10.04.1985
Efri deild: 55. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4106 í B-deild Alþingistíðinda. (3427)
217. mál, Seðlabanki Íslands
Stefán Benediktsson:
Virðulegi forseti. Ég verð að taka undir orð hæstv. forseta, hver sá sem hefði viljað vita gat kynnt sér það að þetta mál var komið á dagskrá fyrir tilstuðlan 1. flm. og því eðlilegt að það sé hér í meðferð.
Ég er sammála þeim sem hér hafa talað að það er engin lausn á afgreiðslu þessa máls að vísa því til ríkisstj. Það er máttlaust og hefur lítið upp á sig. Aftur á móti reyndi ég að lýsa afstöðu minni til þess. Ég tel að það beri að skoða mál Seðlabanka og viðskiptabanka í heild, þ. e. skoða þau mál er varða umfang afskipta ríkisvaldsins af efnahagsmálum í heild.
Þróun þessara mála lýsti hv. 3. þm. Vesturl. hér stuttlega áðan, en ég tel þó að hann hafi sagt þessa sögu svolítið öðruvísi en ég hefði sagt hana. Ég get ekki betur séð en að allar götur frá 1961 hafi þróun þessara mála verið þannig að bindiskylda hafi verið aukin í beinu hlutfalli við aukna útlánastarfsemi Seðlabanka Íslands. Hér var því aldrei og hefur aldrei verið um raunverulega stjórnun á peningamagni að ræða því að því peningamagni, sem tekið var úr bönkunum, var dreift jafnóðum út um aðrar dyr Seðlabankans aðallega til atvinnuvega sem afurðalán.
Nú hafa þessi afurðalán aftur verið flutt til viðskiptabankanna og í samræmi við það hefur bindiskyldan verið lækkuð. Ég er ekki sammála hv. 3. þm. Vesturl. að það sé ekkert samhengi á milli starfsemi viðskiptabankanna og Seðlabankans. Ég bendi á það að frá 1961 hefur Seðlabankinn tutlað bankana og sparifjáreigendur á mjög óhagstæðum kjörum þar sem bindiskyldan er og notað þetta fé til útlána. Nú hafa þessi útlán verið færð aftur til viðskiptabankanna en eftir sem áður hefur ríkisvaldið öll tök á því að hlutast til um ráðstöfun þessa fjár, t. d. með ákvörðun vaxta, og getur þannig haldið áfram að tutla bankana og sparifjáreigendurna einfaldlega með því að ákvarða vextina af þessum afurðalánum það lága að þau skili ekki tilætluðum arði nema þá á mjög löngum tíma.
Hlutverk Seðlabankans er að viðhalda ákveðnum gjaldeyrisforða. Hann sér líka hlutverk sitt í ákveðinni lánaaðstoð við viðskiptabankana þar sem þeir eiga í erfiðleikum vegna þátttöku sinnar í óhagstæðum eða óhagkvæmum fjárfestingum sem ekki er alveg óþekkt fyrirbæri hér á landi. Það að lækka bindiskyldu mjög mikið gerir í þessu tilviki trúlega ekkert annað, þar sem bankarnir eru í ríkiseign, en að færa þessa þjónustu frá Seðlabankanum yfir til ríkissjóðs. Er þá afskaplega lítið unnið með því að í annan staðinn er notað sparifé og á hinn staðinn yrði notað skattfé.
Varðandi afurðalánin hefur, eins og áður sagði, orðið breyting sem þegar hefur orðið tilefni til ákveðinna aðgerða af hálfu ríkisvaldsins. Ég vil minna á síðustu mgr. grg. með frv. Þar segir, með leyfi hæstv. forseta:
„Sú stefna, sem fylgt hefur verið í peningamálum nú nokkuð á annan áratug, hefur brugðist. Sparifé alþýðu hefur smám saman þorrið þegar menn gerðu sér grein fyrir því að fé þeirra gekk í stöðugt ríkari mæli til ríkisbáknsins, í rauninni ekki sem lánsfé heldur var um beina eignaupptöku að ræða þegar vextir voru neikvæðir jafnvel svo að tugum prósenta nam.“ — Það er náttúrlega á verðbólgutímanum. — „Tilraunir stjórnvalda til að bregðast með sívaxandi hörku við þessum vanda hafa síður en svo leyst hann, þær hafa aukið hann svo að kreppa og óðaverðbólga hefur af hlotist í mesta góðæri Íslandssögunnar, en útlendingar hafa fjármagnað máttvana atvinnuvegi á okurkjörum. Samhliða hefur óréttlæti aukist í íslensku þjóðlífi og fátækt hafið innreið sína. Þessi stefna, sem allir flokkar á liðnum kjörtímabilum bera ábyrgð á, hefur mistekist. Ljóst er því að ofstjórn peningamála verður að linna. Að því miðar flutningur frv. þessa.“
Ég bendi á næstsíðustu setningu þessarar grg. „Þessi stefna, sem allir flokkar á liðnum kjörtímabilum bera ábyrgð á, hefur mistekist.“ Ég held nefnilega að þetta frv., þó að í góðri meiningu sé flutt, taki ekki á höfuðvanda stjórnar íslenskra efnahagsmála. Það eru hin víðtæku og umfangsmiklu pólitísku afskipti af efnahagsmálum sem við búum við hér á landi. Þessi pólitísku afskipti eru sérstaklega afdrifarík og hættuleg vegna þess að þar verður ekki sá greinarmunur á stefnu flokka í efnahagsmálum eða þjóðfélagsmálum sem gera mætti ráð fyrir þegar hlustað er á fulltrúa þeirra hér á þingi eða í kosningabaráttunni.
Ég minni bara á seinasta mál sem upp er komið í þessum efnum þar sem eru launaákvarðanir bankastjóranna.
Í bankaráðunum sitja fulltrúar fjórflokkanna og gekk þar ekki hnífurinn á milli þegar ákveðin voru kjör bankastjóranna. Þar risu ekki upp fulltrúar verkalýðsflokkanna og mótmæltu þeim gífurlega kjaramun sem er á kjörum þessara manna og þeirra sem verkalýðsflokkarnir telja umbjóðendur sína. Þar er samábyrgðin orðin svo sterk og svo rík, enda er hluti af fulltrúum verkalýðsflokkanna í bankaráðum kominn þangað fyrir tilstilli Sjálfstfl. en ekki af eigin afli. Þar er samábyrgðin orðin svo sterk að þar treystir maður ekki þessum aðilum til að horfa á raunveruleg, efnahagsleg sjónarmið þegar ákvarðanir eru teknar heldur frekar á þau sjónarmið sem lúta að pólitískum hagsmunum þeirra allra sameiginlega og þá um leið hvers fyrir sig. Þess vegna álít ég að það sé miklu eðlilegra og nauðsynlegra að skoða þessa löggjöf um stjórnun efnahagsmála, þ. e. viðskiptabankanna og Seðlabankans, alla í heild og þá fyrst og fremst með tilliti til þess að draga úr pólitískum afskiptum af efnahagsmálum.