15.04.1985
Neðri deild: 56. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4191 í B-deild Alþingistíðinda. (3527)

Afgreiðsla þingmála

Svavar Gestsson:

Herra forseti. Í upphafi þessarar umræðu beindi ég fsp. til hæstv. landbrh. sem fer með landbúnaðarmál í ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar. Ég hafði varla komið frá mér ræðu minni nema að takmörkuðu leyti þegar hæstv. iðnrh. sá ástæðu til að kalla fram í og trufla mál mitt og var bersýnilegt að hann hafði ýmislegt við málin að athuga. Þó kom það enn betur á daginn í ræðu hans hér áðan, því að hvorki hæstv. iðnrh. né hv. þm. Halldór Blöndal treystu hæstv. landbrh. til þess að svara fyrir þetta mál og þustu því í stólinn hvor af öðrum með skætingi og óðagoti, eins og hæstv. iðnrh. gerði hér áðan, gapti og gleypti vind, svo ég noti hans eigin orð, herra forseti.

Það kemur sem sagt á daginn að íhaldið, Sjálfstfl., vill helst ekki sýna þetta mál. Hv. þm. Halldór Blöndal telur þetta mál, landbúnaðarmálin, í mesta reiðuleysi, eins og hann orðaði það hér áðan. Og það er bersýnilegt að hæstv. iðnrh. hefur ekki heldur áhuga á því að þessi mál komi til meðferðar hjá stjórnarandstöðunni nú þegar. Hann reynir að draga þar úr eins og mest hann má og bregður hæstv. landbrh. um það að á honum sé mikið óðagot og hefur við orð að einhverjir hér hafi étið óðs manns skít. Það er tilvitnun í hæstv. iðnrh., með leyfi hæstv. forseta, en þá var iðnrh. einmitt að ræða um virðingu Alþingis, herra forseti, þegar þessi orð voru sögð.

Ég held að það sé alveg rétt, herra forseti, í þessum efnum að átta sig á því að hæstv. ríkisstj. hefur sniðgengið Nd. í vetur. Fyrir Ed. liggja í dag 20 mál, þ. á m. mörg stjfrv. En af einhverjum ástæðum eru mjög fá mál frá ríkisstj. á dagskrá Nd. Ekki dettur mér í hug að það sé vegna þess að stjórnarliðið hafi af einhverjum ástæðum heykst á því að leggja mál hér fyrir Nd., vegna þess að þannig háttar fyrirkomulagi á þinginu að mál verða hvort eð er að koma fyrir báðar deildir, þannig að ef Nd. er slæm þá mætti hæstv. ríkisstj. hafa það í huga að illu er best aflokið og oft kannske skynsamlegt að byrja á Nd., eins og þetta hefur nú iðulega verið á undanförnum árum, trúi ég.

En það kom einnig fram hér í ummælum hæstv. iðnrh., sem mér fannst ákaflega athyglisvert, að hann telur sérstaka ástæðu til að bera blak af vinnubrögðum utanrrh. sem voru lauslega nefnd hér af hv. þm. Steingrími J. Sigfússyni. Í rauninni er það svo með ráðherra Sjálfstfl. að þeir hafa ævinlega frekar litið á sig sem ráðherra Sjálfstfl. en sem ráðherra þingsins og þjóðarinnar. Þannig hefur það jafnan verið. Og í þessum svörum hæstv. iðnrh., hroka hans og fyrirgangi hér í ræðustólnum áðan kemur það fram að hann telur sig enga skuld eiga þinginu að gjalda í þessum efnum né heldur að aðrir ráðherrar Sjálfstfl. þurfi að gera það. Það sé nóg að fara með málin fyrir landsfund íhaldsins og byrja að ræða þau þar, frekar en að ræða við þingið. Þetta minnir mjög á borgarstjórann í Reykjavík sem er eins og kunnugt er þekktur að því að vera aðeins borgarstjóri Sjálfstfl. en ekki borgarstjóri Reykvíkinga. Þetta er eftir öðru hjá forustumönnum íhaldsins.