15.04.1985
Neðri deild: 56. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4184 í B-deild Alþingistíðinda. (3512)

50. mál, ríkisábyrgð á launum

Ólafur Þ. Þórðarson:

Herra forseti. Alþýðusamband Íslands og vinnuveitendur virðast hafa mikla trú á því að það sé eina rétta leiðin að rukka inn orlof í gegnum Póstgíróstofuna. (KP: Það á ekki við um alla.) Engu að síður er þeirra trú þó það veik að þeir telja að það verði að koma til ríkisábyrgð á starfsemina. Eitthvað er þetta naumt. En á sama tíma og þeir halda þessu fram vita þeir að sá háttur hefur verið tekinn upp vestur á fjörðum að halda þessu fjármagni heima í byggðarlögunum með frjálsum samningum í þeim lánastofnunum sem þar eru. Nú virðist aftur á móti, þegar kemur að því hvort þeir aðilar skuli fá sömu tryggingar, þ. e. ríkisábyrgð, koma það hljóð í strokkinn að þeir geti ekki fellt sig við þau vinnubrögð.

Ég hlýt nú að spyrja undir þessum kringumstæðum: Er ætlunin að hafa tvenn lög í þessu landi? Og hefur nú hæstv. iðnrh. notað heila eyrað að þessu sinni? Ég hlýt að spyrja hæstv. félmrh. að því hvort ekki sé æskilegt undir kringumstæðum sem þessum að umr. verði frestað og það gefist ráðrúm til að hafa samband við forustumenn verkalýðshreyfingar á Vestfjörðum og forustumenn atvinnurekenda á Vestfjörðum og kanna hvort það séu einhver þau atriði sérstaklega í þessum samningi sem rn. gefi ekki fellt sig við, en breyti þó ekki þeirri málsmeðferð að fjármagnið verði geymt heima í héruðunum. Mér er nánast óskiljanlegt að mönnum detti í hug að reyna að brjóta niður þá ákvörðun, sem tekin var og framkvæmd er, að geyma þetta fjármagn heima í héruðunum, með þeim hætti að neita um ríkisábyrgð við gjaldþrot undir slíkum kringumstæðum. Það eru engin rök fyrir slíkum vinnubrögðum. Það er nánast hótun: Ef þið ætlið að fara að spila þetta eftir eyranu á ykkar hátt, en hlýðið ekki okkar forsjón syðra, þá fáið þið enga ríkisábyrgð. — Það er það sem verið er að segja. Ég get illa trúað því að athuguðu máli að þá fáist men ekki til að fresta þessari umr. Ég óska eftir því við hv. forseta að hann fresti umr. þannig að ráðrúm fáist til að athuga hvort ekki er hægt að ná sáttum í þessu máli.