15.04.1985
Neðri deild: 56. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4193 í B-deild Alþingistíðinda. (3531)
Afgreiðsla þingmála
Páll Pétursson:
Herra forseti. Hér hefur komið til orða að ráðh. er lagt það til lasts að hafa lagt of mörg mál fyrir Ed. Það er rétt að rekja aðdraganda að þessu. Undanfarin ár hefur vinnuálag hv. Ed. verið minna, þar hafa verið miklu styttri fundir. Formenn þingflokka fóru fram á það við ríkisstj. í haust að reynt yrði að jafna vinnuálagi á milli deildanna. Þetta hefur ríkisstjórnin gert. Það hefur verið lagt fram meira af málum í Ed. að því er manni virðist á þessu þingi og menn hafa mikið að gera þar, enda sjáum við það á dagskránni að dagskrá Ed. er orðin miklu lengri en dagskrá Nd. En það er sem sagt ekki við ráðh. að sakast. Þetta hefur kannske gengið aðeins of langt, en það er gert vegna tilmæla formanna þingflokkanna.
Varðandi það mál sem hér er til umr. utan dagskrár, frv. um verðlagningu landbúnaðarvara sem stjórnarandstaðan óskar eftir að fá í hendur, vil ég undirstrika að hér er ekki um fullbúið frv. að ræða. Þetta nál. er afrakstur af starfi nokkurra manna á vegum stjórnarflokkanna sem unnu að samningu frv. Það er ekki búið að ganga frá grg. með frv. og síðast en ekki síst þá eiga þingflokkar stjórnarinnar báðir eftir að fjalla um málið. A. m. k. er það svo með þingflokk Framsfl. að hann á eftir að fjalla ítarlega um þetta mál. Við höfum einungis litið á það á einum fundi. Þetta er flókið og viðamikið mál og við erum ekki búnir að ljúka þeirri vinnu alveg í hvelli. En þegar fram kemur frv. um þetta efni sem við viljum taka ábyrgð á og standa að, þá að sjálfsögðu verður stjórnarandstöðunni kynnt það eins og öðrum þm.