11.04.1985
Sameinað þing: 69. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4131 í B-deild Alþingistíðinda. (3465)

Umræður utan dagskrár

Jóhanna Sigurðardóttir:

Herra forseti. Í maí 1984 samþykkti Alþingi þáltill. frá þm. Alþfl. sem fól í sér afnám bílakaupafríðinda embættismanna. Það kom því mjög á óvart, svo ekki sé meira sagt, þegar upplýst var fyrir páska í fjölmiðlum að samþykkt hefði verið 450 þús. kr. árlegur vísitölubundinn launaauki til bankastjóra ríkisbankanna og forstjóra Framkvæmdastofnunar þannig að áður umsamin bílahlunnindi verði sem næst þau sömu og verið hafa en greiðist eftirleiðis sem launaauki.

Það er alveg ljóst að þessi samþykkt gengur þvert á vilja Alþingis í þessu efni. Af því sem fram hefur komið má draga þá ályktun að bankastjórar og forstjórar Framkvæmdastofnunar eigi í engu að missa af þeim hlunnindum sem þeir áður höfðu þótt hlunnindin komi nú í öðru formi. Hér er um að ræða ákvörðun sem er allt í senn: lögbrot, siðleysi og gróf ögrun við launafólk í landinu. Þó ákvörðun um þessar hlunnindagreiðslur hafi verið tekin af bankaráðunum er ábyrgðin ekki síður hjá ríkisstj. sem hefur haft að engu vilja Alþingis um afnám bílakaupafríðinda embættismanna.

Þetta mál snýr líka að Alþingi Íslendinga. Bankaráðin eru kosin af Alþingi og fara með vald sitt í umboði þess. Fimm af sex þingflokkum hafa með einum eða öðrum hætti ályktað í þessu máli og lýst vanþóknun sinni á þessari ákvörðun bankaráðanna. Þetta mál er svo alvarlegt, ekki síst í ljósi þess að ákvörðunin um vísitölubindingu launaaukans er lögbrot, að þm. geta ekki látið nægja að lýsa almennri vanþóknun og hneykslan í þessu máli. Ég tel að Alþingi Íslendinga eigi að taka umboðið af bankaráðunum, afturkalla umboð bankaráðsmanna og kjósa ný bankaráð. Þeir bankaráðsmenn, sem að þessari ákvörðun stóðu, hafa brugðist skyldu sinni, brugðist trúnaði við Alþingi Íslendinga sem veitir þeim umboð til þessa ábyrgðarstarfs. Við því á Alþingi að bregðast með því að afturkalla umboð þeirra bankaráða sem nú sitja, sem sennilega þarf að gera með lögum, og kjósa ný bankaráð.

Mér er ljóst að allir þeir bankaráðsmenn sem nú sitja bera ekki ábyrgð á þessari dæmalausu ákvörðun. En með þeirri leið, sem ég hef hér lýst, gefst Alþingi Íslendinga tækifæri til að svipta þá bankaráðsmenn umboði sem brugðist hafa trúnaði við Alþingi og þjóðina og þá að endurnýja umboð til þeirra sem Alþingi felur trausts verða.

Það er forkastanlegt og ber að fordæma harðlega og gera viðhlítandi ráðstafanir, eins og ég hef hér lýst, þegar hæstlaunuðu embættismenn ríkisins, sem hafa fyrir nálægt sexföld árslaun lágtekjufólks fyrir dagvinnu, fá síðan afhent á gulldiski til viðbótar a. m. k. nálægt þreföldum árslaunum verkafólks í dagvinnu og það í bílastyrk. Á hverjum mánuði árið um kring er hér um að ræða aukasporslu til bankastjóra sem svarar til fjögurra mánaða framfærslueyris fjölda elli- og örorkulífeyrisþega. En fyrir liggur að milli tíu og ellefu þúsund aldraðra og öryrkja þurfa að framfleyta sér á hverjum mánuði á fjórða parti þeirrar upphæðar sem nú á einu bretti er afhent bankastjórum ríkisbankanna í bílahlunnindi.

