10.04.1985
Efri deild: 55. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4110 í B-deild Alþingistíðinda. (3431)

217. mál, Seðlabanki Íslands

Haraldur Ólafsson:

Virðulegi forseti. Þessi umr. hefur snúist í þann farveg að ég held að það sé full ástæða til þess að ræða málið örlítið betur áður en það verður afgreitt. Ég held að áður en greidd verða um það atkv. verði að liggja ljósar fyrir hvað ríkisstj. ætlast fyrir í þessu máli. Ég fyrir mitt leyti hélt að það væri samkomulag milli Seðlabanka og ríkisstj. um ákveðnar aðgerðir um létti á innlánsbindingu vegna þess að afurðalán eru flutt til viðskiptabankanna. Þá gerist sömu dagana að flutt er frv. á Alþingi, að réttum hætti að sjálfsögðu, en af tveimur þm. sem styðja stjórnina, um að þessi innlánsbinding verði enn minnkuð og núna heyri ég ekki betur en að hæstv. fjmrh. gefi í skyn að allmiklu róttækari aðgerða sé að vænta í þessu máli. Ég mundi því leggja til að við fengjum örlítið nánari upplýsingar um það hvað ríkisstj. ætlast fyrir áður en þetta mál er afgreitt.