10.04.1985
Efri deild: 55. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4102 í B-deild Alþingistíðinda. (3422)
217. mál, Seðlabanki Íslands
Valdimar Indriðason:
Virðulegi forseti. Það virðist nú vera að bresta nokkur flótti í liðið í þessum efnum. Eftir umr. sem hér hafa verið áður í þessu máli mátti skilja hv. ræðumenn svo að flestir væru sammála því að þessari skyldu, sem þarna hvíldi á núna skv. bindingu, yrði aflétt að verulegu leyti.
Það er misskilningur hjá hv. þm. Stefáni Benediktssyni og síðasta ræðumanni Birni Dagbjartssyni að þetta snerti á nokkurn hátt væntanlegt bankalagafrv. Það er allt annars eðlis. Þeir bankar sem þar munu standa áfram verða að vinna eftir þeim reglum sem þar verða settar. Það á ekkert skylt við þá bindingu á fjármagni sem nú er viðhöfð.
Við þurfum ekki að rekja þessa sögu hér. Við þekkjum hana. Heimildin í dag er upp á 38% bindiskyldu. Hún var nýtt fram undir síðustu mánaðamót að 28% og núna fyrir sérstakan góðvilja er hún lækkuð í 18%. Það sem við leggjum til, við Eyjólfur Konráð, í frv. okkar er að bindingin fari í 10%. Skýringin á því er eingöngu sú að við höfum séð það í gegnum öll þau ár sem þessi stórtæka binding hefur verið hjá Seðlabankanum, að hún hefur því miður ekki haft tilætluð áhrif á verðbólguþjóðfélag okkar. Stjórnun peningamálanna í gegnum frystingu í Seðlabankanum hefur ekki náð tilgangi sínum. Ég held að það geti margir verið mér sammála um það, sérstaklega í atvinnurekstri og þó einkum í sjávarútvegi, að þegar þar hefur eitthvað gengið skár og eitthvað verið betra hafi verið vissar hömlur settar á útlán til þessarar starfsemi. Þeir máttu aldrei standa sig sjálfir. Það mátti ekki hleypa of miklu fjármagni inn í kerfið, eins og sagt var.
Mér virðist að verulegt fjármagn hafi flotið inn í kerfið, og ekki hvað síst hér á stór-Reykjavíkursvæðinu, þó að binding hafi verið. Ég vil létta þessari kvöð af og að viðskiptabankarnir fái sjálfir að vera ábyrgir fyrir þeim peningum sem þarna eru. Þeir afla sér sparifjár dýrum dómum og á umdeildan hátt með dýrum auglýsingum o. fl. og þeir eiga ekki að þurfa að eiga á hættu að það sé fryst í Seðlabanka af því miklu hærri upphæð en ég tel vera þörf á. Þess vegna tel ég rétt að við samþykkjum í þessari hv. deild það frv. sem hér liggur fyrir, en séum ekki að vísa því til ríkisstj. Þrátt fyrir að við berum mikið traust til hennar vil ég ekki eiga neitt á hættu í þessu máli. Hér er um stefnumörkun að ræða. Ég vil að hv. þd. standi að því að þetta verði samþykkt á þann veg sem hér hefur verið lagt fram. Ég tel það til bóta fyrir þjóðfélagið en ekki til skaða, eins og úrtölumenn hafa viljað halda fram.