Þetta er hneyksli og algert siðleysi og staðfestir svo ekki verður um villst að hér búa tvær þjóðir í einu landi. Sífellt er að breikka bilið milli ríkra og fátækra í þjóðfélaginu. Spilling og hvers kyns aðstöðumunur virðast fara vaxandi. Stórir hópar í þjóðfélaginu virðast vera í aðstöðu til þess að skammta sér laun og ákvarða sjálfir hvað þeir greiða til samneyslunnar. Á lokuðum fundum bankaráðanna eru teknar siðlausar ákvarðanir um sérstök hlunnindi þeim til handa sem bestu launakjörin hafa í ríkiskerfinu á meðan sífellt er verið að skerða kjör þeirra lægra launuðu sem hitann og þungann þurfa að bera af öllum efnahagsráðstöfunum. Er nokkur furða þó þetta komi eins og köld vatnsgusa framan í launafólk í landinu? Kennarana sem stóðu í fleiri vikna kjarabaráttu þar sem krafan var að dagvinnulaun þeirra yrðu 2/3 af því sem bankastjórar stinga í vasann sem bílastyrk? Eða lægst launaða fólkið í landinu sem með kjarasamningum s. l. haust fékk hækkaða lágmarkstekjutryggingu um liðlega 1000 kr. á mánuði eftir að hafa þurft að sæta 30% kjaraskerðingu á undanförnum mánuðum?

Láglaunafólkið þurfti sem sagt að sætta sig við hækkun á lágmarkstekjutryggingunni s. l. haust sem svarar til 2–3% af þeirri greiðslu sem bankastjórarnir stinga nú í vasann sem extra sporslu ofan á sexföld dagvinnulaun verkafólks. Kannske sýnir það líka glöggt hve gífurlegt misréttið er orðið í tekjuskiptingunni milli þjóðfélagshópa í landinu, sem ég hef margoft bent á úr þessum ræðustól, að það tekur Sóknarkonuna, Iðjukonuna, konuna á skrifstofunni, í versluninni, verkamanninn í Dagsbrún og afgreiðslustúlkuna í bankanum, sem bankaráðið ákveður líka launin fyrir, níu ár í dagvinnu að vinna fyrir einum árslaunum bankastjórans.

Það er líka aldeilis furðulegt og ófyrirleitið að bankaráðin, sem kjörin eru af Alþingi Íslendinga, skuli hafa gengið svo langt í þessari makalausu ákvörðun að brjóta landslög og ákvarða að þessi hlunnindi skuli hækka skv. lánskjaravísitölu. Steininn tekur auðvitað úr ef sumir þeirra alþm., sem sæti eiga í bankaráðum, hafa tekið þátt í þessari lögleysu og það með þeim hætti að greiða fyrst á Alþingi Íslendinga atkvæði með afnámi verðbóta á laun í landinu og mæta síðan á lokuðum bankaráðsfundum og greiða atkvæði með vísitölubundinni hlunnindagreiðslu til bankastjóra og það með viðmiðun við lánskjaravísitölu sem er ein helsta ástæðan fyrir þungum fjárhagslegum byrðum og greiðsluþroti fjölda heimila í landinu. Sem sagt, því þyngri sem greiðslubyrði launafólks verður vegna hækkunar á lánskjaravísitölu því hærri verður sporslan í vasa bankastjóranna. Þannig er nú komið fyrir réttlætinu í þessu þjóðfélagi. Og hvaða áhrif hefur vísitölubindingin á þessi hlunnindi bankastjóranna? Er það rétt, sem kemur fram í einu dagblaðanna, að í ákvörðun a. m. k. sumra bankaráðanna sé grunnur launaaukans 450 þús. kr. miðað við janúar 1985 og breytist með lánskjaravísitölu? Þá þýðir það að þessi launaauki hefur frá áramótum hækkað um tæpar 50 þús. kr. Hækkunin á launaaukanum ein sér frá áramótum vegna breytinga á lánskjaravísifölu þýðir sem sagt liðlega þrenn dagvinnulaun láglaunafólks í vasa bankastjórans.

