16.04.1985
Sameinað þing: 70. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4213 í B-deild Alþingistíðinda. (3566)
381. mál, framkvæmdir á vegum bandaríska herliðsins á Íslandi
Fyrirspyrjandi (Steingrímur J. Sigfússon):
Herra forseti. Ég vil ekki láta hjá líða að þakka hæstv. utanrrh. fyrir svör hans, sem voru greinargóð, og ég virði hann nokkuð meir en ella fyrir það sem hann sagði reyndar, að hann vildi hafa þessa umræðu opna og leggja fram upplýsingar. Að vísu má um það spyrja hvort hans rn. og sú deild sem með þessi mál fer standi í stykkinu sem skyldi ef óbreyttir þm., sem ekki hafa þótt neitt sérstaklega hliðhollir vestrinu, a. m. k. stundum í ræðum hér, eru á undan að færa honum fréttir um ný áform um hernaðaruppbyggingu. En naumast hefur það farið fram hjá öllum, sem með þessum málum fylgjast, að uppi eru þessi áform og það er vitað að bandarísku fyrirtæki hefur nú verið falið að glíma við það verkefni að aðlaga þessa tækni að þeim aðstæðum sem ríkja á norðurslóðum sem fyrst og fremst snúa að því að vinna gegn þeim truflunum sem norðurljós valda á norðlægum breiddargráðum á rafeindasviði jónahvolfsins. Varla væru menn að þessu nema vegna þess að þeir hyggjast setja upp slíkar stöðvar á norðlægum breiddargráðum. Þá liggur það einnig fyrir að þeir tveir staðir, sem mest hefur verið rætt um í þessu sambandi, eru Ísland og Bretlandseyjar.
Vegna þeirra svara sem hér komu fram og staðfestu að nú eru uppi áform um það í Bandaríkjunum að reisa styrkta stjórnstöð í Keflavík og það liggur fyrir að verið er að reisa í gríð og erg styrkt flugskýli í Keflavík, þá hlýt ég að leggja saman tvo og tvo — eða einn og einn og fá út tvo — og segja: Það er greinilegt að Keflavíkurstöðinni hefur nú verið settur nýr staðall. Nú skulu mannvirki þar vera sérstaklega styrkt. Þetta ætti að vera þeim mönnum umhugsunarefni sem alveg fram að þessu hafa trúað því að öll sú mikla uppbygging, öll sú mikla tæknibreyting sem átt hefur sér stað í búnaði herliðsins á Íslandi á undanförnum árum hafi engu breytt um stöðu og eðli stöðvarinnar og vígbúnaðarins hér. Hvers vegna reisa menn sérstaklega styrktar stjórnstöðvar og sérstaklega styrkt flugskýli og þar fram eftir götunum ef engin eðlisbreyting hefur orðið á þeirri saklausu varnarstöð sem hér á að vera skv. margendurteknum yfirlýsingum hæstv. utanrrh.? Ég hygg að það megi öllum vera ljóst, þó þeir hafi jafnvel ekkert um þessi mál vitað annað en það sem hér hefur verið rætt í dag, að það eru miklar framkvæmdir í gangi og fyrir dyrum standa miklar framkvæmdir. Þegar þetta er allt lagt saman, ef menn skoða þetta heildstætt, ekki hvern hlut fyrir sig eins og menn hafa þó gjarnan reynt að láta okkur Íslendinga gera, heldur líta á alla myndina, þá á ekki að dyljast neinum lengur að hér eru miklir hlutir að gerast og alvarlegir.
Ég ætla svo sannarlega að vona að sú frétt, sem ég var að fræða hæstv. utanrrh. um að hugsanlega kæmi á hans borð á næstu mánuðum eða á næsta ári, verði aldrei að veruleika, svo sannarlega, vegna þess að þá væri enn þá alvarlegra skref stigið að mínu mati en hingað til hefur verið stigið. En það er þó enn ein staðfesting þess að verið er að möndla með Ísland. Það er verið að búa til áætlanir og búa til plön. Það er verið að teikna hluti löngu áður en íslenska þjóðin og íslenska þingið hv. veit nokkuð um það. Nú eru t. d. komnar teikningar að nýrri styrktri stjórnstöð í Keflavík inn á borð utanrrn. Og hvað hefur íslenska þjóðin og hvað hefur hv. Alþingi fengið að vita um það mál af hálfu hæstv. utanrrh. hingað til annað en það sem menn eins og ég og aðrir slíkir hafa af veikum burðum verið að reyna að fræða hana um, oft í lítilli þökk ýmissa afla hér í landinu?
Ég get þó tekið undir það og ágætt er að við verðum sæmilega sáttir hér í lokin um eitt atriði, ég og hæstv. utanrrh., að það er til gagns að hafa umræðuna opna. M. a. í því skyni lagði ég fram þessar spurningar. Ég tel að þjóðin öll, ekki bara utanrmn. hv. Alþingis, eigi að fylgjast með því og fá að vita hvað hér er að gerast. Það er lýðræðisleg skylda þessarar stofnunar og auðvitað þeirra hæstv. ráðh. sem bera á henni ábyrgð að sjá um að svo sé gert.