila er ekki að ræða, enda skuli þeir standa skil á iðgjaldi sínu mánaðarlega skv. 8. gr. laga nr. 95/1980. Aðild atvinnurekenda að Söfnunarsjóði er oft tímabundin og hefur sjóðurinn engin tök á að fylgjast með hvaðan þeir koma eða hvert þeir fara.

Árið 1984 greiddu 48 atvinnurekendur og aðilar með sjálfstæða starfsemi til sjóðsins.“