16.04.1985
Sameinað þing: 70. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4199 í B-deild Alþingistíðinda. (3546)
357. mál, húsnæðissamvinnufélög og búseturéttaríbúðir
Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):
Að gefnu tilefni vegna orða hv. síðasta ræðumanns skal það tekið fram að það eru allnokkrir dagar síðan forseti fór fram á það við forsrh. að fá slíkan lista sem hv. 3. þm. Reykv. talaði um. Það skal enn fremur tekið fram að á fundi sem forsetar þingsins áttu í morgun með formönnum þingflokkanna var vikið að þessu máli. Þar var lýst yfir af minni hálfu að það yrði gengið eftir þessum lista og við forsetar þingsins mundum athuga málið og kveðja formenn allra þingflokka á okkar fund til þess að ráða ráðum okkar um framhald þingsins.