29.10.1984
Neðri deild: 7. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 577 í B-deild Alþingistíðinda. (355)

47. mál, barnalög

Guðrún Helgadóttir:

Herra forseti. Þegar hv. 2. landsk. þm. lagði fram frv. sitt, sem hér er til umr., var ég með í vinnslu svo til efnislega samhljóða frv. Ég sá ekki ástæðu til að halda þeirri vinnu áfram, en kaus að leggja fram brtt. sem liggur hér fyrir á þskj. 89 og er merkt, eins og frv. hv. þm., sem 47. mál.

Ég vil lýsa yfir eindregnum stuðningi við það frv. sem hér liggur fyrir og tel það til mikilla bóta og mjög nauðsynlegt. Ég hef hins vegar lagt til að sömu réttinda njóti þau börn örorku- og ellilífeyrisþega sem barnalífeyris njóta. Eins og kunnugt er fá þau börn sem eiga foreldra sem eru 75% öryrkjar eða ellilífeyrisþegar, sem getur átt við um feður þeirra, barnalífeyri skv. 14. gr. almannatryggingalaga. Ég tel að oft séu aðstæður ekki miklu betri á slíkum heimilum til þess að fjármagna framhaldsnám barna. Ég hef því lagt fram svohljóðandi brtt., með leyfi forseta, að á eftir hvorri grein í frv. hv. 2. landsk. þm. komi málsgr. er hljóði svo:

„Lífeyrisdeild Tryggingastofnunar ríkisins skal á sama hátt greiða framlög skv. 1. mgr. þessarar greinar skv. úrskurði valdsmanna til þeirra barna örorku- og ellilífeyrisþega sem barnalífeyris njóta skv. 14. gr. laga um almannatryggingar.“

Þetta á við um þau börn sem eru börn örorkulífeyrisþega eða ellilífeyrisþega. Ég vil benda hv. þm. á að þetta vandamál hefur verið rætt á þingum Sjálfsbjargar og hjá samtökum fatlaðra. Á þingi Sjálfsbjargar 1984 var gerð eftirfarandi ályktun, með leyfi forseta:

„Þingið leggur áherslu á að meðfylgjandi breyting verði gerð á 14. gr. til samræmis við 73. gr. almannatryggingalaganna: Sé barnið við nám eða í starfsþjálfun getur barnalífeyrisgreiðsla staðið til 20 ára aldurs þess, en barnalífeyrir er aldrei greiddur lengur en til 18 ára aldurs.“

Hér er sem sagt um að ræða ályktun sem er algerlega samhljóða þeim hugmyndum sem við hv. 2. landsk. þm. höfum hér hreyft. Ég tel að með þessari brtt. tryggi þetta frv. rétt allra íslenskra barna jafnt til þeirrar aðstoðar til náms og starfsþjálfunar sem 17. og 19. gr. barnalaga kveða á um.

Þar sem ég á ekki sæti í hv. allshn. Nd. vil ég einnig gera till. sem mér þótti nú ekki taka að gera skriflega. Hún er einungis um orðalagsbreytingu. Ég vil benda hv. nm. á að ég held að heppilegra væri að greinin í frv. sem fyrir liggur væri öðruvísi orðuð. Strax í fyrstu linu stendur, með leyfi forseta: „Ef meðlagsskyldur aðili er ekki á lífi“. Þar vildi ég leggja til að nm. bættu einu orði inn í og upphafið hljóðaði svo: Ef meðlagsskyldur aðili er ekki lengur á lífi. — Ég held að það sé heppilegra að því leyti að maður er auðvitað ekki gerður meðlagsskyldur nema hann sé á lífi þegar það er gert, en þarna er auðvitað átt við að hann hafi síðan látist.