15.04.1985
Efri deild: 56. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4176 í B-deild Alþingistíðinda. (3488)
416. mál, þingsköp Alþingis
Sigríður Dúna Kristmundsdóttir:
Virðulegi forseti. Það kom fram í máli hv. 4. þm. Vestf., 1. flm. þessa frv., allnokkrum sinnum hér í umr. að það hefði verið vilji Alþingis að endurskoða þingskapalögin og vísaði hv. þm. þar til þáltill. sem Alþingi hefur samþykkt. Mig langar til þess að benda á að það er eitt að vera sammála um að endurskoðun skuli fara fram og annað að vera sammála í einu og öllu um niðurstöður þeirrar endurskoðunar. Þarna er greinarmunur á, enda hefur það komið fram hér í umr. að það eru skiptar skoðanir á einstaka atriðum í niðurstöðum þessarar endurskoðunar og það tel ég ákaflega eðlilegt. Ég hef þegar gert grein fyrir aths. Kvennalistans við þessar niðurstöður og ætla ekkert að fjölyrða meira um það hér nú.
En hér hefur komið fram till. um að vísa málinu til hv. allshn. þessarar deildar. Ég var að vísu ekki hér inni í þingsal, því miður, þegar hv. 3. þm. Norðurl. v. gerði till. um það þannig að ég heyrði ekki rökin fyrir því, en þingflokkur Kvennalistans hefur fjallað um þetta mál núna á þingflokksfundi í millitíðinni og við teljum að eðlilegast sé að þingskapalaganefndin haldi áfram að fjalla um þetta mál eða þá að kosin verði enn önnur nefnd til þess að gera það. Það er m. a. vegna þess að í hv. allshn. eiga ekki sæti fulltrúar allra þingflokka. Hún er því að okkar áliti ekki mjög heppilegur vettvangur til þess að fjalla um þetta mál þar sem þar með er ekki tryggt að sjónarmið allra þingflokka komist til skila. Þingskapalaganefndin virðist vera álitlegri kostur í þessu efni, enda er hún best inni í málinu og fyllsta ástæða til að sú þekking nýtist áfram við meðferð málsins.
Þingflokkur Kvennalistans vill gjarnan að það takist að afgreiða málið á þessu þingi og að sú vinna, sem þegar hefur verið lögð í það, nýtist sem allra best. Það er eindregin ósk mín að þingskapalaganefndin reyni nú til hlítar í meðferð málsins, þ. e. ef það reynist meiri hluti fyrir því að hún fái málið til meðferðar milli 1. og 2. umr. málsins, að ná samkomulagi og samræma þau mismunandi sjónarmið, sem hér hafa komið fram í umr. málsins, á þann veg að sem allra flestir megi vel við þessa endurskoðun þingskapalaganna una.