11.04.1985
Sameinað þing: 69. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4138 í B-deild Alþingistíðinda. (3468)

Umræður utan dagskrár

Guðmundur Einarsson:

Herra forseti. Ég skal reyna að verða við tilmælum um að hafa mál mitt stutt.

Ég lagði fram fsp. til viðskrh. varðandi þetta mál í byrjun vikunnar, en dró hana síðan til baka þegar var ljóst að þessi umr. mundi verða hér. Ég spurði að því í fyrsta lagi hvaða reiknireglur og hvaða forsendur stæðu á bak við þann umreikning á bílastyrk sem leiddi til þess að úr yrði kaupauki sem næmi næstum hálfri millj. kr. á ári. Ég spurði líka hve mikið ríkisbankastjórar væru að meðaltali „úti að aka“ á ári við vinnu sína. Eins og ég segi hef ég dregið þessar spurningar til baka vegna þess að hér er einmitt verið að ræða sama mál.

Ég ætla að leyfa mér að velta upp nokkrum spurningum og kannske einni meginspurningu. Hún er þessi: Erum við að koma okkur upp auðugri yfirmannastétt eða aðalsmannakerfi embættismanna sem hafa ýmiss konar aðstöðu, ýmiss konar bitlinga og ýmiss konar hlunnindi sem ekki gefast öðru fólki og hafa á því tök að losa líferni sitt og lífskjör úr sambandi við annað fólk í landinu? Ég hygg að svo sé og ég hygg að það sé hinn raunverulegi lærdómur sem við eigum að draga af því máli sem hér er uppi í dag. Ég hygg að við séum að koma okkur upp stétt manna sem notar peningana okkar til þess að gefa hver öðrum Skarðsbækur, málverk eða teppisbleðla eins og það hét í einu afmælinu í vor. Ég hygg að við séum að koma okkur upp stétt manna sem hefur aðstöðu til þess að byggja glæsihallir og segja á sama tíma fólkinu að herða nú sultarólina vegna þess að einskis sé að vænta nema þjóðarkakan stækki og vitna til ýmissa orða sem í því sambandi eru viðhöfð. Ég held að við séum að koma okkur upp stétt manna sem krefst þess að þegnarnir láti þá hafa bíla á þriggja ára fresti og reki bílana auk þess fyrir þá þótt akstursþörf þeirra í starfi liggi alls ekki í augum uppi. Ég tel raunar að þeir sinni störfum sínum þeim mun betur sem þeir eru minna „úti að aka“. Það er augljóst að ef einhver þörf er á því að þeir aki í sínu starfi er hægt að greiða þeim þann kostnað eftir reikningi eins og fjöldamörgum öðrum stéttum í þessu landi sem vinna þannig störf.

Ég tel að við séum líka að koma okkur upp stétt fólks sem öðlast eftirlaunakerfi sem er ekki heldur í neinu sambandi við eftirlaunakerfi annars fólks í landinu, fólks sem nýtur jafnvel margfaldra eftirlauna og þannig lífskjara sem ekki eru í neinu sambandi við lífskjör annars fólks. Lífskjör þessarar stéttar, ef ekki er að gáð, lyftast á flug og fara langt ofar lífskjörum þess fólks sem þessir menn eiga að þjóna vegna þess að þrátt fyrir allt eru þeir þjónar okkar en ekki herrar.

