16.04.1985
Sameinað þing: 70. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4204 í B-deild Alþingistíðinda. (3558)

219. mál, greiðsla rekstrar- og afurðalána bænda

Fyrirspyrjandi (Eyjólfur Konráð Jónsson):

Herra forseti. Snemma á þinginu flutti ég fsp. til hæstv. viðskrh. sem hljóðar svo, með leyfi forseta:

„1. Hverjar eru í einstökum atriðum þær nýju reglur sem bankarnir hafa sett til að tryggja að bændur fái lán sín í hendur „um leið og lánin eru veitt“ í samræmi við fyrirmæli Alþingis í þál. frá 22. maí 1979 og bréf viðskrn. á fimm ára afmæli hennar 22. maí s. l.?

2. Hafa nokkrir bankar eða útibú reynt að sniðganga þessi fyrirmæli? Ef svo er, hvaða viðurlögum hyggst ráðh. beita?

3. Hvaða veð hafa bankarnir fyrir rekstrar- og afurðalánum annars vegar og lánum til afurðasölufyrirtækja hins vegar? Telja viðskiptabankar veðsetningar samvinnufélaga yfirleitt fullnægjandi? Sitja einkafyrirtæki við sama borð og samvinnufélög að því er tryggingar varðar í ríkisbönkunum?“

Ég flutti raunar einnig aðra fsp. Hún var til landbrh. Ég vil taka það fram að það hefur verið í samráði við mig sem svörum hefur verið frestað allt til þessa og eðlilegt var að viðskrh. svaraði fyrr en landbrh. Það er þess vegna ekki við þá að sakast um það atriði að málið hefur dregist hér í þinginu. Hitt geta menn svo rætt á eftir, þegar við heyrum svör ráðh., hvort eitthvað er við stjórnvöld að sakast fyrir seinagang í málunum. En þetta er nú orðin æðilöng saga. Það er að nálgast áratug síðan ég fyrst flutti hér á hv. þingi þáltill. um að bændur fengju sitt fé greitt eins og aðrir menn í þessu ríki. En menn muna það sjálfsagt að með lögum nr. 22, að mig minnir, frá 1930 var ákveðið að verkamenn og sjómenn skyldu fá laun sín greidd í peningum. Svo ætti auðvitað að vera um bændur líka.

Málið var síðan rætt á hverju þingi og loks tókst hinn 22. maí 1979, eða fyrir tæpum sex árum, að fá samþykkt ákveðin fyrirmæli til ríkisstj. um að framkvæma þetta mál þannig að bændur fengju afurðir sínar greiddar um leið og þær eru inn lagðar. Þetta er ekki komið til framkvæmda enn þá en þó hefur nokkuð miðað í áttina. Ánægjulegast er það þó að bændur, svo til allir upp til hópa, krefjast nú réttar síns. Þess vegna verður þetta mál ekki stöðvað úr þessu. En ég ætla ekki að segja meira um þetta fyrr en ég er búinn að heyra svör ráðh.

Þetta mál er langt frá því að vera útrætt. Það vill svo vel til að það er þáltill. fyrir nefnd í Ed. Alþingis um rétt skil afurðasölufyrirtækja. Þangað köllum við auðvitað forustumenn í landbúnaðarmálum og fleiri til skrafs og ráðagerða. Raunar hefur þegar nokkuð verið unnið í því máli og þess vegna er hægt að halda allri þessari umræðu áfram í Ed. a. m. k. og einnig hér í Sþ. ef á þarf að halda. En ég ætla ekki að ræða málið frekar fyrr en ég hef heyrt svör hæstv. ráðh.