17.04.1985
Efri deild: 57. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4295 í B-deild Alþingistíðinda. (3611)
245. mál, lánsfjárlög 1985
Stefán Benediktsson:
Virðulegi forseti. Ég ætlaði ekki, eins og ég sagði áðan, að lengja þessa umr. mikið, en ég sé mig tilknúinn til þess þó að bæta aðeins við orð mín áðan, einkum vegna þess að ég hafði það á tilfinningunni að hæstv. fjmrh. hefði misskilið orð mín eitthvað þar sem hann taldi að ég hefði verið að tala um hans duttlunga þegar ég talaði um heimildir til að fullnægja duttlungahugmyndum manna. Ég átti alls ekki við það. Ég býst við að fjmrh. sé ekki ókunnugt um hugtök eins og gæluverkefni eða duttlunga þm., þar sem unnið er, oft af miklu harðfylgi, að fjármögnun og framkvæmd verkefna sem tíminn síðar sannar að eiga mjög lítið erindi inn í íslenskt efnahagslíf. Það má nefna bæði gömul og ný dæmi. Við höfum hugsanlega eitt nýtt dæmi á ferðinni sem nefnt var áðan svo að ekki sé alltaf verið að stagast á Kröflu og öðrum slíkum verkefnum. Það er títtnefnd kísilmálmverksmiðja á Austurlandi sem reyndar skilar hæstum meðallaunum á landinu í dag til starfsmanna sinna en ekki nokkru fyrir þjóðarbúið enn þá.
Fjmrh. taldi sér heimilt að hætta við lántökur ef hagsmunir lands og þjóðar byðu svo. Ég tel að þarna fari fjmrh. með rangt mál og þurfum við þá ekki annað en að lesa 1. og 2. gr. þessa frv. Í 1. gr. er sagt að fjmrh. sé heimilt að taka ákveðna lánsupphæð, sem þar er tilgreind, og í 2. gr.: „Lánsfé skv. 1. gr. skal ráðstafað í samræmi við ákvæði fjárlaga og fjárfestingar- og lánsfjáráætlunar fyrir árið 1985.“ Alla þessa lánsupphæð er því búið að eyrnamerkja þannig að enginn getur undan því vikist að framfylgja þessum lögum öðruvísi þá en með lögbroti. Því skal líka andmælt, sem hæstv. fjmrh. hélt hér fram, að ásetningur þessarar ríkisstj. sé ekki fokinn út í veður og vind. Það hlýtur að fara saman ásetningur annars vegar og framkvæmd. Ef ég dreg hana dóttur mína aftur inn í þessa umr., sem ég nefndi áðan, hafa skuldir þessarar þjóðar sem hlutfall af þjóðarframleiðslu aukist um 100% á þeim tólf árum sem hún hefur lifað. Ef svo fer fram sem horfir verður þessi unga stúlka ekki orðin gjafvaxta þegar erlend lán nema orðið að verðmæti allri okkar þjóðarframleiðslu, ef þessi þróun verður ekki stöðvuð. Ríkisstj., sem nú er við völd, hefur ekki stöðvað þessa þróun og hefur ekki uppi neina tilburði til þess að stöðva hana. Menn geta reynt að malda í móinn og segja: Ásetningur minn er enn hinn besti. Það gagnar fólki ekki neitt á meðan framtakið eða framkvæmdirnar eru ekki í samræmi við ásetninginn.
Ég hirði ekki að ræða um saltverksmiðju eða raforkuframkvæmdir að neinu ráði. Við gætum haldið uppi löngu máli um það. Við áttum einu sinni auðlindir í sjó og á landi í sjávarútvegi og landbúnaði sem við erum búnir að ofnýta og þó aðallega offjárfesta í og þar með búnir að eyðileggja árangurinn af þessum auðlindum eða þann ábata sem við gætum haft af þeim. Það fer ekkert á milli mála, þegar horft er á offramleiðsluna á raforku hér á landi, að við erum á góðri leið að fara með þá auðlind sama veg og hinar tvær auðlindirnar sem við áttum.