15.04.1985
Neðri deild: 56. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4180 í B-deild Alþingistíðinda. (3509)

50. mál, ríkisábyrgð á launum

Karvel Pálmason:

Herra forseti. Það frv., sem hér er nú til 2. umr., mun hafa verið áður hér til umfjöllunar í hv. deild á síðasta þingi og urðu þá um það nokkrar umr. Við þær umr. beindi ég nokkrum fsp. til hæstv. fjmrh. og ég vil enn gera það.

Þannig er mál með vexti að frv. sjálft á að taka af frekari tvímæli, að því er mér skilst, um túlkun á því hvað fellur undir ríkisábyrgð á launum. Hins vegar hefur viðkomandi n., hv. félmn., gert hér brtt. og tekur þar inn í, eftir því sem mér sýnist, að lífeyrissjóðsiðgjöld falli núna inn í dæmið sem ekki hefur verið áður.

Það er tvennt eða kannske þrennt sem ég vil gera hér að umræðuefni eins og ég gerði líka síðast. Það er í fyrsta lagi varðandi orlofsféð. Orlofsfé í því formi sem það hefur verið greitt, þ. e. í gegnum Póstgíróstofuna, hefur að því er virðist fallið undir kerfið sem þetta frv. gerir ráð fyrir um ríkisábyrgð á launum. Nú gerðist það 1982 að verkalýðshreyfingin á Vestfjörðum samdi í raun og veru um það að hafa annað fyrirkomulag á inngreiðslu og ávöxtun orlofsfjár á því svæði en í gegnum próstgírókerfið. Eftir því sem ég best veit virðist sú ávöxtun og það form, sem þar var upp tekið í þríhliða samningum milli viðkomandi verkalýðsfélags, vinnuveitenda og peningastofnunar, ekki falla undir það kerfi sem við höfum búið við varðandi ríkisábyrgð á launum. Ég vil ekkert fullyrða, en mér sýnist að enn sé ekki gert ráð fyrir því að þetta falli undir ríkisábyrgð á launum skv. þessu frv. g vil því spyrja hæstv. félmrh. hvort það sé till. hæstv. ráðh. að enn afgreiði Alþingi frv. um ríkisábyrgð á launum, sem varðar orlofsfjármálið, með þeim hætti að a. m. k. einn landshluti hafi ekki tryggt að orlofsfé sé inni í kerfinu varðandi ríkisábyrgð á launum. Ef þetta er réttur skilningur hjá mér tel ég alveg ótækt að ekki verði gerð breyting á frv. að því er þetta varðar. Við hljótum að gera kröfur til þess og ætlast til þess að í þessu tilfelli sitji allir launþegar við sama borð. Eins og áður hefur komið fram hér í umr. er það samkomulag, sem gert hefur verið víðs vegar á Vestfjörðum um innborgun og ávöxtun orlofsfjárins, fullkomlega löglegt og rúmast í löggjöf um orlofsfé. Við hljótum því að gera kröfur til þess að þeir samningar, sem þar hafa verið gerðir um ávöxtunina, séu teknir fullkomlega gildir á borð við orlofsféð í póstgírókerfinu.

Í öðru lagi hefur það komið fram, og það hefur komið fram líka af hálfu verkalýðshreyfingarinnar það er ég best veit a. m. k., að undir þetta ættu að falla bæði greiðslur til sjúkra- og orlofssjóða verkalýðsfélaganna, þeir væru innl í þessu dæmi líka ásamt lífeyrissjóðsgjöldunum. Mér sýnist að það sé ekki gert að því er þetta frv. varðar. Þannig er þarna um það að ræða, sé þetta rétt hjá mér, sem ég vil á þessu stigi ekkert fullyrða um en ég sé ekki betur en að sé svo, að orlofsfé launþega á Vestfjörðum, sem ávaxta sitt fé skv. sérstökum samningum sem rúmast innan löggjafar um orlofsfé, er undanþegið þessari löggjöf. Það eru ekki inni í frv. um ríkisábyrgð á launum ákvæði um orlofsfé launafólks á Vestfjörðum. Í öðru lagi er allt það fé sem greitt er til sjúkra- og orlofssjóða verkalýðsfélaganna líka undanþegið þarna, ég sé ekki betur. Ég tel að það sé alveg ótækt að þegar verið er að breyta löggjöf til að gera hlut vinnandi fólks tryggari, svo að það nái sínum launum, í gegnum hvaða form sem það er, gangi Alþingi þannig frá slíkri löggjöf að skilja eftir tvö atriði sem augljóslega eiga, a. m. k. að mínu mati, að vera þarna inni.

Ég spyr því hæstv. félmrh. hvort það sé réttur skilningur hjá mér í fyrsta lagi að orlofsfé launafólks á Vestfjörðum í því formi sem það er inngreitt og ávaxtað njóti ekki ríkisábyrgðar og í öðru lagi hvort sama gildi um iðgjöld sjúkra- og orlofssjóða verkalýðsfélaganna. Ef þetta er svona tel ég að ekki verði hjá því komist að gera breytingu og mun þá óska eftir því að málinu verði frestað þangað til tækifæri gefst til þess að koma með brtt. í því formi. Ég óska sérstaklega eftir því að hæstv. félmrh. svari þessum spurningum ótvírætt, hvort þetta sé með þessum hætti eða ekki, því að ég tel nauðsynlegt að það sé alveg ljóst og tryggt með hvaða hætti þessi mál eigi að vera í framtíðinni.