16.04.1985
Sameinað þing: 70. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4207 í B-deild Alþingistíðinda. (3560)
219. mál, greiðsla rekstrar- og afurðalána bænda
Fyrirspyrjandi (Eyjólfur Konráð Jónsson):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. viðskrh. fyrir þessi svör svo langt sem þau ná. Það er rétt að kerfið er loksins aðeins að láta undan einmitt núna þessa dagana. Og auðvitað lætur það undan vegna þrýstings. Ekki einungis af hálfu alþm. Það hefur ekki verið mikið virt sú ályktun fram að þessu sem samþykkt var hér fyrir tæpum sex árum. Það er auðvitað látið undan vegna þess að bændur sjálfir gera sér nú orðið grein fyrir því hvernig þeir hafa verið hlunnfarnir á undanförnum árum, hve gífurlegt tjón þeir hafa beðið af því og landbúnaðurinn allur að fá ekki sína peninga á réttum tíma þegar verðbólgan var jafnvel komin upp í 130%. Menn geta svona ímyndað sér hver hagur bóndans er sem kannske fær ekki fullnaðargreiðslu — og fær nú aldrei fullnaðargreiðslu hjá ýmsum félögum — sem fær ekki neinar verulegar greiðslur fyrr en kannske mörgum mánuðum eftir að hann leggur sínar afurðir inn, allt á annað ár kannske.
Þetta er svo margrædd saga að ég ætla ekkert að fara lengra út í hana nú. Það er út af fyrir sig rétt sem hæstv. ráðh. segir að það er verið að flytja afurðalánin frá Seðlabanka til viðskiptabankanna. Út á það gekk mín till. kannske að efni til að nokkru leyti, en þó fyrst og fremst það að bændur fengju peningana en að þeir staðnæmdust ekki í neinum viðskiptabönkum. Við skulum athuga það að núna, þegar þetta er gert, eru allar horfur á því að bindiskyldan verði í rauninni alveg jafnmikil eða kannske meiri en áður því að Seðlabankinn á enn að geta haldið 18% frystingu og kannske meira. Í lögum er heimild upp í 38%. Það er hægt að hækka það aftur ef Alþingi grípur ekki í taumana. Það vill svo vel til að nú er frv. fyrir Ed. um það að færa 11. gr. seðlabankalaganna í upphaflegt horf, þ. e. að frystingin megi aldrei vera nema 10%. Ég trúi því ekki fyrr en ég tek á að það frv. verði ekki samþykkt. Þá væri komið eðlilegt fjármálaástand í þessu landi. Það er nefnilega ekki hægt að frysta peninga með þessum hætti. Að ætta sér annars vegar að hafa frjálsa vexti og hins vegar enga peninga í umferð, það dæmi gengur alls ekki upp. Auðvitað verða vextir ógnarháir. Allir peningar verða á svörtum markaði eða verðbréfamörkuðum o. s. frv. með ógnarháum vöxtum ef Seðlabankinn sinnir ekki þeirri frumskyldu sinni að sjá til þess að eðlilegt fjármagn sé í umferð í þjóðfélaginu.
Það er meginmarkmið starfsemi Seðlabankans að sjá til þess að nægilegt fé sé í umferð til að sinna þörfum viðskiptalífs og alls atvinnulífs, og raunar líka fjárhag heimilanna, því að nú er verið að selja ofan af mönnum fasteignir sem þeir eiga kannske að 2/3 hlutum eða helmingi, af því að þeir geta hvergi fengið 20–30 þús. kr. lán í bönkum. Þetta kerfi gengur ekki upp.
Við skulum segja að þetta sé áfangi, sem viðskrh. var núna að kunngera, en hann er ósköp lítill nema skrefið verði tekið út og bindiskylda seðlabankans fari aldrei yfir 10%, vegna þess að annars verður sami monetarismi ríkjandi hér á Íslandi, sama nauðungin vil ég segja í peningamálum, því að ekki er hægt að kalla það annað, að hversu góðar tryggingar sem menn hafa og hversu brýn nauðsynin sem er að fá eitthvert fé af einhverjum ástæðum, t. d. þeim sem ég var að nefna varðandi húsbyggjendur, fáist það ekki. Það er ekki hægt að reka lýðræðisþjóðfélag með þessum hætti. Það þekkist hvergi í víðri veröld.
Það er sagt að þessi bindiskylda sé til þess að koma í veg fyrir verðbólgu. Hvergi í lýðfrjálsu landi hefur verið stunduð önnur eins bindiskylda og hér á Íslandi. Og hver hefur árangurinn orðið? Bullandi verðbólga. Í Svisslandi standa bankastjórarnir á tröppunum og biðja menn að taka lán á lágum vöxtum. Þar er allt fullt af peningum. Þar hefur aldrei verið verðbólga. Verðbólgan hvarf í Bandaríkjunum þegar Arabapeningarnir og mjög mikill hluti fjármagns heims streymdi þangað á undanförnum árum. Þá hvarf hún. En í Suður-Ameríku er hún komin í fjögur, fimm, eða sex hundruð prósent af því þeir eru þeir einu sem reka svipaða stefnu eins og við í peningamálum, loka peninga inni.
En þetta verður nú allt saman rætt betur í sambandi við afgreiðslu frv. um bindiskylduna, sem ég á von á að verði samþykkt í Ed. næstu daga og komi þá til Nd., og ég trúi varla öðru en að Nd. samþykki það líka. Og þá er sigurinn unninn en fyrr ekki.