Herra forseti. Af því sem ég hef hér að framan sagt er ljóst að full ástæða var til að taka þetta mál upp utan dagskrár á hv. Alþingi, ekki síst í ljósi þess að Alþingi hefur samþykkt ályktun fyrir einu ári síðan um afnám bílakaupafríðinda embættismanna. Þó að ákvörðun um þessar hlunnindagreiðslur hafi verið tekin af bankaráðunum er ábyrgðin ekki síður hjá ríkisstj. sem hefur haft að engu vilja Alþingis um afnám bílakaupafríðinda embættismanna. Af því tilefni sem og til að óska upplýsinga ráðh. um einstaka þætti þessa máls hef ég leyft mér, herra forseti, að beina nokkrum spurningum til hæstv. viðskrh. sem hann hefur fúslega fallist á að svara.

Fyrsta spurningin beinist að þeirri ályktun sem samþykkt var á Alþingi 22. maí s. l. Í þeirri till. er kveðið á um að Alþingi feli ríkisstj. að hlutast til um afnám bílakaupafríðinda embættismanna og hæstv. forsrh. væntanlega falin framkvæmd hennar. Verður að gera ráð fyrir að að svo miklu leyti sem till. snýr að ríkisbönkunum hafi hæstv. viðskrh. verið falin framkvæmd þessa máls. Ég beini því þeirri spurningu til hæstv. viðskrh. hvað hann hafi gert til að framfylgja ályktun Alþingis frá 22. maí 1984 um að fella niður bifreiðahlunnindi bankastjóra ríkisbankanna.

Sömuleiðis er ástæða til að spyrja hæstv. sjútvrh., sem nú gegnir starfi forsrh., hvað gert hafi verið til að framfylgja vilja Alþingis um að fella einnig niður bílakaupafríðindi forstjóra Framkvæmdastofnunar og þá um leið hvort hliðstæð ákvörðun hafi verið tekin um hlunnindagreiðslur til forstjóra Framkvæmdastofnunarinnar eins og ákvörðuð hefur verið til bankastjóranna og hver hafi þá tekið þá ákvörðun. Einnig er ástæða til að spyrja hvort og þá hvenær sú ákvörðun hafi komið til framkvæmda í Framkvæmdastofnun.

Í annan stað spyr ég hæstv. viðskrh. hvort ráðh. telji að ákvörðun bankaráðanna um 450 þús. kr. árlegan vísitölubundinn launaauka til bankastjóra ríkisbankanna brjóti í bága við áðurgreinda ályktun Alþingis.

Erfitt hefur reynst að fá upplýsingar um hver eru tildrög þessarar ákvörðunar bankaráðanna. Fram hefur komið í fjölmiðlum að um hafi verið að ræða að skattayfirvöld hafi gert athugasemdir við það að ekki hafi verið talið fram til skatts eða greiddur skattur af fyrri hlunnindum bankastjóra sem fólust í því að bankarnir greiddu aðflutningsgjöld þriðja hvert ár vegna bifreiðakaupa bankastjóra. Auk þess hefur því verið haldið fram að frumkvæðið að þessari ákvörðun sé komið frá bankastjórunum sjálfum vegna athugasemda skattaeftirlitsins og kröfu þess um að greiddur yrði skattur af umræddum hlunnindum. Því er nú spurt hver séu tildrög þessarar ákvörðunar. Er það vegna athugasemda skattaeftirlitsins eða er það að kröfu bankastjóranna sjálfra? Reið Seðlabankinn á vaðið í þessu efni eða var það Landsbankinn eins og haldið hefur verið fram, og þá undir forsæti bankaráðsformannsins Lúðvíks Jósepssonar? Eða hvernig er þessi ákvörðun til komin? A. m. k. verður að telja það fráleitt að með þessari ákvörðun hafi bankaráðið talið sig vera að framfylgja þeim vilja Alþingis sem fram kom í þeirri ályktun sem samþykkt var fyrir ári síðan um afnám bílakaupafríðinda embættismanna.

