10.04.1985
Neðri deild: 55. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4119 í B-deild Alþingistíðinda. (3446)
210. mál, selveiðar við Ísland
Pálmi Jónsson:
Herra forseti. Frv. þetta til l. um selveiðar við Ísland verður nú seint talið meðal stærri mála þessa alþingis ef ég skil málið rétt. Hins vegar felur það í sér nokkrar afgerandi breytingar sem mér þykir rétt að staldra aðeins við og ræða nokkuð.
Þegar frv. þetta var flutt á síðasta Alþingi gerði ég við það nokkrar athugasemdir. Ég skal ekki rekja þær hér að öðru leyti en því að ég lýsti þá því yfir að ég teldi nauðsynlegt að þetta mál yrðu mjög athugað í þeirri þingnefnd sem fengi málið til meðferðar og ég treysti mér ekki til að lýsa fylgi við frv. eins og það lá þá fyrir.
Þegar frv. þetta var kynnt í mínum þingflokki nú á öndverðum vetri, þá lýsti ég sömu athugasemdum mínum og því jafnframt að ég hefði algeran fyrirvara varðandi þetta mál. Tilefni þess að ég lét uppi þessar skoðanir mínar og ítreka þær skoðanir hér er það að mér sýnist að hér sé um skipulagsbreytingar að ræða, er tæplega geti átt rétt á sér. Þar á ég við að flytja þessi mál úr höndum landbrn. yfir í hendur sjútvrn. en þó ekki nema að hluta. Miðað við það hvernig frv. er sett upp þá mun það, ef að lögum verður, heyra undir tvö rn. Það segir að vísu í 1. gr.:
„Sjútvrn. hefur yfirumsjón allra mála er selveiðar varða, sbr. þó ákvæði laga nr. 7616. júní 1970, um lax- og silungsveiði.“
Um þetta efni er síðan ítrekað í athugasemdum við einstakar greinar, en þar segir þó:
„Hins vegar eru í lögum nr. 76 16. júní 1970, um lax- og silungsveiðar nokkur ákvæði er snerta ófriðun sels í ám, veiðivötnum og ósasvæðum, en þau mál falla undir landbrn. og er gert ráð fyrir að svo verði áfram.“
Þegar er því í frv. sjálfu og athugasemdum við það kveðið á um það að lög þessi, ef frv. verðu afgreitt, heyri undir tvö rn. Þetta tel ég óþarft, óheppilegt og tilefnislaust.
Þeir sem sett hafa saman þetta frv. og samið athugasemdir við það virðast ekki hafa gætt þess að fleiri lagabálkar er varða landbúnaðarmál taka til þessara mála en lögin um lax- og silungsveiði. Þar á ég við t. a. m. ábúðarlög og jarðalög sem fjalla um eignarráð og leigumála og ábúð á jörðum, bújörðum í landinu. Þar er tekið tillit til þess eins og raunar víðar í landbúnaðarlöggjöfinni, að þar undir falla hlunnindi, þ. á m. selveiðar. Selveiðar hafa frá fornu fari verið talin hlunnindi á Íslandi og verið óaðskiljanlegur hluti bújarða bænda og landbúnaðarlöggjöfin sem heild er byggð upp út frá þessu meginsjónarmiði. Þessa er ekki getið í frv., þessi ákvæði eru ekki tekin af í frv. og þessa er ekki getið í athugasemdum með frv. og virðist helst þess að vænta að þeir sem standa að samningu þess hafi ekki áttað sig á þessum hlutum.
Það segir í frv., í 4. gr. þess:
„Nú liggur land að sjó og á þá landeigandi selveiðar 115 metra á haf út frá stórstraumsfjörumáli fyrir landi sínu og eru það netlög hans.“
Þessi netlög fylgja hverri landareign og eru hluti bújarðar sem þeir lagabálkar í landbúnaðarlöggjöfinni, sem ég hef hér tilgreint, ná yfir. Og þessi hluti af því er tekur til selveiða fellur því óumdeilanlega undir landbrn. með öðrum lagabálkum í landbúnaðarlöggjöfinni.
Mér er það ekki ljóst hvaða nauðsyn ber til að fella undir sjútvrn. veiði á sel utan þessara marka því tæplega getur sjútvrn. með nokkrum rétti haft afskipti af veiðum og nýtingu þessara hlunninda innan landareigna sem falla undir allt aðra lagabálka og allt annað rn. þannig verður úr þessu ein hringavitleysa. (GSig: Hringormavitleysa.) Og líklega réttast sagt hringormavitleysa, því þar er kannske undirrótin fundin. Og kemur það raunar oft fyrir að hv. þm. Garðari Sigurðssyni ratast satt á munn.
