16.04.1985
Sameinað þing: 70. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4214 í B-deild Alþingistíðinda. (3567)
381. mál, framkvæmdir á vegum bandaríska herliðsins á Íslandi
Utanrrh. (Geir Hallgrímsson):
Herra forseti. Mér þykir ákaflega leitt að ég er ekki nægilega vel undirbúinn að svara fsp. hv. 3. þm. Reykv. varðandi þær umræður og fyrirætlanir sem uppi voru í tíð fyrrv. ríkisstj., e. t. v. af skiljanlegum ástæðum þar sem ég átti nú ekki innangengt í þeirri ríkisstj. eins og hv. þm. Ég vil þó aðeins segja að það hefur engin endanleg ákvörðun verið tekin um með hvaða hætti stjórn þeirra mannvirkja verður háttað sem nú eru í byggingu í Helguvík. Eins og kunnugt er voru nokkrar deilur milli stuðningsmanna fyrrv. ríkisstj., hv. 3. þm. Reykv. og forvera míns, Ólafs heitins Jóhannessonar, sem ég skal ekki rifja upp. Það hefur ekki þótt tímabært eða ástæða til að taka upp í ríkisstj. eða til umræðu milli rn. hvernig verkaskiptingu yrði háttað hvað snertir stjórn mannvirkja í Helguvík, en mér er sönn ánægja að láta hv. þm. fylgjast með gangi mála.
Varðandi ummæli hv. þm. Steingríms Sigfússonar, þá fundust mér hans orð bera vitni um starfsaðferðir hv. þm. Alþb. í þeim málum er lúta að framkvæmdum varnarliðsins, bæði þeim sem í gangi eru eða fyrirhugaðar eða e. t. v. langt frammi í framtíðinni eða jafnvel þótt þær séu engan veginn raunhæfar eða úr lausu lofti gripnar. Þegar hv. þm. nefndi OTH-ratsjárstöðvarnar í sinni fyrri ræðu gat hann þess ekki, sem hann gat um í seinni ræðunni, að vegna tæknilegra örðugleika þykja þær ekki gera neitt gagn á norðurslóðum. Þess vegna er þar ekki um að ræða neinar þær framkvæmdir, hvorki hér á landi né annars staðar, sem á dagskrá eru. Fyrst þarf að leysa þessi tæknilegu vandamál. Þessar ratsjárstöðvar virka ekki eins og ráð er fyrir gert vegna norðurljósanna að því er mér skilst þó að mig bresti tæknilega kunnáttu til að skýra það út. Það er ekki á dagskrá svo að íslensk stjórnvöld viti að byggja hér slíka ratsjárstöð og um það er þess vegna ekki ástæða til að ræða frekar.
Sama tilhneiging kom fram í ræðu hv. þm. þegar hann var að tala um styrkta stjórnstöð. Ég vil aðeins segja af því tilefni að mannvirki varnarliðsins eru byggð skv. ákveðnum stöðlum sem gilda um slík mannvirki. Staðlarnir eru settir skv. ákvörðun þjóða Atlantshafsbandalagsins og eru hinir sömu hvarvetna í löndum Atlantshafsbandalagsþjóðanna. Ég bendi á að í nýframlagðri skýrslu minni um utanríkismál segir svo um stjórnstöð á bls. 32, með leyfi forseta:
„Áform eru fyrir hendi um byggingu styrktrar stjórnstöðvar í stað núverandi, sem er í járngrindarhúsi með mjög ófullkominni aðstöðu að öllu leyti. Staðhæft hefur verið að stjórnstöðinni yrði komið fyrir neðanjarðar, hún væri gerð til að þola kjarnavopn. Hið rétta er, að hér er um að ræða tveggja hæða byggingu, gluggalausa, sem er hönnuð til að hýsa ýmsa stjórnunarþætti, er verið hafa til staðar á Keflavíkurflugvelli frá því að varnarliðið kom fyrst til landsins. Endurnýjun stöðvarinnar hefur því ekki í för með sér neina eðlisbreytingu á þeirri stjórnunarstarfsemi, sem Bandaríkin reka til varnar Íslandi og svæðunum umhverfis landið. Byggingin á að vera útbúin sérstökum hreinsiútbúnaði vegna hugsanlegrar mengunar frá efnavopnum og á þannig að geta hýst starfsmenn þess í allt að eina viku. Slíkt er í samræmi við NATO-staðla, enda byggingin að miklu leyti greidd af mannvirkjasjóði Atlantshafsbandalagsins úr þeim verkefnaflokki sjóðsins, sem greiðir kostnað við flugvelli og flugvallarmannvirki. Viss hætta er talin vera til staðar, að slík vopn kynnu að verða notuð, ef árásir yrðu gerðar á bækistöðvar Atlantshafsbandalagsins. Því er ekki um neina sérstöðu að ræða hvað Ísland varðar í þessum efnum. Væntanlega yrði hafist handa um byggingu stöðvarinnar á næsta ári.“
Svo mörg eru þau orð varðandi stjórnstöðina. Þessi greinargerð í skýrslu minni um utanríkismál leiðir og í ljós að áhersla er lögð á að leyna engu að því er snertir framkvæmdir varnarliðsins nema þá því sem nauðsynlegt er ef um hernaðarleyndarmál er að ræða, en ég held sannast að segja að það liggi allt eins og opin bók hvað snertir varnarstöðina á Keflavíkurflugvelli svo að því er ekki til að dreifa.