16.04.1985
Sameinað þing: 71. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4258 í B-deild Alþingistíðinda. (3599)
335. mál, frelsi í innflutningi á olíuvörum
Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):
Hv. 3. þm. Reykn. hefur óskað eftir frestun á þessari umr. Þó er enginn á mælendaskrá. Hann leggur áherslu á að málið sé svo mikilvægt að það þurfi fleiri að ræða það. Ég vek athygli á því að málið er búið að vera marga fundi á dagskrá og öllum hefur mátt vera ljóst að málið væri mikilvægt, ef svo er.
Það skal enn fremur tekið fram, sem augljóst er, að þó málinu sé frestað er það ekki í valdi forseta að sjá svo um að fleiri taki til máls ef þeir óska þess ekki. En þrátt fyrir þetta mun nú verða orðið við ósk hv. þm. Umr. er frestað.