15.04.1985
Efri deild: 56. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4174 í B-deild Alþingistíðinda. (3487)

416. mál, þingsköp Alþingis

Flm. (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Hæstv. forseti. Hv. 3. þm. Norðurl. v. sagði að það væri síður en svo ástæða til að flaustra þessu máli. Já, getum við ekki öll verið sammála um það? En er það nú að flaustra máli sem er tekið upp árið 1983 og búið að vinna að síðan? Þingskapanefndin samanstendur af fulltrúum allra þingflokka. Allir þingflokkar stóðu að því að nefndin væri sett á stofn. Þingflokkarnir hafa getað fylgst með þessu máli allan tímann. Og allir þm. fengu þetta frv. í hendur í febrúar s. l. Er það nú að flaustra þessu máli þó að við afgreiddum það á þessu þingi? Ég vænti þess að enginn haldi því fram við nánari aðgát að þetta geti verið að flaustra málinu.

Hv. 3. þm. Norðurl. v. leggur ítrekað mikla áherslu á að það sé ágreiningur um þetta frv. Hann lætur sem það sé mjög mikill ágreiningur. En ef menn segja þetta mega þeir ekki segja þetta á grundvelli misskilnings. Ég benti á það í ræðu minni áðan að sumt af því sem hv. 3. þm. Norðurl. v. hefur sagt í þessari umræðu er byggt á misskilningi. Hv. 3. þm. Norðurl. v. svaraði því engu nú. Það skil ég vel. Hann sem góður og skynsamur maður sá að þarna var um misskilning að ræða. En við skulum ekki draga of miklar ályktanir af misskilningi.

En um hvað er þá þessi ágreiningur? Mér fannst það koma hér fram að þessi ágreiningur þyrfti ekki fyrir fram að vera óyfirstíganlegur. Hv. þm. benti á tvö atriði og auðvitað eru bæði þessi atriði álitamál. Hann sagði að það ætti að takmarka umræður um þáltill. og fsp. minna en frv. gerði ráð fyrir. Auðvitað getur þetta verið álitamál. En ég hef skýrt hvernig við í þingskapalaganefnd komumst að þeirri niðurstöðu, sem lýsir sér í frv., um þessi efni. Hv. 3. þm. Norðurl. v. sagði að það væri allt annað ef utandagskrárumræða skv. 1. mgr. 32. gr. væri í upphafi fundar en ekki í lok fundar Sþ. Ég viðurkenni það. Og það er álitamál, hvort heldur eigi að vera. Auðvitað ræddi nefndin þetta og lagði þetta niður fyrir sér. Og nefndin komst að þeirri niðurstöðu að það færi vel á því að staðsetja þetta í lok fundar, m. a. með tilliti til þess að við getum eitthvað þokað okkur frá því ófremdarástandi og óvirðingu sem Alþingi hefur af því að það eru yfirleitt örfáir, jafnvel tveir til þrír þm., jafnvel einn þm., að hlusta á ræðumann í lok fundar í Sþ. Þetta sjónarmið kom þarna til. En ég endurtek: Auðvitað er álitamál hvar á að staðsetja þetta.

Ég verð nú að segja að þetta eru einu atriðin sem hv. 3. þm. Norðurl. v. víkur að sem ágreiningsefni. Mér þykir ekki hlýða að leggja mikla áherslu á ágreining í þessu efni, heldur skulum við taka höndum saman og athuga hvort við getum fengið víðtækari samstöðu í þessu efni en nú er. En þó verður það að vera á þann veg að það sé gerð veruleg bragarbót í þessum efnum í þá átt sem frv. gerir ráð fyrir varðandi þáltill., fsp. og umræður utan dagskrár því að annars er starf okkar hégómi einn og ég tel að þá sé ekki framkvæmdur sá vilji Alþingis sem lá á bak við ákvörðunina um að stofna til þessarar endurskoðunar sem við nú fáumst við.

Ég hef áður komið að því hve þýðingarmikið er að ljúka þessu máli á þessu þingi. Ef mönnum finnst ástandið eins og það er þurfa nauðsynlegar breytingar ber okkur að gera þær breytingar nú þegar og okkur er ekkert að vanbúnaði til þess að gera það. Hv. 3. þm. Norðurl. v. hefur sagt hér: Það er nauðsyn á breytingum. Ég vil leyfa mér að treysta því að skv. því sé hv. 3. þm. Norðurl. v. með því að koma þessari breytingu í framkvæmd á þessu þingi. Með tilliti til þess lagði ég í samráði við þingskapalaganefnd ekki til að þessu frv. yrði vísað til fastanefnda þingsins, heldur að þingskapalaganefndin starfaði áfram og tæki til athugunar þær brtt. sem fram kæmu. Það er mín skoðun, það var skoðun þingskapanefndarinnar, að það væri vel búið að meðferð þessa máls á þennan hátt. Það er ekki einsdæmi að slíkt sé gert þegar þingkjörin nefnd vinnur frv. Það er allt annað ef það er einstakur þm. eða ríkisstj. sem flytur málið, að þá fari það til fastanefndar. En eins og málið ber að og eins og það er mikil þörf á að afgreiða það nú var ekki gerð tillaga um fastanefnd.

Nú þykir mér þessi till. hv. 3. þm. Norðurl. v. að vísa frv. til allshn. það viðurhlutamikil að ég vil óska þess við fulltrúa allra þingflokka að athuga það nú áður en við göngum til atkvæða um þetta mál hvort þingflokkarnir vilja afgreiða málið á þessu þingi og hvort þeir telji að það verði gert með öðrum hætti en þeim að málinu verði flýtt á þann veg að vísa því ekki til nýrrar nefndar nú. Ég vil því leyfa mér að óska þess að atkvgr. um tillögu hv. 3. þm. Norðurl. v. um að vísa málinu til allshn. verði frestað. Ég teldi að það færi vel á því að við gætum sett fund aftur kl. 6 að loknum þingflokksfundum og þá lægi þetta fyrir, hver er vilji þingflokkanna í þessu efni. — [Fundarhlé.]