Menn geta spurt: Hvers vegna gerist þetta? Hvers vegna gerist þetta í kerfi sem á að vera mjög ábyrgt? Fólkið kýs menn til þess að vera á Alþingi og Alþingi kýs menn til eftirlitsstarfa, menn sem sitja t. d. í bankaráðum. Þetta gerist m. a. vegna þess að stjórnmálamennirnir sjálfir hafa staðið að því að byggja þetta kerfi upp. Þeirra er ábyrgðin á þessu kerfi. Eins og hæstv. viðskrh. kom að hérna áðan eru upptökin að þessu öllu ekki ákvörðun launaauka um síðustu áramót. Upptökin að þessu er ákvörðun um bílakaupastyrk frá 1970, ákvörðun sem er tekin með fullu samþykki allra flokka á Alþingi eins og ráðh. lýsti. Þetta eru upptökin að þessu. Og hvers vegna gera menn þetta svona? Hvers vegna standa stjórnmálamenn á þennan hátt að því að renna stoðum undir hina nýju stétt? Kannske leynist í brjósti þeirra sú von að þeir muni njóta þessara kjara sjálfir síðar. Kannske vona þeir að flokkurinn þeirra setji einhvern tíma sálina þeirra í poka og skjóti henni inn fyrir þetta gullna hlið. Önnur skýring er sú að embættismennirnir, afkvæmi þessa kerfis, eru eftirlitslausir líka. Það er enginn sem hefur eftirlit með því að þeir gegni eða að þeir fari þannig með eigur og hagsmuni okkar að svona lagað komi ekki fyrir. Ég held að menn ættu að gera sér grein fyrir því að það eru stjórnmálaflokkarnir sjálfir sem hafa komið þessu kerfi á. Það gerðist ekkert sérstakt um áramótin síðustu annað en það að þessar aðferðir voru þýddar yfir í peninga. Nú sjáum við hvað sakleysislegur bílastyrkur getur orðið í peningum. Og við ættum kannske að taka ýmiss konar önnur hlunnindi og ýmiss konar aðra bitlinga og reyna að koma þeim á sama gengi og sjá hvað er á ferðinni.

Að mínu mati eiga allir flokkar sök sem nær miklu lengra aftur en til síðustu áramóta. Þess vegna sagði Bandalag jafnaðarmanna í yfirlýsingu sem var birt fyrir páska, þann 3. april ef ég man rétt, að verkalýðsflokkarnir svokölluðu ættu þarna sök eins og allir hinir. Það bjargar engri sál núna að lýsa yfir andstöðu við umreikning bílastyrksins yfir í kaupauka. Við erum að tala þarna um hlunnindi sem eru miklu eldri og hafa miklu lengur legið fyrir. Menn verða ekki sáluhólpnir af því að berja sér á brjóst núna.

Nú geta menn spurt: Hvers vegna hefur þetta viðgengist í öll þessi ár? Voru það þessir níu alþm., sem eru kjörnir af Alþingi, sem sögðu frá því hvernig þessi skikkur er núna? Nei, þeir hafa þagað yfir þessu síðan um áramót. Það voru duglegir blaðamenn og duglegt blað sem sögðu frá því hver þessi siður er. Ég held að þessir níu alþm. og félagar þeirra, sem kusu þá, ættu að velta því fyrir sér hvers konar kerfi þetta er. Það voru ekki alþm. sem lýstu því hvernig þetta væri komið. Þeir héldu verndarhendi eins og hinir yfir þessu ástandi.

Niðurstöður mínar hljóta því að vera þær, að þetta sé eitt dæmi um stétt sem er umlukin af kaupaukum og hlunnindum og kemst þannig á lífskjaraplan sem á ekkert skylt við lífskjör annarra í landinu. Þetta er kerfi sem er byggt upp á samábyrgð gamla flokkakerfisins sem það hefur notað til þess að hlúa að sínum mönnum. Ábyrgðin á þessu kerfi er náttúrlega hjá Alþingi og áherslan á launaaukann einn í peningum er bara hvítþvottur því að þetta er miklu eldra kerfi. Áherslan á verðtryggingu út af fyrir sig skiptir ekki höfuðmáli. Þetta hefur alltaf verið verðtryggt. Þetta hefur verið verðtryggt síðan sumarið örlagaríka 1983, þegar verðtrygging var bönnuð, vegna þess að þá voru bara bílahlunnindin verðtryggð. Það er verðtrygging að njóta þeirra kjara að fá eftirgjöf skatta á bílum. Þess vegna gerðist ekkert markvert í þessu máli um síðustu áramót annað en að blað eitt sagði frá því hvað kerfið er að bögglast með. Við eigum að draga okkar lærdóma af því.