Í fjórða lagi er spurt: Hver er sú viðmiðun sem lögð var til grundvallar í ákvörðun bankaráðanna um 450 þús. kr. árlegan vísitölubundinn launaauka til bankastjóra ríkisbankanna? Sérstaklega er spurt hvort innifaldar í greiðslunni séu áætlaðar skattgreiðslur vegna launaaukans. Því hefur verið haldið fram að niðurfelling á aðflutningsgjöldum, sem bankarnir greiddu áður, samsvari um 600–700 þús. kr. á þriggja ára fresti eða um 200–250 þús. kr. á ári. Mismunurinn á 450 þús. kr. launaaukanum og þeirri upphæð sem jafngilti niðurfellingu aðflutningsgjaldanna er skýrð með því að með því sé bankinn að greiða skatt af launaaukanum þannig að bankastjórarnir missi í engu þau hlunnindi sem þeir áður höfðu og jafnvel að sumir bankastjórarnir hefðu ívið meira út úr öllu saman eftir þessa breytingu.

Sé þessi skýring rétt, að opinber stofnun taki að sér skattgreiðslur starfsmanna sinna með þeim hætti sem ég hef hér lýst, þá er þessi ákvörðun þvílík svívirða ofan á lögbrotið að ríkisstj. ber ekki aðeins skylda til að bera fram tilmæli um frestun á þessum greiðslum eins og hún hefur gert, heldur að stöðva þær með öllu þegar í stað. Rökréttasta niðurstaðan væri auðvitað, eins og ég hef lýst, ef Alþingi, sem kýs bankaráðin, afturkallaði umboð það sem Alþingi hefur veitt þeim bankaráðsmönnum sem stóðu að þessari ákvörðun. Um það hlýtur Alþingi að fjalla.

Verði þessar greiðslur ekki stöðvaðar með öllu er það líka rökrétt framhald þessa máls að verkalýðshreyfingin setji á oddinn í næstu kjarasamningum að allar launagreiðslur undir 25 þús. kr. á mánuði skuli undanþegnar öllum opinberum gjöldum. Þetta væri krafa sem hvorki fjmrh. né forsrh. né þessari ríkisstj. í heild sinni væri stætt á að standa gegn ef þau bregðast ekki af fyllstu hörku við þessari makalausu ákvörðun bankaráðanna. Því að það er ljóst að ef bankastjórar, sem að sögn hafa 80–100 þús. kr. í mánaðarlaun, eru samt svo á flæðiskeri staddir að þeir geti ekki greitt skatta af sporslum sem þeir fá til bílakaupa, þá geta hvorki stjórnvöld né aðrir ætlast til þess af hinum almenna launamanni, sem hefur sex- til nífalt minni mánaðartekjur en bankastjóri, að hann geti greitt sína skatta. Það teldist líka góð búbót í kjarasamningum ef um það væri hægt að semja að opinberar stofnanir stæðu straum af rekstri og viðhaldi bifreiða starfsmanna sinna, þ. e. þeirra sem á annað borð hafa efni á að kaupa sér bifreið. Ég vil beina þeirri fsp. til hæstv. viðskrh. hvort rekstur og viðhald bifreiða bankastjóranna sé reiknað inn í þennan launaauka eða hvort bankarnir standi sérstaklega með öðrum hætti undir rekstrarkostnaðinum.

Því er haldið fram í fjölmiðlum að bankarnir standi straum af rekstrarkostnaði bifreiða bankastjóranna. Sé svo og því verður ekki breytt getur hæstv. fjmrh. varla farið að standa gegn því þó krafa komi fram frá opinberum starfsmönnum í næstu kjarasamningum um að ríkisstofnanir standi undir rekstrarkostnaði bifreiða starfsmanna. Rökin eru einföld. Ef fjmrh. og aðrir ráðherrar í þessari ríkisstj. leggja blessun sína yfir það að ófært sé að leggja á bankastjóra, sem hafa 80–100 þús. kr. laun á mánuði, að greiða rekstrarkostnað af sínum eigin bifreiðum, þá hlýtur það að vera deginum ljósara að ekki er heldur hægt að leggja á opinbera starfsmanninn, sem hefur 15–20 þús. kr. í tekjur á mánuði, að greiða rekstur sinnar bifreiðar.

