11.04.1985
Sameinað þing: 69. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4153 í B-deild Alþingistíðinda. (3478)
Umræður utan dagskrár
Jóhanna Sigurðardóttir:
Herra forseti. Ég þakka hæstv. viðskrh. fyrir svör hans þó ég verði að segja að ég var ekki alls kostar ánægð með þau vegna þess að hæstv. ráðh. gaf við ýmsum þeim spurningum, sem ég lagði fyrir hann, alls ekki fullnægjandi svör.
Eins og hv. þm. Eiður Guðnason benti á skaut ráðh. sér á bak við það í svari við fyrstu spurningunni að bílamál ríkisins og ríkisstofnananna væru í endurskoðun. Það hefur verið bent á að þau eru búin að vera ansi lengi í endurskoðun. Þess vegna fannst mér að það kæmi alls ekki fram afstaða ráðh. til þessa máls, hvort hann teldi að þessi ákvörðun bankanna bryti í bága við ályktun Alþingis eða í raun hvað ríkisstj. hafi gert til þess að framfylgja ályktun Alþingis í þessu efni.
Að vísu hefur hæstv. ráðh. það sér til málsbóta að hann hefur haft skamman tíma til þess að leita sér upplýsinga um þetta mál. Ég varð líka fyrir miklum vonbrigðum með það að þessi tími skyldi ekki nægja hæstv. ráðh. til þess að kanna hvort þessi ákvörðun bankaráðanna, sem upplýst er að hafi verið samþykkt í a. m. k. tveim bankaráðanna fyrir áramót, hafi komið til framkvæmda, hvort bankastjórarnir hafi þegar fengið þessar greiðslur. Ég tel að hæstv. ráðh. hefði átt að vera í lófa lagið að leita sér þessara upplýsinga og kynna Alþingi hver framkvæmdin hafi orðið á þessu. Telji ráðh. að hann hafi ekki svör við þeirri spurningu núna óska ég eftir því að hæstv. ráðh. kynni sér framkvæmd þessa máls og að þá, ef þessari umr. lýkur núna, kynni hann Alþingi framkvæmdina í þessu máli þegar frv. um bankana, sem hæstv. ráðh. hefur lagt fyrir Alþingi, verður tekið hér til umr.
Ég varð líka vissulega fyrir vonbrigðum með það að fá ekki afdráttarlausari svör frá hæstv. ráðh. um það hvort hann væri reiðubúinn til þess að beita sér fyrir því að þessi hlunnindi væru afnumin.
Hæstv. sjútvrh., sem nú gegnir starfi forsrh., sá ekki heldur ástæðu til að taka þátt í þessari umr. og gefa svör við þeim spurningum sem ég beindi til hans. Þær spurningar snéru að því hvort þessi ákvörðun hefði komið til framkvæmda að því er varðar forstjóra Framkvæmdastofnunar ríkisins. Ég sé að hæstv. sjútvrh. er hér ekki til staðar, en ég harma að hann sá ekki ástæðu til að svara þessum spurningum. (Gripið fram í.) Nú. Ég vænti þá þess að hæstv. ráðh. muni svara þessu að því er varðar Framkvæmdastofnun ríkisins.
Mér finnst að í þessum umr. hafi komið fram hjá þm. mikil andstaða við þá ákvörðun sem tekin var hjá bankaráðunum og ég tel að það þurfi að skoða rækilega hvort sú hugmynd, sem ég hef sett hér fram, hafi ekki fylgi hér á hæstv. Alþingi um það að umboð bankaráðanna verði afturkallað. Og það hefur sannarlega vakið athygli mína í þessari umr. að bankaráðsmenn hafa flestir hverjir verið undarlega hljóðir í þessari umr. og ekki séð ástæðu til að taka þátt í henni. Spurning er hvort megi túlka þögn þeirra þannig að þeir séu sáttir við þá ákvörðun sem tekin hefur verið í bankaráðunum í þessu máli.
Ég ítreka að lokum þakklæti mitt til hæstv. viðskrh. þó ég hafi ekki verið alls kostar ánægð með svör hans.