17.04.1985
Efri deild: 57. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4288 í B-deild Alþingistíðinda. (3607)

245. mál, lánsfjárlög 1985

Helgi Seljan:

Virðulegi forseti. Það er með nokkrum eindæmum hversu mikil þrautafæðing þessara lánsfjárlaga er hjá hæstv. ríkisstj. Það ætlar ekki af þeim að ganga, hæstv. ráðh., í þessum efnum. Vel varð maður þess var í heldur stuttri framsögu hv. formanns fjh.- og viðskn. að ekki muni það hafa verið þrautalaust hjá svo vammlausum og glöggum hv. þm., sem formaður fjh.- og viðskn. er, að þurfa nú að taka enn eina kollsteypuna í þessum efnum. Það lýsti sér vel í því þegar hann vísaði á hæstv. ráðh. til varnar því sem þarna var að gerast og vildi sem sagt hreint ekki hafa þar fleiri orð um. En eins og við vitum hefur hann oft mælt mörg vísdómsorð einmitt varðandi þetta efni hér úr þessum ræðustól og hefði gjarnan mátt koma með eitthvað af þeim til áminningar þeim hæstv. ráðh., sem máttu hlýða á mál hans, þannig að þeir mættu eitthvað af nema. Ég hygg reyndar að hv. þm. sé orðinn nokkuð vondaufur um að námsgáfur í þessum efnum hjá hæstv. ráðh. séu í því formi að það gagni mikið að endurtaka þá hluti.

Engum kemur á óvart að Landsvirkjun hafi sótt í sig veðrið og — svo að notað sé frægt orðalag — náð vopnum sínum gagnvart hæstv. iðnrh. Eins og kom fram í máli hv. 11. þm. Reykv. hefur oft verið um skýrari framsetningu að ræða af hans hálfu þegar hann hefur verið að gera grein fyrir sínu máli en þegar hann var að útskýra það hvernig þessi stóra breyting væri til komin. Þó færðist öllu meiri sannfæringarkraftur í mál hæstv. ráðh. þegar að hans hjartans máli kom, álverinu í Straumsvík. Það er ljóst að orkuveislan mikla er aldeilis ekki á enda, það sanna þessar nýjustu tölur hér varðandi þá breytingu sem hér er gerð í 1. brtt. frá meiri hl. fjh.- og viðskn. Úr því að þessari veislu er haldið svo ríkulega áfram ætlast ég til að það megi verða til þess að kísilmálmvinnslan á Reyðarfirði njóti þar góðs af. Ég vakti athygli á því við 2. umr. þessa máls að ef menn ættu að horfa framan í einhverjar aðgerðir á þessu ári, eins og látið hefur verið liggja að alltaf öðru hvoru, yrði að taka tillit til þess í lánsfjáráætlun. Það er upplýst af hálfu hæstv. iðnrh. að þó að útlendir aðilar komi inn í það dæmi muni alltaf verða um mjög ríkulegan hlut Íslendinga þar að tefla. Afgreiðsla lánsfjárlaganna og lánsfjáráætlunin nú sýnir gleggst að það er enginn hugur að baki því að framkvæmdir verði hafnar við þessa verksmiðju á þessu ári.

Ég skal nú ekki hafa um þetta langt mál. Hv. þm., sem er kunnugt um hið skemmtilega reiptog innan ríkisstj. og hnippingarnar í kringum raðsmíðaverkefnin, hljóta að dást að þeirri undursamlegu lausn, sem sést nú í brtt. nr. 4 á þskj. 725, þar sem segir í lokin eftir að búið er að heimila fjmrh. fyrir hönd ríkissjóðs að ábyrgjast lán með sjálfskuldarábyrgð sem endurlánað verður vegna sölu fimm fiskiskipa, með leyfi virðulegs forseta: „Ráðh. er heimilt að ákveða nánar framkvæmd lagagreinar þessarar með reglugerð.“ Það er greinilega ekki vandi að finna lausnir í hæstv. ríkisstj. á deilumálum. Nú óska ég hæstv. fjmrh. til hamingju með það að hafa fengið sjálfdæmi um það hvernig þessu verður háttað og fer út af fyrir sig vel á því.

Varðandi brtt. nr. 3, þar sem farið er út í lántökuna vegna þróunarfélags til nýsköpunar í atvinnulífi, væri býsna fróðlegt að fá að vita hvernig á að hagnýta þessa stóru upphæð, 500 millj. sem þar er talað um að eigi að ganga til nýsköpunar í íslensku atvinnulífi. Ég hef ekki séð neina skilgreiningu á því í hvaða höfuðverkefni þetta mikla fjármagn á að fara. Ég hefði t. d. gaman af að vita hvort aukafundur Stéttarsambands bænda, sem nú fjallar um gerbreytingu á lögunum um sína lífsafkomu alla, fær upplýsingar um það hversu mikið á að falla í hlut landbúnaðarins til uppbyggingar nýrra greina í stað þeirrar framleiðsluminnkunar sem augljós er í kjölfar þess frv. sem þar liggur nú fyrir og ríkisstj. ætlar sér að fá samþykkt fyrir þinglok. Ég þykist vita að það mundi greiða að einhverju leyti fyrir málsmeðferð á þessum aukafundi Stéttarsambands bænda ef það lægi fyrir hvað nýjar búgreinar og uppbygging í atvinnulífi í sveitum ættu að fá af þessu mikla fjármagni sem þarna er til ráðstöfunar.

Hins vegar var aðalerindi mitt í ræðustól að vekja enn einu sinni athygli á tillögu minni um lántöku vegna mengunarvarna og orkusparnaðar í fiskimjölsverksmiðjum á þskj. 515 sem orðast svo, með leyfi virðulegs forseta:

„Á eftir 9. gr. komi ný grein er verði 10. gr. og orðist svo: Framkvæmdasjóði Íslands er heimilt að taka lán að upphæð 100 millj. kr. til þess að endurlána Fiskveiðasjóði vegna mengunarvarna og orkusparnaðar í fiskimjölsverksmiðjum.“

Við 2. umr. dró ég þessa till. til baka og vænti þess þá að hún fengi umfjöllun í nefnd því jákvætt var undir málið tekið af sumum hv. dm. og ég veit að það er vissulega áhugi fyrir því hjá sumum hv. dm. að á þessu máli verði tekið. Ég veit einnig og hef fyrir því fulla vissu að hæstv. fjmrh. hefur ríkan skilning á þessu máli þó að ég viti um hans eðlilega vanda í allri viðbót í þessum efnum. Ég vil aðeins endurtaka það sem ég sagði þá að ég held að það sé útilokað annað en að taka á þessu máli í ljósi þess mikla vandamáls sem mengunin er í fjölmörgum byggðarlögum vegna þessara verksmiðja og við höfum fengið ályktanir um hér í vetur. Á þessu máli verður að taka. Það er ljóst að það kostar mikla fjármuni til handa þeim sem þurfa að gera þessar breytingar hjá sér. En við skulum líka hafa það í huga að þessar breytingar, sem nauðsynlegt er að gera vegna mengunarvarnanna, skila líka býsna miklum orkusparnaði ef rétt er að staðið. Hér verður sem allra fyrst að hefjast handa. Ég vona því enn að unnt sé að gera eitthvað í þessu máli og skírskota alveg sérstaklega til mikils velvilja hæstv. fjmrh. í þessu efni sem ég veit að er fyrir hendi þó að ég geri mér grein fyrir að á þessu lokastigi sé e. t. v. erfitt að taka málið fyrir fyrst ekki hefur verið tekin afstaða til þess sérstaklega í nefndinni.