16.04.1985
Sameinað þing: 70. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4196 í B-deild Alþingistíðinda. (3541)
357. mál, húsnæðissamvinnufélög og búseturéttaríbúðir
Fyrirspyrjandi (Sigríður Dúna Kristmundsdóttir):
Herra forseti. Á þskj. 569 hef ég ásamt hv. þm. Jóhönnu Sigurðardóttur, Steingrími J. Sigfússyni og Guðmundi Einarssyni borið fram svohljóðandi fsp. til hæstv. félmrh.:
„t. Hvað líður störfum nefndar sem skipuð var með bréfi 27. júní s. l. til að vinna að frv. um búseturéttaríbúðir og kaupleiguíbúðir?
2. Hyggst ráðh. beita sér fyrir setningu laga um húsnæðissamvinnufélög og búseturéttaríbúðir á yfirstandandi þingi?“
Það var hér á Alþingi þann 14. maí s. l. að hæstv. félmrh. lýsti því yfir til að leysa ágreining um afgreiðslu á frv. ríkisstj. um Húsnæðisstofnun ríkisins að skipuð skyldi nefnd til að semja frv. til laga um búseturéttaríbúðir og kaupleiguíbúðir. Boðaði hæstv. ráðh. jafnframt við þetta tækifæri að stefnt skyldi að því að leggja slíkt frv. fram í byrjun næsta þings, þ. e. þess þings sem nú stendur yfir. Þann 27. júní s. l. skipaði hæstv. ráðh. þá nefnd sem hér um ræðir, en ekkert bólaði á umræddu frv. við byrjun þings s. l. haust.
Í svari við fsp. hér á Alþingi frá hv. þm. Jóni Baldvini Hannibalssyni þann 6. nóvember s. l. upplýsti hæstv. ráðh. að nefndin hefði haldið marga fundi um málið, stjórnarflokkarnir stæðu einhuga að starfi hennar og að hann hefði, með leyfi forseta, „fulla ástæðu til að ætla að það muni ekki dragast mjög lengi úr þessu að niðurstöður komi frá nefndinni.“ Þetta var 6. nóvember s. l. og síðan þetta var mælt eru liðnir meira en fimm mánuðir, þessu þingi er senn lokið og enn heyrist ekkert frá þessari nefnd. Ekkert frv. um búseturéttaríbúðir og kaupleiguíbúðir hefur birst á borðum hv. þm. Hvað veldur? Hvers vegna tekur svona langan tíma að semja frv. um mál sem stjórnarflokkarnir eru einhuga um ef marka má orð hæstv. félmrh. á Alþingi 6. nóvember nýliðinn eða hefur hæstv. ráðh. ekki í hyggju að standa við þau loforð sem hann gaf á Alþingi á síðustu vordögum og beita sér fyrir lagasetningu um þessi mál á yfirstandandi þingi og ef svo er hvernig hefur þá hæstv. ráðh. hugsað sér að standa að slíkri lagasetningu nú þegar aðeins eru eftir u. þ. b. fimm vikur af þessu þingi? Þetta eru spurningar sem brenna á yfir 3000 félagsmönnum húsnæðissamvinnufélaganna og eflaust mörgum fleirum sem í búseturéttarfyrirkomulaginu eygja einu færu leiðina til að komast í sæmilega öruggt húsaskjól í því neyðarástandi sem nú ríkir í húsnæðismálum hér á landi. Við svo búið má ekki lengur standa. Loforð eru væntanlega gefin til þess að þau séu efnd. Og hér þurfa að koma til skýr og afdráttarlaus svör. Þess vegna er þessi fsp. hér fram borin.