Ég held að þessi atriði, sem ég hef hér nefnt, hefðu í raun átt að duga til þess að Alþingi léti sé r ekki til hugar koma að afgreiða þetta mál, en það virðist öðru nær því að ég tók svo eftir að sú hv. þn. sem um þetta mál hefur fjallað skiptist þannig að allir utan einn leggja til að frv. verði samþykkt í því formi sem það er óbreytt, en einn nm. flytur brtt. sem ekkert snerta þessi formsatriði, sem eru aðalatriði málsins, og lætur að því liggja í sínu nál. að verði þær brtt. ekki samþykktar muni hann leggja til að frv. verði fellt. En ég sé sem sé ekki betur en að nm. í heild, allir nm. hafi farið fram hjá öllum þeim atriðum sem ég kalla meginatriði þessa máls.
Það er stundum verið að tala um það að íslenska stjórnkerfið sé flókið og það er það vissulega með réttu, en ef fara á að gera stjórnkerfisbreytingar með þessum hætti sem hér er á ferðinni, þá er það ekki til þess að greiða úr flækjum heldur til að auka á þær og gera skil á milli rn. og framkvæmda einstakra aðila innan framkvæmdavaldsins óglögg og óáreiðanleg.
Ég tel mig ekki þurfa að ítreka neitt rök fyrir því hvers vegna ég tel betur fara að það gildi, sem gilt hefur til þessa, að mál þessi tilheyri landbrn. Ég hef nefnt ýmis löggjafaratriði en efnislega má vitaskuld nefna það að selurinn fæðir afkvæmi sín, kópa sína, á landi og þar alast þeir upp, selveiðar hafa löngum hér við land verið stundaðar einkanlega inni í árósum, miklu minna í sjó þó að það hafi að vísu nokkuð borið við.
Mér hefði auðvitað þótt betra að hæstv. sjútvrh. hefði hlýtt á það sem ég hef hér þegar sagt, en það má vel vera að hann vilji loka eyrum fyrir þeim röksemdum sem ég hef hér rakið. En ég verð að segja það að ég undrast það ekki þó að það hafi verið frá því greint hér að í fyrri hluta þessarar umr., sem ég því miður var ekki viðstaddur vegna þess að ég var þá utan þings, hafi hæstv. landbrh. lýst því yfir að hann væri ekki ánægður með þetta mál og að hann hefði talið þörf á því að athuga þetta mál betur og breyta því, en þá fer nú að vera eitthvað sérkennilegt ástand á því stjórnarheimili sem ég er nú stuðningsmaður að ef þeir tveir samflokksmenn, hæstv. sjútvrh. og landbrh., koma sér ekki saman um flutning stjfrv. og hvernig þau skuli úr garði gerð og þurfa að koma hér upp í ræðustól, þessir tveir flokksbræður, til að tala um það þar hvað betur megi fara. Ég var ekki viðstaddur þegar þau orðaskipti fóru fram svo ég skal ekki meira um það segja en ég undrast það sannarlega ekki þó hæstv. landbrh. hafi haft við þetta sitthvað að athuga.
Ég vil svo segja það að í þessu frv. er ekki að finna, sem kannske er óglöggt í löggjöf eins og hún er nú, hver sé réttur selalátra sem eru utan netalaga bújarða og ég hefði gjarnan viljað heyra skýringar annað tveggja hæstv. sjútvrh. eða hæstv. formanns sjútvn. á hvern máta réttur selalátra sé tryggður, en sum þeirra eru friðlýst. En ég finn ekki í þessu frv. eða athugasemdum með því að þessu sé á nokkurn máta vikið.
Ég vil svo gjarnan taka það fram um þau orð sem ég hef hér látið falla, að þau snerta einkanlega þá skipulagsbreytingu, ef skipulag skal kalla, að flækja þessu máli yfir í tvö rn. Það er síður en svo að ég sé á móti selveiðum og láti sér enginn hv. þm. detta það í hug að ég hafi eitthvað víð það að athuga að selur sé veiddur og hann nýttur eins og önnur gögn og gæði okkar lands. Ég tel að það þurfi enga breytingu í þessa veru, að vera að flækja þessu máli undir tvö rn. til þess að hægt sé að veiða sel. Ég skil það einnig svo að sá áhugi sem mér skilst að fram hafi komið hjá ýmsum samtökum sjávarútvegsins fyrir því að mál þetta fái framgang sé fyrst og fremst bundinn því að þessi samtök vilja gjarnan að selastofninum sé haldið í skefjum vegna þess þáttar sem selurinn er talinn eiga í lífkeðju hringormsins. Og ég segi fyrir mína parta að ég tel að þetta sé auðvitað mjög eðlilegt. Það er ekkert óeðlilegt við það að þessi samtök vilji halda selastofninum í skefjum. En þetta er vitaskuld hægt að gera án þess að vera að flækja þetta mál undir tvö rn.