Sú spurning er einnig lögð hér fyrir hæstv. viðskrh. hver séu að öðru leyti launakjör bankastjóra. Hver eru föst laun bankastjóra og önnur fríðindi eða hlunnindi sem bankastjórar hafa? Um það eru ýmsar sögur á kreiki sem ég skal ekki rekja hér frekar en ætlast til þess að hæstv. viðskrh. hafi haft tækifæri til að kynna sér það og upplýsa þingheim um það mál þannig að ekki séu getgátur uppi um það, heldur fáist hreint borð í því efni.

Í fimmta lagi er spurt um það hvort aðstoðarbankastjórar og útibússtjórar hafi launaauka eða bifreiðafríðindi í einhverju formi.

Í sjötta lagi er um það spurt hvort leitað hafi verið samþykkis ráðh. á ákvörðuninni um launaaukann. Til þess er þar vitnað að í 8. gr. laga nr. 28/1976, um Búnaðarbanka Íslands, er að finna ákvæði um að laun bankastjóra skuli ákveðin af bankaráði með samþykki ráðh. Spurt er einnig um það hvort ákvörðun bankaráðanna um launaauka bankastjóranna hafi þegar komið til framkvæmda í ríkisbönkunum og þá hvenær og að hve miklu leyti.

Að lokum, herra forseti, vil ég leggja eftirfarandi spurningar fyrir ráðh.:

Hver er skoðun viðskrh. á þessari ákvörðun bankaráðanna og er viðskrh. tilbúinn að beita sér fyrir því að þessi hlunnindi verði afnumin og að ákvörðunarvald um launakjör bankastjóra verði tekið úr höndum bankaráðanna?

Herra forseti. Um leið og ég þakka fyrir að fá að hefja þessa umr. utan dagskrár og hæstv. viðskrh. fyrir að verða við ósk minni um að svara þeim spurningum sem ég hef hér fyrir hann lagt, þá vænti ég þess að hæstv. ráðh. gefi skýr og afdráttarlaus svör við þessum spurningum.

Þingflokkur Alþfl. hefur þegar lýst andstöðu sinni á þessari ákvörðun um launaauka til bankastjóranna og skorað á ríkisstjórn Íslands að framfylgja þegar í stað samþykkt Alþingis í þessu máli. Jafnframt hefur þingflokkurinn skorað á bankaráðsmenn, sem stóðu að þessari löglausu samþykkt, að segja af sér þegar í stað og á Alþingi Íslendinga að samþykkja fyrirliggjandi lagafrv. Eiðs Guðnasonar og Karls Steinars Guðnasonar um að afnema bifreiðafríðindi ráðherra þegar á þessu þingi. Vænti ég þess að hæstv. viðskrh. sé tilbúinn til að beita sér fyrir því, sem og aðrir ráðherrar í þessari ríkisstj., að þetta mál nái fram að ganga á þessu þingi.

Það skulu vera mín lokaorð hér að með þessari ákvörðun bankaráðanna hefur verið vakin upp réttmæt reiði og gremja fólks yfir þeirri spillingu, siðleysi og misrétti sem viðgengst í kjörum og aðbúnaði fólks hér á landi. Þessi ákvörðun, sem greinilega var ekki ætluð fyrir augu almennings, hefur opnað glufu að neðanjarðarhagkerfi hlunnindanna, fríðindanna, launaaukanna, duldu greiðslnanna og skattsvikanna sem eru meginorsök þess að hér búa tvær þjóðir í einu landi. Hafi ríkisstj. ekki manndóm í sér til að taka af fyllstu hörku á þessu máli er eins gott að hún geri sér grein fyrir því að með því kyndir hún enn frekar undir þá miklu gremju og reiði sem þessi ákvörðun bankaráðanna hefur kveikt hjá fólkinu í landinu. Þá er eins gott að ríkisstj. geri sér grein fyrir afleiðingunum.