Það mætti í löggjöf setja ákvæði þess efnis að það væri beinlínis sett kvöð á þá landeigendur sem eiga lönd að sjó og árósum þar sem selveiði er stunduð, að þeir veiði sel og haldi selastofninum í skefjum undir einhverju því eftirliti sem hægt væri að telja marktækt á þessu sviði og það gæti allt eins vel gerst þó það væri ekki verið, eins og ég hef orðað, að flækja þetta mál með því að setja það undir tvö rn.
Ég vil svo segja, út af þeim orðaskiptum sem hér hafa farið fram í dag, að það er auðvitað algjörlega rétt hjá hv. þm. Hjörleifi Guttormssyni að það samráð sem fært er hér í texta í 3. gr. fer auðvitað allt eftir framkvæmdinni, hvernig á því verður haldið. Og slíkt samráð getur vitaskuld hæstv. sjútvrh., hvort sem það er núverandi eða einhverjir seinni tíma menn í því virðulega embætti, auðvitað haft að engu. Það er vitaskuld ljóst. Þannig að það er ekkert sérstakt hald í greininni fyrir þá sem vilja að þarna sé um samkomulag að tefla. Það er einnig ljóst, af því að hér var vitnað til umsagna frá Búnaðarfélagi Íslands og hlunnindaráðunaut Búnaðarfélags Íslands, að Búnaðarþing mælir gegn þessu máli og þótti engum mikið, ekki mér að minnsta kosti.
En umsögn hlunnindaráðunauts er hins vegar mjög svo sérkennileg svo ekki sé meira sagt. Og væri kannske tilefni fyrir hv. þm. að líta yfir hana og vita hvernig hún hljóðar. Í þessari umsögn segir svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Þann 31. ágúst 1982 skipaði sjútvrh. mig í n. til að semja frv. til laga um selveiðar við Ísland. Mig furðar slíkt þar sem selamál heyrðu undir landbrn. en leit svo til að samkomulag hefði orðið milli rn. að setja umsjón með selveiðum undir sjútvrn. eins og yfirumsjón með hvalveiðum við Ísland.“
Síðan segir:
„Af umr. innan n. var svo að skilja að slík tilhögun þætti eðlilegust af hálfu ráðamanna.“
Umsögn rn. er nokkru lengri, en ég tel ekki ástæðu til að lesa lengra. En þessar tilvitnuðu setningar virðast nú benda til þess að þessi ágæti maður hafi lítið gert til að átta sig á því hvað þarna var um að vera. Ég leyfi mér að segja það, enda var ekkert samkomulag haft við landbrn. um þetta mál á þeirri tíð. Ég íór þá með forsjá landbrn. og það var ekkert leitað til landbrn. um þetta mál. Og ég minnist þess ekki að í þeirri ríkisstj. hafi verið greint frá því á nokkurn máta að þáverandi hæstv. sjútvrh. hygðist eða hefði sett n. til þess að láta semja frv. um þetta efni.
Það er hins vegar rétt að á lokastigi á þeirri stjórnartíð flutti þáverandi hæstv. sjútvrh. frv. En þá voru nú mál nokkuð farin að rakna í böndum í þeirri ríkisstj. og það frv. var ekki flutt sem venjulegt stjfrv. a. m. k. hafði það ekki tilskilið samþykki að baki sér.
Ég ætla svo ekki að orðlengja þetta hér neitt frekar. Ég hef bent á það og það er mín skoðun að það sé tilefnislaust og rangt að flækja þessu máli undir sjútvrn. að hluta því að áfram fer landbrn. eða lagabálkar sem eru undir yfirstjórn landbrn. með þorra þessara mála þ. e. að því er tekur til netlaga á landareign bújarða og bújarðir falla undir þá lagabálka sem tilheyra landbrn., og þar verður ekki í sundur skilið þannig að það sem er utan netlaga mun þá verða á vegum sjútvrn. og það eru óglögg mörk sem ég held að hefði verið betra að láta vera að reyna að skilgreina í lögum og hafa þessi mál eins og verið hefur í höndum eins rn., þ. e. landbrn.
Það þarf víst tæpast að taka það fram að miðað við þá ræðu sem ég hef hér flutt þá treysti ég mér ekki til að styðja þetta frv.